Fótbolti.isAllar fótboltafréttir á einum stað

Fótboltafréttir · síða 10

433
Rooney skellti í fernu fyrir United í gær, Gæti hann fengið tækifæri á næstunni?

Kai Rooney, sonur Wayne Rooney, fór á kostum með U18 ára liði Manchester United þegar liðið vann stórsigur á Burnley um helgina.United vann leikinn 6-0 og skoraði Kai fjögur mörk með glæsilegri frammistöðu sem hefur vakið mikla athygli á Englandi.

21:00·3 d. síðan
Fótbolti.net
Fylkir staðfestir brotthvarf Heimis

Fylkir staðfesti í kvöld að Heimir Guðjónsson hafi látið af störfum sem þjálfari meistaraflokks karla. Hann er á leiðinni að taka við ÍA og er búist við að Skagamenn staðfesti ráðninguna á næstu dögum.

20:59·3 d. síðan
Vísir
Heimir farinn frá Fylki

Heimir Guðjónsson er hættur sem þjálfari Fylkis í Lengjudeild karla í fótbolta en þetta gaf Árbæjarfélagið út í kvöld.

20:55·3 d. síðan
Morgunblaðið
Heimir hættur hjá Fylki og tekur við ÍA

Knattspyrnuþjálfarinn Heimir Guðjónsson mun taka við liði ÍA í Bestu deild karla í fótbolta og er hættur stöfum hjá B-deildarliði Fylkis í Árbænum.

20:55·3 d. síðan
Fótbolti.net
Kompany kominn heim og orsök veikindanna fundin

Belgíski þjálfarinn Vincent Kompany hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi, en þetta staðfesti Max Eberl, yfirmaður íþróttamála hjá Bayern München, í kvöld.

20:50·3 d. síðan
DV
Heimir og Fylkir rifta samningi, Segja kjaftasögur síðustu vikna hafa orðið til þess

Knattspyrnudeild Fylkis og Heimir Guðjónsson hafa komist af samkomulagi um að Heimir láti af störfum sem aðalþjálfari meistaraflokks karla frá og með deginum í dag.

20:45·3 d. síðan
Morgunblaðið
„Maður virðist tala fyrir daufum eyrum“

Eggert Valur Guðmundsson, oddviti Rangárþings ytra, segir álftir valda kornbændum gríðarlegu tjóni og gagnrýnir að ekki sé tekið nægilegt mark á vandanum. Bændasamtökin þurfi að taka málið til alvarlegrar skoðunar.

20:45·3 d. síðan
433
Uppljóstrar um kynlíf með miklum Íslandsvini í vatnsrúmi, „Þetta var eins og draumur“

Selma Fonseca, ljósmyndari og rithöfundur, hefur opnað sig um ástarsamband sitt við brasilísku knattspyrnugoðsögnina Pelé, sem lést árið 2022, 82 ára að aldri.

20:30·3 d. síðan
Morgunblaðið
Skoraði fyrsta deildarmark sitt

Daníel Tristan Guðjohnsen skoraði fyrsta deildarmark sitt fyrir Malmö í 3:0-útisigri liðsins á Halmstad í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

20:30·3 d. síðan
Fótbolti.net
Evrópubikarinn: Hlín kom við sögu í sterkum sigri Malmö

Hlín Eiríksdóttir kom við sögu hjá Malmö sem vann góðan 2-1 útisigur á hollenska stórliðinu Ajax í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópubikarsins í kvöld.

20:24·3 d. síðan
Vísir
Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki

Daníel Tristan Guðjohnsen skoraði eitt marka Malmö í 3-0 útisigri á Halmstad í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

20:16·3 d. síðan
Fótbolti.net
Langþráð mark hjá Daníel Tristani

Daníel Tristan Guðjohnsen skoraði sitt fyrsta deildarmark á tímabilinu þegar Malmö vann 3-0 sigur á Halmstad í 26. umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í dag.

20:12·3 d. síðan
433
Sigurður Arnar mættur til Vals

Knattspyrnudeild Vals hefur gert þriggja ára samning við miðvörðinn Sigurð Arnar Magnússon og gildir hann út tímabilið 2029.

20:05·3 d. síðan
Morgunblaðið
Ekki áfram í Kaplakrika

Arnór Borg Guðjohnsen verður ekki áfram í herbúðum FH í Bestu deild karla í fótbolta en þetta tilkynnti félagið í dag.

20:05·3 d. síðan
Fótbolti.net
Ítalía: Skoraði þrennu gegn Milan á San Siro, Tvö sjálfsmörk tryggðu meisturunum sigur

Þremur leikjum var að ljúka í níundu umferð ítölsku Seríu A í kvöld, en það voru skin og skúrir hjá Mílanó-liðunum.

20:03·3 d. síðan
433
Goðsögn hjá United segir Bruno að fara til Sádí Arabíu, Enginn geti treyst honum aftur

Paul Scholes, fyrrum miðjumaður Manchester United, hefur gagnrýnt Bruno Fernandes harðlega eftir að Portúgalinn lét orð falla um Michael Carrick, knattspyrnustjóra liðsins.Fernandes gagnrýndi leikaðferð Carrick eftir 4-1 tap United gegn Como í Meistaradeildinni í síðustu viku.

20:00·3 d. síðan
Fótbolti.net
Meistaradeild kvenna: Glódís og Bayern komu til baka gegn Real Madrid

Þýskalandsmeistarar Bayern München komu til baka eftir að hafa lent tveimur mörkum undir og gerðu 2-2 jafntefli við Real Madrid í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvennaflokki í kvöld.

19:42·3 d. síðan
Morgunblaðið
Kristall á skotskónum í bikarsigri Brann

Kristall Máni Ingason skoraði fyrra mark Brann í 2:0-útisigri á Grorud í norsku bikarkeppninni í fótbolta í kvöld.

19:40·3 d. síðan
Vísir
Liverpool, Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum

Hér fer fram textalýsing frá leik Liverpool og Chelsea í fjórðu umferð ensku deldarbikarsins. Flautað verður til leiks á Anfield klukkan 20:00. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay.

19:33·3 d. síðan
433
Mbappe og spænski boltinn í veseni í Kína eftir mynd af einræðisherra

Kylian Mbappé, stórstjarna Real Madrid, hefur komið sér í vandræði eftir umdeildan brandara um Mao Zedong, fyrrverandi leiðtoga Kína.Myndband hefur farið á flug á samfélagsmiðlum þar sem Mbappé er spurður út í fyndnustu myndina sem hann hefur séð af sjálfum sér á internetinu.

19:30·3 d. síðan
Morgunblaðið
Viðar Ari hetjan í bikarsigri gegn Frey

Viðar Ari Jónsson skoraði sigurmarkið í 2:1-útisigri HamKam á Rosenborg í norsku bikarkeppninni í fótbolta í kvöld.

19:30·3 d. síðan
Fótbolti.net
Viðar Ari skoraði sigurmarkið og sló Frey og félaga úr bikarnum

Viðar Ari Jónsson var hetja Ham/Kam þegar liðið vann 2-1 sigur á Rosenborg, sem Freyr Alexandersson stýrir, í 32-liða úrslitum norska bikarsins í kvöld.

19:28·3 d. síðan
Vísir
Elvar með stórleik í Evrópukeppninni

Íslenski landsliðsbakvörðurinn Elvar Már Friðriksson átti frábæran leik með litháenska liðinu Neptunas Klaipeda í Evrópubikarnum í kvöld.

19:13·3 d. síðan
Vísir
Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum

Viðar Ari Jónsson var hetja Hamarkameratene í norsku bikarkeppninni í kvöld þegar liðið vann Rosenborg á útivelli.

19:07·3 d. síðan
Fótbolti.net
Evrópubikarinn: Íslendingaliðin í góðri stöðu

Íslendingaliðin Brann og Hammarby eru komin með annan fótinn í 8-liða úrslit Evrópubikarsins.

19:03·3 d. síðan
433
Samtal þessara manna varð til þess að Carrick var ekki rekinn á mánudag

Michael Carrick verður áfram knattspyrnustjóri Manchester United, að minnsta kosti í bili, eftir miklar vangaveltur um framtíð hans undanfarna daga.

19:00·3 d. síðan
Fótbolti.net
Byrjunarlið Liverpool og Chelsea: Rándýr bekkur hjá heimamönnum

Liverpool tekur á móti Chelsea á Anfield í 16-liða úrslitum enska deildabikarsins í kvöld, en leikurinn hefst klukkan 20:00.

18:58·3 d. síðan
Morgunblaðið
Yfirgefur Keflavík eftir fimm ár

Ásgeir Páll Magnússon varnarmaður Keflavíkur í Bestu deild karla í fótbolta hefur yfirgefið liðið og hyggst flytja erlendis.

18:50·3 d. síðan
Fótbolti.net
Burnley komið með nýjan stjóra (Staðfest)

Enska B-deildarfélagið Burnley hefur ráðið svissneska þjálfarann Fabio Celestini sem nýjan stjóra liðsins, en félagið staðfesti ráðninguna í kvöld.

18:46·3 d. síðan
Fótbolti.net
Byrjunarliðin í deildabikarnum: Níu breytingar hjá Man City, Hákon í markinu hjá Brentford

Sextán liða úrslit enska deildabikarsins halda áfram í kvöld, en Manchester City tekur á móti Brighton klukkan 19:30 og þá hefjast þrír leikir klukkan 19:45.

18:37·3 d. síðan
433
Gylfi Þór opinberar óvænt skipti sem komu til tals fyrir þremur árum, „Eggert reyndi að selja mér draum“

Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Víkings, var árið 2024 í samtali við KFA sem þá lék í 2. deild karla. Eggert Gunnþór Jónsson, þá spilandi aðstoðarþjálfari liðsins, reyndi að sannfæra Gylfa um að flytja austur á land.

18:30·3 d. síðan
Morgunblaðið
Eyjamaðurinn semur við Val

Varnarmaðurinn öflugi Sigurður Arnar Magnússon sem hefur leikið með ÍBV allan sinn ferli hefur skrifað undir þriggja ára samning við Val í Bestu deild karla í fótbolta.

18:25·3 d. síðan
Fótbolti.net
Barcelona ætlar að reyna aftur við Bergvall

Spánarmeistarar Barcelona ætla að freista þess að fá sænska miðjumanninn Lucas Bergvall til félagsins, en hann er á mála hjá Tottenham á Englandi.

18:23·3 d. síðan
Fótbolti.net
Segir áfrýjun Arsenal vonlausa

Fyrrum úrvalsdeildardómarinn Dermot Gallagher telur ólíklegt að Arsenal hafi erindi sem erfiði með áfrýjun sína vegna rauða spjaldsins sem hinn 16 ára gamli Max Dowman fékk í tapinu gegn Fleetwood Town í enska deildabikarnum í gær.

18:13·3 d. síðan
433
Yamal óskaði sigurvegurum til hamingju en nefndi Kane ekki á nafn

Lamine Yamal, leikmaður Barcelona, hefur loks óskað sigurvegurum Gullboltans til hamingju eftir að Harry Kane, framherji Bayern München, hreppti verðlaunin á mánudagskvöldið.

18:00·3 d. síðan
Fótbolti.net
Lindelöf áfram hjá Aston Villa

Sænski varnarmaðurinn Victor Lindelöf verður áfram hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Aston Villa, en frá þessu greinir sænski miðillinn Expressen.

18:00·3 d. síðan
Morgunblaðið
Markvörður Eyjamanna kveður fótboltann

Markvörðurinn Guðný Geirsdóttir sem leikið hefur með ÍBV í Bestu deild kvenna í fótbolta hefur ákveðið að leggja hanskana á hilluna.

18:00·3 d. síðan
Vísir
Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val

Valsmenn hafa gengið frá þriggja ára samningi við miðvörðinn Sigurð Arnar Magnússon eða fyrir tímabilin 2027, 2028 og 2029.

17:51·3 d. síðan
Fótbolti.net
Kompany fór úr axlarlið

Vincent Kompany, þjálfari Bayern München í Þýskalandi, er enn á sjúkrahúsi þar sem hann gengst undir rannsóknir eftir að hafa hnigið niður á æfingasvæði félagsins á dögunum.

17:43·3 d. síðan
Fótbolti.net
Sigurður Arnar í Val (Staðfest)

Miðvörðurinn Sigurður Arnar Magnússon er formlega genginn í raðir Vals en hann kemur frá ÍBV og skrifar undir samning út tímabilið 2029. Þessi 27 ára varnarmaður kemur til Vals á frjálsri sölu en samningur hans rennur út um miðjan næsta mánuð. „Sigurður Arnar er flottur karakter, gríðarlega duglegur og vinnusamur. Hann

17:40·3 d. síðan

40 fréttir birtar

Hlaða fleiri fréttum
1…91011…33

Síða 10 af 33 · 1314 fréttir

Heitast í boltanum

  1. 1

    1. Manchester City, Brighton | Stórleikur í Manchester-borg

    Vísir·6 mín. síðan

  2. 2

    2. Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick?

    Vísir·9 mín. síðan

  3. 3

    3. Gylfi tekur við Víkingi

    Morgunblaðið·9 mín. síðan

  4. 4

    4. England: Chelsea afgreiddi Man Utd í síðari hálfleik, Martínez brást liðsfélögunum

    Fótbolti.net·9 mín. síðan

  5. 5

    5. Jón Dagur lagði upp í stórsigri

    Morgunblaðið·34 mín. síðan

Fótbolti.is

Allar fótboltafréttirnar af helstu íþróttamiðlum landsins á einum stað.

  • Hafðu samband
  • Auglýsingar
  • Skilmálar
  • Persónuvernd
© 2026 Fótbolti.is. Allur réttur áskilinn.Fréttir eru sóttar frá viðkomandi miðlum og hlekkjað er á upprunann.