Nýtt.is
  • Forsíða
  • Allar fréttir
  • Viðskipti
  • Íþróttir
  • Lífið
  • Menning
  • Tækni
  • Fótbolti
  • Veður
  • Miðlar
Flokkur

Innlent

Innlendar fréttir, teknar saman af öllum helstu miðlum landsins.

Fleiri fréttir · síða 29

Morgunblaðið
Tveir ákærðir vegna Fairford-málsins

Tveir breskir ríkisborgarar hafa verið ákærðir fyrir brot gegn þjóðaröryggi Bretlands vegna aðildar þeirra að atvikinu á Fairford-herflugvellinum í september.

11:33·5 d. síðan
Vísir
Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli

Í síðasta þætti af Dagbók lögreglu vöktu nokkur atriði mikla athygli. Eitt þeirra mögulega meiri en önnur. Það kannast eflaust margir við það að sjá steggjunarhópa í alls kyns leikjum úti um alla borg. Stundum fara hlutirnir yfir strikið og það gerðist eitt sinn í Reykjavík.

11:32·5 d. síðan
Vísir
Framherjarnir þurfi að stíga upp

Rándýrir leikmenn Liverpool hafa fótað sig ágætlega í síðustu leikjum en fyrirliðinn Virgil van Dijk kallar eftir meiru. Þeirra bíði það erfiða verkefni að fylla í fótspor Mohamed Salah.

11:32·5 d. síðan
DV
Þrír bræður Ívars Arnar eru látnir: „Þetta var slys og enginn níu ára drengur getur borið þessa ábyrgð”

Ívar Örn Jónsson er faðir, eiginmaður og tónlistarmaður sem ólst upp í mikilli sorg í Vestmannaeyjum. Hann er nýjasti viðmælandi hlaðvarpsins Sterk saman.Þegar Ívar fæddist höfðu foreldrar hans þegar jarðað tvo syni sína.

11:30·5 d. síðan
Morgunblaðið
Segja vegið að búsetuskilyrðum

Bæjarráð Fjarðabyggðar mótmælir harðlega fyrirhuguðum breytingum á Loftbrú og skorar á stjórnvöld að falla frá áformunum. Bæjarráðið segir skerðingu niðurgreiðslna á flugfargjöldum óásættanlega aðför að búsetuskilyrðum á landsbyggðinni.

11:29·5 d. síðan
DV
Lögreglan á Vesturlandi ekki sátt, „Tálmun á störfum lögreglu getur haft alvarlegar afleiðingar“

Í nokkurð harðorðri Facebook-færslu Lögreglunnar á Vesturlandi kemur fram að átt hafi verið við hraðamyndavélabifreið embættisins á meðan hún var við hraðamælingar.

11:28·5 d. síðan
RÚV
Límt yfir linsu á myndavélabíl lögreglunnar á Vesturlandi

Síðasta föstudag var átt við hraðamyndavélabíl Lögreglunnar á Vesturlandi sem var við hraðamælingar á Vesturlandsvegi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Vesturlandi á samfélagsmiðlum. Límt hafði verið yfir linsu myndavélarinnar með þeim afleiðingum að hún gat ekki myndað hraðakstursbrot á meðan. Lögregla

11:24·5 d. síðan
Vísir
Gefur meirihlutanum falleinkunn

Formaður stéttarfélagsins Sameykis gefur meirihlutanum í Reykjavík falleinkunn. Hann býst við því að svipuðum fjölda verði sagt upp í dag og í síðustu skipulagsbreytingum borgarinnar.

11:21·5 d. síðan
Feykir
Felix Bergs er spenntur fyrir Skúnaskralli

Felix Bergsson rifthöfundur, fjölmiðlamaður, tónlistarmaður, leikari o.s.frv. MYND AÐSEND" /> Skúnaskrallið, Barnamenningarhátíð á Norðurlandi vestra, rúllar áfram og á morgun kemur góður gestur í Skagafjörðinn. Felix Bergsson rithöfundur með meiru mætir þá í grunnskólana þrjá í Varmahlíð, Sauðárkróki og á Hofsósi. H

11:16·5 d. síðan
Vísir
Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar

Lögreglan á Vesturlandi hefur borið kennsl á mann sem grunaður er um að hafa límt fyrir linsu myndavélar hraðamyndavélabíls lögreglu á Vesturlandsvegi síðastliðinn föstudag. Hætta skapaðist fyrir vegfarendur vegna athæfisins.

11:14·5 d. síðan
Morgunblaðið
„Enn eitt árið, enn eitt metið“

Styrkur gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftinu náði nýjum methæðum árið 2025, að því er Sameinuðu þjóðirnar greindu frá í dag. Afleiðingarnar fyrir loftslag jarðar munu vara um aldir.

11:11·5 d. síðan
Vísir
Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi

Bandaríska tímaritið People hefur krýnt leikarann Noah Wyle sem kynþokkafyllsta mann í heimi. Leikarinn sló fyrst í gegn sem Dr. John Carter í læknaþáttunum ER og hefur gengið í gegnum endurnýjun lífdaga í læknaþáttunum The Pitt á HBO MAX.

11:10·5 d. síðan
Morgunblaðið
Tugum starfsmanna sagt upp hjá borginni

Tugum starfsmanna borgarinnar verður sagt upp störfum í dag í frekari hagræðingaraðgerðum sem borgin hyggst ráðast í.

11:07·5 d. síðan
Morgunblaðið
Límt yfir linsu lögreglu

Hætta skapaðist þegar afskipti voru höfð af hraðamyndavélabifreið lögreglunnar á Vesturlandi í síðustu viku.

11:06·5 d. síðan
Vísir
„Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“

Oddviti Miðflokksins í borginni segir alltaf erfitt að segja upp fólki en að Miðflokkurinn styðji nauðsynlegar hagræðingaraðgerðir í rekstri borgarinnar. Hann kveðst bundinn trúnaði um efni aukaborgarstjórnarfundar í morgun en heimildir Vísis herma að þar hafi verið ræddar uppsagnir tuga borgarstarfsmanna.

11:02·5 d. síðan
Vísir
Gæti farið í sex leikja bann

Brasilíumaðurinn Neymar gæti farið í sex leikja bann fyrir að hylja munn sinn meðan hann reifst við Rodrigo Nestor, leikmann Bahia, í leik liðsins við Santos um helgina.

11:01·5 d. síðan
Vísir
Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum

Undanfarin ár hefur Reykjavíkurborg átt í samstarfi við lóðarhafa á uppbyggingasvæðum. Þar hefur verið sett af stað mikilvægt verkefni sem byggir á því að hlutfallslegri fjárhæð framkvæmda og uppbyggingar sé varið til listsköpunar. Þetta samstarf er hlekkur í að tryggja gæði og gott umhverfi í borginni og auka sýnileik

11:01·5 d. síðan
RÚV
Skart í stað síldar á Hjalteyri

Skartgripahönnuðurinn Katla Karlsdóttir stundaði nám í París og Antwerpen áður en hún kom sér upp skartgripasmíðaverkstæði í gömlu síldarverksmiðjunni á Hjalteyri. Katla gerir alla gripina frá grunni í höndunum, á hægtískuforsendum, og sinnir myndlist til hliðar. Aðstaða Kötlu á Hjalteyri er heimasmíðuð og þar eru hlut

11:00·5 d. síðan
Morgunblaðið
Réttur til endurgreiðslu sjúkrakostnaðar framlengdur

Réttur til endurgreiðslu sjúkrakostnaðar utan EES hefur verið framlengdur til loka september á næsta ári.

11:00·5 d. síðan
Morgunblaðið
Sjóvá kann að halda partí

Hverjir voru hvar?

10:53·5 d. síðan
Morgunblaðið
Fara hvort sína leið eftir fjögur ár

Stause sagðist enn ástfangin þegar hún greindi frá sambandsslitunum.

10:44·5 d. síðan
Eyjafréttir
Eyþór treystir verklagi bæjarins, aðrir oddvitar vísa til trúnaðar

Eyþór Harðarson telur ekki þörf á óháðri úttekt á verklagi Vestmannaeyjabæjar þótt innviðaráðuneytið hafi úrskurðað þrjár uppsagnir starfsmanna sveitarfélagsins ólögmætar á skömmum tíma. Oddvitar Eyjalistans og Miðflokksins svöruðu spurningum Eyjafrétta ekki efnislega og vísuðu til trúnaðar. Eyjafréttir óskuðu eftir af

10:37·5 d. síðan
RÚV
Tugum sagt upp hjá borginni

Tugum starfsmanna Reykjavíkurborgar verður sagt upp í hagræðingaraðgerðum sem voru til umræðu á lokuðum fundi í borgarstjórn í morgun. Uppsagnirnar ná til allra sviða nema skóla- og velferðarsviða. Þetta herma heimildir fréttastofu. Borgarstjórn kom saman á lokuðum fundi í morgun og er efni hans trúnaðarmál. Fundinum l

10:34·5 d. síðan
RÚV
Borgarfulltrúar vildu ekki tjá sig um uppsagnir eftir borgarstjórnarfund

Tugum starfsmanna Reykjavíkurborgar verður sagt upp í hagræðingaraðgerðum sem voru til umræðu á lokuðum fundi í borgarstjórn í morgun. Uppsagnirnar ná til allra sviða nema skóla- og velferðarsviða. Þetta herma heimildir fréttastofu. Borgarstjórn kom saman á lokuðum fundi í morgun og er efni hans trúnaðarmál. Fundinum l

10:34·5 d. síðan
RÚV
Sex Íslendingar keppa á HM í lyftingum í Kína

Ísland á sex keppendur á heimsmeistaramótinu í ólympískum lyftingum sem fram fer þessa dagana í Ningbo í Kína. Eygló Fanndal Sturludóttir íþróttamaður ársins 2025 og Evrópumeistari í -71 kg flokki sama ár er þó ekki í hópi íslensku keppendana þar sem hún er enn að byggja sig upp eftir erfið meiðsli. Íslenska landsliðið

10:32·5 d. síðan
DV
Viðurkennir að hafa gengist undir fegrunaraðgerðir eftir vangaveltur um breytt útlit hans

Greint hefur verið frá því að írski leikarinn Barry Keoghan hafi gengist undir húðstinnandi meðferð sem kallast XERF.

10:30·5 d. síðan
Morgunblaðið
Loftbrúin kostar 12.000 kr. á hvern íbúa landsbyggðar

Fjárheimildir ríkisins vegna Loftbrúarinnar hafa verið 600 milljónir frá árinu 2021 sem var fyrsta heila starfsár verkefnisins.

10:20·5 d. síðan
Mosfellingur
Yfir 30 milljónir safnast til uppbyggingar í Reykjadal

Góður árangur hefur náðst í söfnunarátaki Reykjadals í Mosfellsdal en yfir 30 milljónir króna hafa safnast frá því átakið Sumargjöf Reykjadals hófst á sumardaginn fyrsta. Söfnunin er liður í umfangsmikilli uppbyggingu á svæðinu þar sem stefnt er að því að reisa nýjan og glæsilegan matsal með eldhúsi og bættri aðstöðu.

10:16·5 d. síðan
Austurfrétt
Hafa áætlað drög að eignamörkum tæplega 1200 jarða á Norðaustur- og Austurlandi

Starfsfólk Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) hefur um hríð unnið að því að áætla eignamörk jarða í landinu þar sem hnitsett afmörkun liggur ekki fyrir. Nú hefur stofnunin birt drög að eignamörkum alls 1.160 jarða á Norðaustur- og Austurlandi.

10:15·5 d. síðan
Morgunblaðið
Fundað um hagræðingaraðgerðir á lokuðum fundi

Lokaður borgarstjórnarfundur hófst klukkan átta í morgun í Ráðhúsi Reykjavíkur.

10:04·5 d. síðan
Vísir
Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi

Karlmaður hefur verið ákærður fyrir tvö manndráp af gáleysi með því að valda banaslysi á Suðurlandsvegi við Skaftafell í janúar 2024. Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Austurlands eftir viku.

10:02·5 d. síðan
Morgunblaðið
Vill að stigið verði varlega til jarðar

„Svona hugmynd þarf að rýna vel, meta hversu ákjósanleg hún er og hvaða áhrif hún hefur á aðra heilbrigðisþjónustu,“ segir Runólfur Pálsson forstjóri Landspítalans um nýjan einkarekinn spítala í gamla Landsvirkjunarhúsinu við Háaleitisbraut.

10:00·5 d. síðan
RÚV
Undirbúa leitina að Lúðvík

Unnið var að því í morgun að tryggja aðstæður í Grindavík þar sem leita á að líki Lúðvíks Péturssonar í dag. Lúðvík féll í sprungu í janúar 2024 þegar hann vann að uppfyllingu við einbýlishús eftir hamfarir í bænum. Sigmenn ætla að fara niður í sprunguna í dag og leita Lúðvíks. Í gær hófst vinna á vettvangi við að afma

09:58·5 d. síðan
DV
Önnur uppsagnahrina hjá Reykjavíkurborg í dag

Nú stendur yfir aukafundur borgarfulltrúa í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem verið er að ræða fleiri uppsagnir og hagræðingaraðgerðir hjá borginni. Samkvæmt heimildum DV verður aftur tugum starfsmanna sagt upp.

09:54·5 d. síðan
Austurfrétt
Fjarðabyggð hættir rekstri eigin rafhleðslustöðva

Þær rafhleðslustöðvar sem sveitarfélagið Fjarðabyggð setti upp á sínum tíma og hefur rekið síðan verða aflagðar samkvæmt ákvörðun skipulags- og framkvæmdanefndar. Búnaður þeirra stöðva orðinn úreltur og þær að mestu hættar að virka og skila tekjum.

09:40·5 d. síðan
DV
Heidi Klum tísar furðulegan hrekkjavökubúning sinn

Fyrirsætan Heidi Klum er löngu byrjuð að undirbúa árlegt hrekkjavökupartí sitt og hefur nú gefið fylgjendum sínum vísbendingu um búninginn í ár. Fylgjendur hennar klóra sér líklega margir í hausnum yfir vísbendingunni.

09:30·5 d. síðan
Morgunblaðið
Leit hafin að líkamsleifum Lúðvíks

Klukkan 9 í morgun hófst leit að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar, sem féll niður um jarðfall við vinnu í Grindavík í janúar 2024, en fjölskylda Lúðvíks hefur lagt ríka áherslu á að líkamsleifar hans verði sóttar.

09:23·5 d. síðan
Sunnlenska
Brúargólfið dregið yfir á næstu dögum

Undirbúningur fyrir einn stærsta áfanga við byggingu nýrrar Ölfusárbrúar stendur nú yfir. Á næstu dögum verður 330 metra langt og um 2.000 tonna þungt brúargólf dregið frá austurbakka Ölfusár yfir á vestari bakkann. Verkið er vandasamt og gert er ráð fyrir að það taki um tíu daga. Undanfarið hefur verið unnið að því að

09:19·5 d. síðan
Morgunblaðið
Sakaður um að vanvirða Yamal

Thierry Henry, fyrrverandi leikmaður Arsenal og Barcelona, hefur sætt gagnrýni á samfélagsmiðlum eftir að hafa grínast við Lamine Yamal á Ballon d'Or-verðlaunahátíðinni í London í gær.

09:15·5 d. síðan
DV
Patrekur Jaime sannar að hann sé Heidi Klum Íslands, Sjáðu búninginn

Áhrifavaldurinn Patrekur Jaime sýnir að hann sé Heidi Klum Íslands annað árið í röð.Ofurfyrirsætan Heidi Klum er sannkölluð drottning hrekkjavökunnar en ár hvert toppar hún sig í búningi. Allir bíða spenntir eftir að sjá hvað hún gerir næst.

09:13·5 d. síðan
1…282930…50

Síða 29 af 50 · 2000 fréttir

Mest lesið

  1. 1

    1. Einn látinn eftir stunguárás í Breiðholti í nótt

    DV·30 mín. síðan

  2. 2

    2. Andlát í Breiðholti til rannsóknar

    Vísir·14 mín. síðan

  3. 3

    3. Piers Morgan baunar á Carragher

    Vísir·37 mín. síðan

  4. 4

    4. Ótrúlegur árangur gegn City

    Morgunblaðið·2 klst. síðan

  5. 5

    5. Hörður Snævar og Jói Hreiðars stýra Dalvíkingum

    Fótbolti.net·3 klst. síðan

Nýtt.is

Nýjustu fréttirnar af öllum helstu fréttavefum á Íslandi á einum stað.

Flokkar

  • Viðskipti
  • Íþróttir
  • Lífið
  • Menning
  • Tækni
  • Veður

Málefni

  • Íslenskt efnahagslíf
  • Húsnæðismarkaður
  • Vextir
  • Verðbólga
  • Alþingi
  • Ríkisstjórnin
  • Orkumál
  • Gervigreind
  • Íslensk fyrirtæki
  • Ferðaþjónusta

Vefurinn

  • Um Nýtt
  • Hafðu samband
  • Auglýsingar
  • Skilmálar
  • Spurt og svarað
  • Persónuvernd
  • Kvikar

Fáðu nýjasta fréttastrauminn

Þú getur afskráð þig hvenær sem er.

© 2026 Nýtt.is. Allur réttur áskilinn.Fréttir eru sóttar frá viðkomandi miðlum og hlekkjað er á upprunann.