Fótbolti.isAllar fótboltafréttir á einum stað

Fótboltafréttir · síða 18

Fótbolti.net
Heimsmeistarinn De la Fuente þjálfari ársins

Luis de la Fuente, landsliðsþjálfari Spánar, hefur verið kjörinn þjálfari ársins á Ballon d'Or verðlaunahátíðinni. Þessi 65 ára gamli Spánverji tók við spænska landsliðinu árið 2022 og stýrði liðinu til sigurs á EM 2024 og fylgdi því eftir með sigri á HM í sumar eftir sigur á Argentínu í úrslitum.

21:26·5 d. síðan
Morgunblaðið
Besti ungi leikmaðurinn þriðja árið í röð

Knattspyrnumaðurinn Lamine Yamal leikmaður Barcelona á Spáni var valinn besti ungi leikmaðurinn á Ballon d'Or-verðlaunahátíðinni í London. Vicky López sem einnig leikur með Barcelona vann verðlaunin í kvennaflokki.

21:15·5 d. síðan
Vísir
Barcelona á bæði bestu ungstirnin

Spánverjinn Lamine Yamal hlaut í kvöld Kopa-verðlaunin sem besti ungi fótboltamaður heims, þriðja árið í röð, á Ballon d'Or-verðlaunahófinu í London. Vicky López, sem líkt og Yamal leikur með Barcelona og spænska landsliðinu, hlaut verðlaunin í kvennaflokki.

21:08·5 d. síðan
Fótbolti.net
Yamal ungi leikmaður ársins þriðja árið í röð

Lamine Yamal hefur hlotið verðlaunin ungi leikmaður ársins þriðja árið í röð á Ballon d'Or hátíðinni sem haldin er í Lundúnum í kvöld. Yamal átti stórkostlegt ár en þessi 19 ára gamli sóknarmaður vann deildina með Barcelona og varð heimsmeistari með Spáni.

21:03·5 d. síðan
Fótbolti.net
Opinberuðu óvart greinar um mögulega sigurvegara

Heimasíða Ballon d'Or birti þrjár greinar þar sem Harry Kane, Lamine Yamal og Kylian Mbappe voru tilkynntir sem sigurvegarar.

20:55·5 d. síðan
Fótbolti.net
Rauði dregillinn í myndum, Yamal og blómið stálu senunni

Ballon d'Or gullboltaathöfnin er hafin í Palladium-leikhúsinu í Lundúnum. Veðbankar telja Harry Kane, markahrók Bayern München og fyrirliða enska landsliðsins, vera sigurstranglegastan. Fræga og ríka fólkið lét sig ekki vanta á rauða dregilinn fyrir athöfnina og ljósmyndarar kepptust um að mynda fólkið.

20:53·5 d. síðan
Morgunblaðið
Þrír sagðir hafa unnið Gullboltann

Greinar um sigurvegara gullboltans, besta knattspyrnumann og konu heims, fóru í dreifingu á net og samfélagsmiðlum í dag.

20:35·5 d. síðan
433
Svona græddi maðurinn yfir 150 milljónir, Greinir frá því í hvað hann ætlar að nota peninginn

45 ára gamall karlmaður frá Portsmouth á Englandi vann tæplega eina milljón punda á veðmáli á dögunum eftir að hafa lagt aðeins fjögur pund undir, eða um 700 íslenskar krónur.

20:30·5 d. síðan
Fótbolti.net
Carrick stýrir æfingu á morgun

Framtíð Michael Carrick, stjóra Man Utd, hangir á bláþræði eftir tap liðsins gegn Bournemouth um helgina. Carrick mætti á Carrington-æfingasvæði liðsins til að fylgjast með U21 liðinu spila gegn Hull fyrir luktum dyrum.

20:30·5 d. síðan
Morgunblaðið
Á leið í Garðabæinn

Sóknarmaðurinn Bergvin Fannar Helgason er á leið til Stjörnunnar í Bestu deild karla í fótbolta frá ÍR.

20:30·5 d. síðan
Vísir
Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir

Íslendingaliðið FC Kaupmannahöfn varð að sætta sig við 1-1 jafntefli við OB á heimavelli í kvöld í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta og mistókst þar með að endurheimta toppsætið.

20:08·5 d. síðan
Fótbolti.net
Var áfram hjá Athletic Bilbao þrátt fyrir áhuga stórliða, „Efaðist aldrei"

Nico Williams, leikmaður Athletic Bilbao, var sterklega orðaður við Barcelona í sumar en hann var harður á því að vera áfram í Bilbao. „Ég efaðist aldrei um að vera hér. Ég fékk óteljandi tilboð í sumar og undanfarin ár en ég vil vera hér," sagði Williams.

20:06·5 d. síðan
Morgunblaðið
Mistókst að komast á toppinn

FC Köbenhavn gerði 1:1 jafntefli við OB í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Kaupmannahafnarliðið hefði komist á toppinn með sigri en er nú tveimur stigum á eftir Midtjylland þar sem markvörðurinn Elías Rafn Ólafsson spilar.

20:05·5 d. síðan
Fótbolti.net
Sjáðu markið: Stórbrotið sigurmark Mikaels Egils

Landsliðsmaðurinn Mikael Egill Ellertsson skoraði stórkostlegt sigurmark fyrir Genoa þegar liðið lagði hans gömlu félaga í Venezia að velli, 1-0, í ítölsku Seríu A í gær. Stephan El Shaarawy fann Mikael sem þrumaði boltanum fyrir utan teig í samskeytin og Filip Stankovic átti enga möguleika í marki Venezia. Mikael kaus

20:00·5 d. síðan
Vísir
Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis

Andri Lucas Guðjohnsen hefur farið á kostum með Blackburn á yfirstandandi leiktíð og er næstmarkahæstur allra í ensku B-deildinni í fótbolta. Aðdáendur geta nú fengið treyju merkta honum á sérkjörum hjá félaginu.

19:30·5 d. síðan
433
Hörmungar leikmanns Liverpool halda áfram, Fær á baukinn eftir helgina

Harvey Elliott, leikmaður Liverpool sem er á láni hjá Valencia, fær harða gagnrýni í spænskum fjölmiðlum eftir að hafa fengið rauða spjaldið í 2-1 tapi gegn Villarreal um helgina.

19:30·5 d. síðan
Fótbolti.net
„Kane mun aldrei eiga betri möguleika"

Það kemur í ljós í kvöld hver mun hreppa Ballon d'Or gullboltann en veðbankar telja að Harry Kane muni vinna. Athöfnin fer fram í Lundúnum í kvöld. Spænski fréttamaðurinn ræddi við enska fyrrum framherjann Alan Shearer sem vonar að landi sinn vinni verðlaunin.

19:30·5 d. síðan
Morgunblaðið
Ákvörðun sem hefur neikvæð áhrif á kvennaknattspyrnuna

KFA (Knattspyrnufélag Austfjarða) hefur sent frá sér tilkynningu í kjölfar þess að Höttur sleit sig frá samstarfi undir merkjum FHL í kvennaknattspyrnu.

19:15·5 d. síðan
Fótbolti.net
Yfirlýsing KFA: Harma ákvörðun Hattar

Höttur sendi KFA bréf á dögunum og óskaði eftir því að slíta samstarfi um rekstur FHL sem endaði í 6. sæti Lengjudeildar kvenna í sumar. KFA hefur nú sent frá sér yfirlýsingu þar sem ákvörðun Hattar er hörmuð.

19:00·5 d. síðan
Morgunblaðið
Sakar leikmenn United um ófagmennsku

Gary Neville, fyrrverandi leikmaður Manchester United og sérfræðingur Sky Sports, gagnrýndi leikmenn liðsins harðlega eftir 3:0-tap gegn Bournemouth á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær.

18:50·5 d. síðan
433
Gylfi Þór viðurkennir að hafa verið pirraður út í Sölva, „Hefði ekkert gert útslagið“

Það vakti athygli um mitt sumar þegar Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Íslandsmeistara Víkings, ákvað að gera margar breytingar á liði sínu fyrir undanúrslitaleik gegn Breiðabliki í bikarnum. Gylfi Þór Sigurðsson, besti leikmaður liðsins, viðurkennir að þetta hafi farið í taugarnar á sér.

18:30·5 d. síðan
Fótbolti.net
Brynjar og Elías Karl framlengja á Selfossi

Brynjar Bergsson og Elías Karl Cooper Heiðarsson hafa skrifað undir nýja tveggja ára samninga við Selfoss.

18:30·5 d. síðan
Fótbolti.net
Hallgrímur Mar: KA mun rísa aftur

KA féll úr Bestu deildinni eftir dramatíska lokaumferð um helgina. KA hafði spilað í efstu deild samfleytt frá 2017 og fagnaði bikarmeistaratitlinum árið 2024. KA vann öruggan sigur á ÍBV en þurfti að treysta á FH-inga gegn grönnum sínum í Þór. Það gekk ekki eftir þar sem Þór fór með sigur af hólmi og nýliðarnir björgu

18:00·5 d. síðan
Morgunblaðið
Gæti farið í ævintýri til Ástralíu

Adam Ægir Pálsson gæti verið á förum frá KA en liðið féll úr Bestu deild karla í fótbolta í fyrradag.

17:35·5 d. síðan
433
Áfram horfir United til City

Manchester United hefur áhuga á að fá Rayan Ait-Nouri, vinstri bakvörð Manchester City, til félagsins í janúar. Alsíringurinn hefur átt erfitt með að festa sig í sessi hjá City og gæti verið fáanlegur á láni.

17:30·5 d. síðan
Fótbolti.net
Jakob áfram hjá Þrótti (Staðfest), Önnur félög sýndu áhuga

Unglingalandsliðsmaðurinn Jakob Ocares Kristjánsson hefur skrifað undir endurnýjun á samningi við Þrótt en fyrri samningur hefði runnið út í lok árs. Jakob er uppalinn Þróttari, fæddur 2009, og var með lausan samning. Miðjumaðurinn var í risastóra slúðurpakkanum orðaður við bæði Þór og Val en hann hélt tryggð við uppel

17:25·5 d. síðan
Fótbolti.net
Mikið gert til að halda niðurstöðunni leyndri fram á síðustu stundu

Sigurvegari Ballon d'Or gullboltans verður tilkynntur í London í kvöld. Veðbankar telja Harry Kane, markahrók Bayern München og fyrirliða enska landsliðsins, vera sigurstranglegastan. Spænski kantmaðurinn Lamine Yamal og franski sóknarmaðurinn Kylian Mbappe koma þar á eftir, og svo Lionel Messi. Mirror segir að fólkið

17:23·5 d. síðan
Morgunblaðið
Gullboltinn afhentur í kvöld

Gullboltinn sem bestu leikmenn ársins í karla- og kvennaknattspyrnu hljóta verður afhentur við hátíðlega athöfn í Lundúnum í kvöld.

17:10·5 d. síðan
Fótbolti.net
Niko Hansen fengið þau skilaboð að hann megi líta í kringum sig

Það hefur kvisast út að danski markaskorarinn Nikolaj Hansen hafi fengið þau skilaboð frá Víkingi að hann yrði líklega ekki í stóru hlutverki í liðinu á næsta tímabili. Hann er með áframhaldandi samning við Víking en hann hefur fengið leyfi til að kanna landið og skoða aðra möguleika. Þetta staðfestir hann í samtali vi

16:58·5 d. síðan
433
Dyche líklegastur til að taka við

Pierre Sage, stjóri Crystal Palace, er ansi valtur í sessi eftir slæmt gengi liðsins. Palace tapaði 2-0 gegn Newcastle í gær og er aðeins einu stigi frá fallsæti í ensku úrvalsdeildinni.

16:30·5 d. síðan
Morgunblaðið
Þurfti 50 spor eftir hundaárás

Jermaine Pennant, fyrrverandi leikmaður í ensku úrvalsdeildinni, þurfti að láta sauma yfir 50 spor eftir að schäfer-hundur réðst á hann.

16:20·5 d. síðan
Fótbolti.net
Bjarki Björn gæti yfirgefið ÍBV

Bjarki Björn Gunnarsson gæti yfirgefið ÍBV í vetur en hann vill samkvæmt heimildum Fótbolta.net spila í efstu deild. ÍBV féll úr Bestu deildinni á nýliðnu tímabili. Bjarki Björn er fæddur árið 2000, er fjölhæfur leikmaður sem getur bæði spilað miðsvæðis og á kantinum. Hann er uppalinn Víkingur en var keyptur til Eyja u

16:12·5 d. síðan
Vísir
Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona

José Mourinho, þjálfari Real Madrid, segir sigur gærkvöldsins á Barcelona í El Clasico-slagnum á Nou Camp duga skammt. Hann stefnir hærra.

16:02·5 d. síðan
433
Endalaus eyðimerkurganga Manchester United, Þetta er upphæðin sem hefur farið í stjóraskipti frá brotthvarfi Ferguson

Manchester United hefur eytt gríðarlegum fjárhæðum í að losa sig við knattspyrnustjóra síðan Sir Alex Ferguson hætti árið 2013. Nú er útlit fyrir að enn ein uppsögnin sé fram undan eftir 3-0 tap liðsins gegn Bournemouth í gær og hörmulega byrjun á leiktíðinni undir stjórn Michael Carrick.

15:30·5 d. síðan
Morgunblaðið
Rekinn fyrir ljótt atvik, kinnbeinsbraut dómara

Knattspyrnumaður frá Ekvador hefur verið rekinn frá félagi sínu eftir að hann kastaði steini í aðstoðardómara í leik í Ascenso Nacional, þriðju efstu deild landsins.

15:30·5 d. síðan
Fótbolti.net
Carrick mættur á æfingasvæðið

Michael Carrick, stjóri Manchester United, er á æfingasvæði félagsins. Hann mætti þangað til að horfa á U21-lið félagsins mæta Hull í í leik sem er leikinn bak við luktar dyr. Framtíð Carrick hangir á bláþræði. Sky Sports segir að framkvæmdastjórinn Omar Berrada og Jason Wilcox, yfirmaður fótboltamála, eru báðir á svæð

15:30·5 d. síðan
RÚV
Guðmundur Flóki vann silfur á sterku móti í Rúmeníu

Guðmundur Flóki Sigurjónsson vann til silfurverðlauna á alþjóðlega stigamótinu Dracula Open í taekwondo sem fram fór í Búkarest í Rúmeníu um helgina. Hann vann fjóra bardaga á leið sinni í úrslit í -87 kg flokki, meðal annars gegn tveimur keppendum sem hafa tekið þátt í Ólympíuleikum eða eru meðal tíu efstu á heimslist

15:29·5 d. síðan
Morgunblaðið
Verður áfram á Hlíðarenda

Sænski knattspyrnumaðurinn Albin Skoglund hefur framlengt samning sinn við Val til næstu tveggja ára.

15:05·5 d. síðan
Fótbolti.net
Fannst framkoman við Amin sorgleg

Amin Cosic varð á dögunum 19. Íslendingurinn til að spila í Meistaradeild karla er hann kom inn á sem varamaður hjá norska félaginu Viking gegn Aston Villa. Leið hans að þessum leik var ekki greið. Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 23. október á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistilinn í heild sinni er hægt að nál

15:00·5 d. síðan
Fótbolti.net
Svona gekk spáin í Bestu, KA og Stjarnan mestu vonbrigðin

Fyrir mót kynnti Fótbolti.net spá fréttamanna og sérfræðinga fyrir Bestu deild karla. Víkingur varð Íslandsmeistari og ÍBV féll eins og spáð var. Fram og Keflavík komu mest á óvart á jákvæðan hátt en mestu vonbrigðin voru hjá stjörnunni og KA.

14:45·5 d. síðan

40 fréttir birtar

Hlaða fleiri fréttum
1…171819…34

Síða 18 af 34 · 1337 fréttir

Heitast í boltanum

  1. 1

    1. Landsliðskonan á skotskónum

    Morgunblaðið·9 mín. síðan

  2. 2

    2. Njarðvík sagði upp samningi við Smit

    Vísir·21 mín. síðan

  3. 3

    3. Carrick reiknar með að halda starfinu

    Morgunblaðið·24 mín. síðan

  4. 4

    4. Byrjunarlið Aston Villa og Fulham: Goretzka byrjar

    Fótbolti.net·24 mín. síðan

  5. 5

    5. Ásdís Karen hélt uppteknum hætti

    Fótbolti.net·47 mín. síðan

Fótbolti.is

Allar fótboltafréttirnar af helstu íþróttamiðlum landsins á einum stað.

  • Hafðu samband
  • Auglýsingar
  • Skilmálar
  • Persónuvernd
© 2026 Fótbolti.is. Allur réttur áskilinn.Fréttir eru sóttar frá viðkomandi miðlum og hlekkjað er á upprunann.