
Innlent
Innlendar fréttir, teknar saman af öllum helstu miðlum landsins.
Fleiri fréttir · síða 14

Förðunarfræðingurinn Elín Erna Stefánsdóttir, sem var lengi þekkt á samfélagsmiðlum sem Elín Likes, svífur um á bleiku skýi um þessar mundir. Ævintýraferð hjá henni og hennar heittelskaða Húsvíkingi Sindra Ingólfssyni til Ástralíu og Balí endaði með gleðitárum þegar hann skellti sér á skeljarnar.

Eiginkona breska grínistans og leikarans Russells Brands bar vitni í dag í réttarhöldunum yfir honum vegna ákæra um nauðganir og önnur kynferðisbrot. Sagði hún hann hafa átt „erfitt“ með að vera einkvænis en síðar orðið „frábær“ eiginmaður.

Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann sem grunaður er um að hafa orðið föður sínum til bana. Maðurinn er sonur Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur. Vísir greindi fyrst frá því að ákæran hefði verið gefin út. Maðurinn hefur sætt gæsluvarðhaldi meðan lögregla hefur rannsakað andlát föðurins. Fréttastofa hefur hvorki fengið ákær
Yfirgnæfandi meirihluti er mótfallinn því að Ísland taki þátt í Eurovision verði Ísrael á meðal þátttökuþjóða, en þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu. Stjórnarkona í félagi áhugafólks um söngvakeppnina segir félagið ekki taka afstöðu í málinu en segir sárt að ekki sé haldin innlend söngvakeppni.

Nýr veitingastaður, Ós, hefur opnað á Hótel Selfossi og tekið við af Riverside. Nafnbreytingunni fylgja nýr matseðill og áhersla á smárétti til að deila.
/frimg/1/68/78/1687887.jpg)
Karlmaður sem er grunaður um að hafa banað föður sínum í heimahúsi í Salahverfinu í lok júlí hefur verið ákærður í málinu. Frá þessu greinir Vísir en maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan málið kom upp.

Formaður Kennarasambands Íslands segir allt stefna í forsendubrest gildandi kjarasamnings. Hann telur ólíklegt að félagsmenn í Kennarasambandinu, sem eru um 12 þúsund, samþykki breytingar á samningi fyrir laugardag. Þá verði samningar við kennara lausir frá og með næstu áramótum. „Nú hefur okkur verið tilkynnt að það s
Landsréttur hefur fellt úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að vísa frá dómi rúmlega 40 milljóna króna greiðslukröfu húsfélagsins að Höfðabakka 1 á hendur JB Eignum ehf. Héraðsdómi er gert að taka málið til efnismeðferðar.

Hrafnhildur Arnkelsdóttir hagstofustjóri segir ekkert til í fullyrðingunum um að Hirti J. Guðmundssyni hafi verið sagt upp á Hagstofunni vegna pólitískra athafna hans eða skoðana.

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri Reykjavíkur hefur verið til svara í fjölmiðlum um þrjár uppsagnarhrinur borgarinnar sem sagðar eru fela í sér niðurlagningu á 130 stöðugildum.

Um 170 íslenskir læknanemar sitja nú á skólabekk í Jessenius-læknadeildinni í háskólabænum Martin í Slóvakíu og una hag sínum vel.

Að þessu sinni verður sjónum Nýsköpunarþings beint að tækifærum og áskorunum í nýsköpun á landsbyggðinni.

" /> „Föstudaginn 30. október mun fara fram Halloween ball Friðar 2026 í Höfðaborg á Hofsósi. Þetta er árlegur viðburður sem við erum alltaf með en þessi er sá stærsti sem við höfum haldið,“ segir Konráð Freyr Sigurðsson forstöðumaður Húss frítímans / Félagsmiðstöðvarinnar Friðar á Sauðárkróki þegar Feykir spurði hann

Innan Múlaþings er verið að leggja lokahönd á hönnun fjallahjólabrautar á snjóflóðavarnargörðunum ofan Fjarðagarðs undir Bjólfi á Seyðisfirði og stendur til að ljúka gerð slíkrar brautar strax næsta sumarið. Þar skal jafnframt koma upp upplýsinga- og fræðsluskiltum á sama tíma.

Lyfjafræðingurinn Hannes Þórður Hafstein Þorvaldsson þurfti að draga sig úr keppni á Heimsmeistaramótinu í karóki í Las Vegas í gærkvöldi eftir að hann missti röddina vegna veikinda. Hann segir verst að hafa ekki náð að syngja íslenska þýðingu sína á „My Way“ eftir Frank Sinatra.

Nýsköpunarþing Íslands fer fram í dag. Það snýr að þessu sinni að tækifærum og áskörunum í nýsköpun á landsbyggðinni. Fulltrúar fyrirtækja og frumkvöðlar úr ólíkum atvinnugreinum og landshlutum munu mæta og deila reynslu sinni.

Maddie Sutton kampakát. MYND: DAVÍÐ MÁR" /> Líkt og Feykir sagði frá fyrr í morgun þá hefur Körfuknattleiksdeild Tindastóls samið á ný við Maddie Sutton og mun hún mæta til leiks á næstu vikum. „Maddie hefur látið vel að sér kveða innan vallar sem utan og hefur unnið hug og hjörtu leikmanna, þjálfara og stuðningsfólks.

John Lee, leiðtogi heimastjórnar Hong Kong, baðst á fimmtudag afsökunar á bruna í íbúðablokkunum Wang Fuk Court í nóvember í fyrra, þar sem 168 manns fórust. Hann tilkynnti jafnframt að Winnie Ho húsnæðismálaráðherra hefði sagt af sér og boðaði umbætur á reglum um viðhald bygginga.

Formaður Sameykis gagnrýnir ummæli borgarstjóra í Kastljósi og segir ljóst að borgin hafi farið of geyst í uppsagnir. Auk þriðju hrinu uppsagna hjá Reykjavíkurborg í vikunni hafa borist fréttir af fjölda uppsagna á opinberum markaði. Tíu starfsmönnum Sorpu var sagt upp í gær og sjö fengu tímabundna ráðningarsamninga ek
Þórður Þórarinsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, segir það þungbærar ákvarðanir að ráðast í uppsagnir í dag. Samtals verða lögð niður 23 störf hjá sveitarfélaginu sem eru samtals 21,6 stöðugildi. Verður þremur starfsmönnum borðið nýtt starf og fækkar stöðugildum því um 18,6.

Maðurinn sem grunaður er um að hafa banað föður sínum í júlí hefur verið ákærður. Hann situr áfram í gæsluvarðhaldi.

Rannsóknir á rauðátu í Vestmannaeyjum eru komnar í sviðsljósið á landsvísu. Rauðátan ehf., undir forystu Harðar Baldvinssonar, framkvæmdastjóra Þekkingarseturs Vestmannaeyja, er meðal þriggja verkefna sem tilnefnd eru til Hvatningarverðlauna Sjávarútvegsráðstefnunnar 2026. Verkefnið, sem unnið hefur verið í samstarfi v

Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum í dag tillögu bæjarstjóra um hagræðingaraðgerðir í miðlægri stjórnsýslu bæjarins. Í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ kemur fram að alls verði 23 störf lögð niður sem samsvarar 21,6 stöðugildum, en þremur starfsmönnum boðin önnur störf hjá bænum.

Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, GEV, hefur lokið rannsókn á eldi í búsetuúrræðinu Vopnabúrinu í fyrra og telur að úrræðið hafi ekki brugðist skyldum sínum í tengslum við atvikið. Í fyrrahaust kviknaði í íbúð í Sóleyjarhlíð í Hafnarfirði þar sem Vopnabúrið vistaði 16 ára dreng. Fjallað var ítarlega um einkareki
Allt logar í athugasemdum eftir að Hjörtur J. Guðmundsson greindi frá því að honum var sagt upp á Hagstofunni. Telja margir að uppsögnin sé af pólitískum ástæðum, meðal annars segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor emeritus að þingmenn verði að mótmæla uppsögninni kröftuglega.


Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, vonar að Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri fái algjöra opinberun og lækki stýrivexti á Íslandi.

Stefán Máni hefur gefið út um þrjátíu bækur frá árinu 1996 og fagnar nú 30 ára rithöfundarafmæli. Þrjár bækur koma út á þessu ári, Þegar heimurinn fórst, sem segir frá tveimur einstaklingum sem virðast einu eftirlifandi manneskjurnar eftir heimsendi, Gleym mér ei, þar sem lögreglumaðurinn sérlundaði Hörður Grímsson glí

Fjármála- og efnahagsráðherra segir mjög ánægjulegt að sjá verðbólgu standa í stað og að hún sé helst drifin áfram af utanaðkomandi þáttum. Íslands sé nú eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga fari ekki vaxandi.

Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti í dag að fækka um 18,6 stöðugildi hjá bænum á næsta ári. Með þessu ætlar bærinn að lækka rekstrarkostnað um 330 milljónir á ári. Leggja á niður 23 störf sem eru samtals 21,6 stöðugildi. Þremur starfsmönnum verða boðin ný störf. Uppsagnirnar taka á stjórnunar-, sérfræði- og stoðstörfum á
Hafnarfjarðarbær ætlar að ráðast í víðtækar hagræðingaraðgerðir og mun fækka stöðugildum í stjórnsýslu bæjarins um 18,6. Áætlað er að þetta muni spara bænum 330 milljónir í lækkun rekstrarkostnaðar á ári.

Alls hafa 23 störf verið lögð niður hjá Hafnarfjarðarbæ sem samsvarar 21,6 stöðugildum. Þremur starfsmönnum verður boðin önnur störf hjá bænum, og er því um að ræða nettófækkun upp á 18,6 stöðugildi.

Hugmyndin að sölu Samskipa kom hvorki frá forsvarsmönnum félagsins né stjórnendum spænska skipafélagsins Boluda Shipping. Hún kviknaði í tengslum við samstarf fyrirtækjanna um siglingaleiðir á Suðurhöfum.

Hlöðver Máni skrifar Já, sko, Inga Sæland. Ég hef verið að fylgjast með henni lengi, eða allavega nógu lengi til að hafa myndað mér skoðun sem ég er tilbúinn að breyta strax og aðstæður kalla á það. Inga stofnaði meira að segja sinn eigin stjórnmálaflokk. Það finnst mér ákveðin framkvæmdagleði. Flest okkar sitja heima

Brotist var inn á heimili Morgans Gibbs-White, leikmanns Nottingham Forest, á meðan hann og unnusta hans, Britney De Villiers, voru að heiman.

„Ísland er demanturinn í kórónuninni í okkar félagi. Við munum einbeita okkur að Íslandi, til þess að efla okkar starfsemi hérna og bæta þjónustu til kúnnans.“

Þingflokksformaður Framsóknarflokksins gagnrýnir harðlega áform dómsmálaráðherra um að fækka lögregluembættum úr níu í þrjú. Það muni bitna á þjónustu íbúa á strjábýlli svæðum að hans mati. Astoðaryfirlögregluþjónn á Suðurnesjum er ekki á sama máli og hefði viljað sjá sameininguna ganga enn lengra.

Leikkonan Barbara Barrie lést í gær í New York borg með aðstoð lækna. Barrie var mikill stuðningsmaður dánaraðstoðar en hún var orðin 95 ára gömul og hafði glímt við ólæknandi krabbamein í tólf ár.

„Framlenging endurgjaldslausrar úthlutunar losunarheimilda gæti haft jákvæð áhrif á íslenskan iðnað og veitt fyrirtækjum lengri tíma til að fjárfesta í lausnum sem draga úr losun.“
