
Fótboltafréttir · síða 32

Árni Snær Ólafsson, markvörður Stjörnunnar, mun leggja hanskana á hilluna eftir leik liðsins gegn Val í lokaumferð Bestu deildarinnar á laugardag. Árni hefur ekki sjálfur tilkynnt um ákvörðun sína en Stjarnan greindi frá því að hann og Guðmundur Kristjánsson myndu leika sína síðustu leiki á ferlinum á laugardag. Árni,

Aðeins rétt rúmlega 40.000 stuðningsmenn mættu á leik Manchester City og AEK frá Aþenu í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í vikunni.

„Við erum náttúrulega komnir í þá stöðu að þetta er ekki í okkar höndum eins og við myndum óska. Við erum bara fyrst og fremst að einbeita okkur að okkar verkefni og reynum að klára það með sæmd. Og síðan verðum við bara að vona það besta," segir Jakob Snær Árnason, leikmaður KA, fyrir lokaumferðina í Bestu deildinni.

Sergio Rico, fyrrum markmaður PSG, lenti í skelfilegu atviki fyrr í vikunni þegar vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili hans í Sevilla. Rico faldi sig inni á heimilinu með konu sinni, Alba Silva, og tveimur börnum.

Enski knattspyrnumaðurinn Fikayo Tomori er á óskalista enska úrvalsdeildarfélagsins Newcastle.

Það er Evrópuhlaðborð í dag en klukkan 16:45 hefst mikill fjöldi leikja í Evrópudeildinni og Sambandsdeildinni. Margir Íslendingar eru í eldlínunni.

Jordan Pickford, markvörður Everton, og eiginkona hans Megan lentu óvænt í óþægilegri stöðu þegar þau skelltu sér í rómantíska ferð til Parísar um helgina.

Það verður að teljast ólíklegt að ítalski knattspyrnustjórinn Antonio Conte taki við stjórnartaumunum hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Manchester United.

Það er sannkallaður lífsbaráttu-laugardagur fram undan þar sem lokaumferð Bestu deildarinnar verður spiluð. Bæði Akureyrarliðin berjast um eitt laust sæti í Bestu deildinni á næstu leiktíð. Þór er með örlögin í sínum eigin höndum og geta með sigri á FH tryggt sér áframhaldandi sæti í deildinni. KA tekur á sama tíma á m

Tryggvi Hrafn Haraldsson leikur sinn síðasta leik fyrir Val gegn Stjörnunni á laugardag. Eftir sex tímabil á Hlíðarenda heldur hann heim í ÍA. Valsarar kveðja Tryggva með færslu á Instagram með titlinum „Takk fyrir allt, Tryggvi Hrafn“. „Tryggvi hefur verið frábær liðsfélagi og fyrirmynd innan vallar sem utan og skilur

„Það er bara spenna, geggjað að fá að spila svona stóran leik. Það hefur verið nóg af stórum leikjum núna upp á síðkastið en þessi er nú aðeins stærri," segir Aron Birkir Stefánsson sem er fyrirliði Þórs. Á laugardag heimsækir Þór lið FH og með sigri mun Þór halda sæti sínu í deildinni. Á sama tíma tekur KA á móti ÍBV.

Virgil van Dijk átti ekki sinn besta leik fyrir Liverpool þegar liðið tók á móti Villarreal í 3. umferð Meistaradeildarinnar í fótbolta á Anfield á þriðjudaginn.

Brasilíski miðjumaðurinn Bruno Guimaraes segir að svefnlausar nætur og mörg tár hafi fylgt því þegar hann kvaddi Newcastle í sumar og gekk í raðir Arsenal.

Fabian Hurzeler, stjóri Brighton, hefur ekki áhuga á að taka við Manchester United ef félagið ákveður að reka Michael Carrick úr starfi.

Cesc Fabregas, knattspyrnustjóri Como, sagði leikmönnum sínum að slaka á og spara orkuna þegar síga fór á seinni hlutann í leik liðsins gegn Manchester United í 3. umferð Meistaradeildarinnar í gær.

Belgíski knattspyrnumaðurinn Thibaut Courtois vonast til þess að ljúka ferlinum hjá spænska stórveldinu Real Madrid.

Breska ríkisútvarpið greinir frá því að Manchester United sé byrjað að líta í kringum sig að kostum í stjórastólinn. Michael Carrick haldi þó áfram sínu starfi eins og ekkert hafi í skorist og búist sé við því að hann stýri liðinu gegn Bournemouth á sunnudaginn. Eddie Howe, Antonio Conte og Julian Naglesmann eru allir

Eftir hræðilegt 4-1 tap gegn Como í Meistaradeildinni í gær virðist aðeins tímaspursmál hvenær Michael Carrick verður látinn fara sem stjóri Manchester United. Skoðum þá tíu sem eru taldir líklegastir í starfið, hvað þeir hafa afrekað á sínum stjóraferli og hverju þeir myndu breyta hjá United.

Amin Cosic varð í gær nítjándi Íslendingurinn til að spila í Meistaradeild Evrópu. Sá fyrsti spilaði leik árið 1998. Menn hafa spilað mismikið í keppninni, flestir fyrir FCK, og flestir aðeins eina leiktíð.

Kyle Walker, fyrrverandi fyrirliði Manchester City, pirraði stuðningsmenn liðsins með ummælum sínum um mögulega refsingu félagsins vegna brota á fjármálareglum.

Enski knattspyrnumaðurinn Bukayo Saka haltraði af velli í gær þegar lið hans Arsenal heimsótti Bayern München í 3. umferð Meistaradeildarinnar í Þýskalandi.

Trent Alexander-Arnold hefur verið í takmörkuðu hlutverki hjá Real Madrid í upphafi tímabils. Hann var í gær ónotaður varamaður þriðja leikinn í röð. Hann virðist ekki vera í uppáhaldi hjá Jose Mourinho en enski bakvörðurinn hefur einungis spilað sex leiki af þrettán mögulegum það sem af er tímabils.

Manchester Evening News, staðarmiðillinn í Manchester, setti inn óformlega skoðanakönnun á vefmiðil sinn þar sem lesendur voru spurðir hvort Michael Carrick væri kominn á endastöð sem knattspyrnustjóri Manchester United.

Jamie Carragher fór hörðum orðum um Bruno Fernandes, fyrirliða Manchester United, eftir 4-1 tap liðsins gegn Como í Meistaradeildinni í gær.

Með nýrri síðu Fótbolti.net munum við gefa út nokkra skemmtilega fótboltaleiki sem verða eingöngu aðgengilegir fyrir áskriftarmeðlimi. Hins vegar verða þeir opnir öllum til að byrja með, svo allir fá að prófa.Þetta er einn af fimm leikjum sem hafa komið út. Í þessum leik færðu eitt lið á dag, sem spilaði einhvern leik,

Sænski knattspyrnumaðurinn Viktor Gyökeres hefur ekki átt fast sæti í byrjunarliði Arsenal í upphafi tímabilsins.

Landsliðsmarkvörðurinn Elías Rafn Ólafsson var ekki með íslenska landsliðinu í síðasta glugga vegna nýrnameiðsla sem hann varð fyrir með félagsliði sínu, Midtjylland í Danmörku. Hann meiddist í samstuði þegar hann var að grípa boltann í síðasta leik fyrir landsleikjagluggann og taldi að um meiðsli í rifbeini væri að ræ

Lokaumferð Bestu deildarinnar fer fram næstkomandi laugardag og hefst hún á slaginu 14:00. Mesta spennan er í neðri hlutanum en Akureyrarliðin tvö berjast fyrir lífi sínu í deildinni. Sú sviðsmynd gæti þó komið upp að lið í efri hlutanum endi með lakari árangur en lið sem myndi falla. Ef bæði KA og Þór vinna á laugarda

Belgíska knattspyrnusambandið hefur sagt Elísabetu Gunnarsdóttur upp störfum sem þjálfari kvennalandsliðsins.Belgar duttu úr leik gegn Póllandi í umspili um sæti á HM á dögunum og síðan hefur verið töluvert rætt og ritað um framtíð Elísabetar.

Chelsea leiðir kapphlaupið um enska knattspyrnumanninn Trent Alexander-Arnold.

Elísabet Gunnarsdóttir er hætt að þjálfa kvennalandslið Belgíu í fótbolta. Þetta kemur fram í tilkynningu frá belgíska knattspyrnusambandinu í dag. Elísabet tók við þjálfun Belga snemma á síðasta ári og stýrði liðinu meðal annars á Evrópumótinu 2025. Þar unnu Belgar sigur á Portúgal í riðlakeppninni en komust þó ekki u
Elísabetu Gunnarsdóttur hefur verið sagt upp störfum sem þjálfara belgíska kvennalandsliðsins í fótbolta.

Cristiano Ronaldo er langlaunahæsti knattspyrnumaður heims en Portúgalinn þénar tæplega 35 milljarða íslenskra króna á ári hjá Al Nassr.

Hinn 67 ára gamli Kevin Blackwell, fyrrum stjóri Leeds og Sheffield United, hefur tekið þjálfaramöppuna af hillunni og er orðinn bráðabirgðastjóri Crawley Town. Crawley situr í botnsæti ensku D-deildarinnar og rak stjórann Colin Kazim-Richards í gær. Blackwell hefur ekki verið í stjórastarfi á Englandi síðan hann stýrð

FH tekur á móti Þór á Kaplakrikavelli næstkomandi laugardag í lokaumferð Bestu deildarinnar. Þór er í harðri fallbaráttu við erkifjendurna í KA en örlögin eru í þeirra höndum. Með sigri í Kaplakrika tryggir liðið sér áframhaldandi sæti í Bestu deildinni á næsta tímabili. Í Innkastinu var velt því fyrir sér hvernig FH-i

Belgíska fótboltasambandið gaf það út í dag að Elísabet Gunnarsdóttir yrði ekki áfram þjálfari kvennalandsliðsins. Sambandið óskar Elísabetu góðs gengis á hennar næstu skrefum á ferlinum. Beta hefur stýrt belgíska liðinu frá því snemma á síðasta ári og stýrði liðinu á EM í fyrra. Liðið vann Portúgal í síðasta leik sínu

Knattspyrnumaðurinn fyrrverandi Matthías Vilhjálmsson segist ekki vera á leið í Stjörnuna líkt og haldið var fram í Stúkunni á Sýn Sport á dögunum.

Víkingur Reykjavík hefur verið langbesta lið Bestu deildarinnar á þessu tímabili og er þegar búið að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn, en liðið er með 63 stig, tíu stigum meira en KR í öðru sæti. Það er hins vegar ansi áhugavert að skoða hversu lítið Víkingar hafa treyst á unga leikmenn en þeir eru neðstir af öllum

Elías Rafn Ólafsson, landsliðsmarkvörður í fótbolta, fékk góðar fréttir í vikunni eftir að hafa fengið ávarka á nýra í leik með danska liðinu Midtjylland á móti OB í september. Hann segir óvissuna hafa verið talsverða undanfarnar vikur um hvort hann yrði frá í einn mánuð eða hálft ár en hann hafi þó aldrei fundið fyrir
40 fréttir birtar