
Allar fréttir
Allar nýjustu fréttir af öllum helstu miðlum landsins á einum stað. 5046 fréttir uppfærðar reglulega.
Nýjast fyrst · síða 124

„Það er ekkert að frétta. Við höfum fundað á þessum tíma sem var gefinn til að reyna að ná samkomulagi og sá tímafrestur er runninn út,“ segir Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjasambands Íslands, í samtali við mbl.is.

Michael Carrick verður áfram knattspyrnustjóri Manchester United þegar liðið mætir Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag, en vaxandi áhyggjur eru innan félagsins vegna slæms gengis liðsins.

Sérsveitin, stuðningsmannasveit Íslands í handbolta, hefur neyðst til að hætta við að mæta á HM karla í janúar. Kostnaði og miðamálum er um að kenna.

Máltækið segir að það sé einfalt að vera vitur eftirá. Þegar Íslendingar völdu að hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið eftir stórfellda lygaherferð nei hreyfingarinnar. Þá voru það ein af stærstu mistökum í sögu sjálfstæðis og fullveldis sögu Íslands.

Íbúar á Álftanesi hafa kært ákvörðun bæjarstjórnar Garðabæjar um að samþykkja byggingarleyfi vegna breytinga á húsnæði, á næstu landareign, í veislusal til útleigu, til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

Erik ten Hag fyrrum þjálfari Manchester United fór víðan völl í viðtali við The Athletic og ræddi meðal annars um söluna á miðjumanninum Scott McTominay, sem ólst upp hjá Man Utd frá sex ára aldri.

Hversu mikil fegurð rúmast á einu heimili?

Ekki kemur til greina að fresta innleiðingu nýs einkunnakvarða fyrir 10. bekk, segir Inga Sæland menntamálaráðherra. Til stendur að innleiða kvarðann á næsta ári. Hún segir að gagnrýni á fyrirkomulagið eigi rétt á sér, en sé þó stormur í vatnsglasi. Skólar þegar farnir að gefa einkunn í tölustöfum Nemendur í 10. bekk g
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, boðar gjörbreytta nálgun við byggingareftirlit til að fyrirbyggja byggingargalla og greina þá fyrr.

„Við viljum ekki að Ísland sé leikvöllur fyrir torfærutæki. Það sem gerðist síðasta sumar er auðvitað algjörlega óboðlegt þar sem ferðamenn fóru um víðan völl og ollu miklum skemmdum.“ Þetta segir Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Lögregla fær heimild til að leggja tímabundið hald á bíla se
Atlanta Falcons opinberaði nýtt merki á dögunum sem átti að vera kall til fortíðar (e. throwback) sem hefur hlotið gagnrýni, en aðallega grín. Merkið þykir minna á SS-sveitir nasista.

Íslenskt samfélag glímir samtímis við húsnæðisskort, vaxandi álag á heilbrigðisþjónustu og þrýsting á grunninnviði.

Suðuviðgerð á hreyfli lítillar flugvélar olli alvarlegri bilun sem neyddi flugmann hennar til að nauðlenda á Suðurlandsvegi við Heiðmörk í maí í fyrra. Þetta kemur fram í lokaskýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa

Fjögurra vikna frestur sem Icelandair og flugvirkjar gáfu sér til að ná nýjum kjarasamningi rann út á miðvikudag án þess að samningar næðust. Ekki hefur verið boðað til nýs fundar í deilunni en búist er við óformlegum samtölum í næstu viku.

KSÍ hefur gengið frá ráðningu Caroline VanSlambrouck sem aðalþjálfara U19 ára landsliðs kvenna. Samhliða því mun hún gegna hlutverki aðstoðarþjálfara U16 og U17 ára landsliða kvenna.

Kaldárbakkabúið er í fyrsta sinn á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki sem verður kynntur við hátíðlega athöfn í Hörpu miðvikudaginn 28. október. Með listanum er vakin athygli á fyrirtækjum sem skara fram úr í rekstri og uppfylla ströng skilyrði Creditinfo um fjárhagslegan styrk og stöðugleika.

„Það er smá eyðimerkurstemning yfir dagskrá þingsins þessa dagana,“ segir Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hún skrifaði pistil í Morgunblaðið í dag sem er að stærstum hluta auður flötur. „Ég held að pistill dagsins skýri sig sjálfur, bæði að efni og formi. Í raun er ég að benda á að það sé helst ti
Fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkar um rúm þrjú prósentustig milli kannana og fer úr 25,0 í 21,9 prósent, samkvæmt nýjustu könnun Maskínu. Greint var frá niðurstöðum könnunarinnar í hádegisfréttum Bylgjunnar. Samfylkingin nýtur sem fyrr mestra vinsælda af öllum stjórnmálaflokkum landsins. 28,6 prósent segjast myndu kjó
Wayne Rooney, fyrrverandi fyrirliði og goðsgön Manchester United, fór hörðum orðum um Bruno Fernandes og Lisandro Martinez fyrir að gagnrýna þjálfara og stjórnendur félagsins opinberlega.

Nýlegt myndband á TikTok hefur leitt í ljós að verslun á flugvelli hvetur viðskiptavini til að velja 18% þjórfé við sjálfsafgreiðslukassa. Dr. Clay Moss birti nýlega myndband á TikTok þar sem sjálfsafgreiðslukassi á flugvelli hvatti hann sjálfkrafa til að greiða þjórfé.

Með nýrri síðu Fótbolti.net munum við gefa út nokkra skemmtilega fótboltaleiki sem verða eingöngu aðgengilegir fyrir áskriftarmeðlimi. Hins vegar verða þeir opnir öllum til að byrja með, svo allir fá að prófa.Þetta er einn af fimm leikjum sem hafa komið út, en í þessum leik sérðu markafjölda leikmanns á ferlinum, og þú

Þorsteinn Már Baldvinsson ætlar að láta reyna á hæfi Jóhannesar Rúnars Jóhannssonar héraðsdómara, sem í gær sýknaði Seðlabankann af miskabótakröfu hans vegna varðveislu persónuupplýsinga. Náin tengsl hans við Steinar Þór Guðgeirsson, lögmann Seðlabankans, veki alvarlegar spurningar um hæfi hans.

Svona er sundlaugin engum til gagns. Mynd: Magnús Barðdal" /> Feykir sagði frá því að Skagfirsku sundmeyjarnar sem stóðu fyrir undirskriftum til að mótmæla lokun endurhæfingarlaugarinnar, hafi sent frá sér listann sem taldi 1232 manns, til allra helstu ráðamanna með kröfu um að lokunin verði dregin til baka.

Meghan Markle hefur tjáð sig vegna ásakana um vörslu barnakláms sem beint er að föður hennar, Thomas Markle eldri.

Icelandair var með varnir á hækkun eldsneytisverðs sem skiluðu því að eldsneytiskostnaður fyrirtækisins hækkaði aðeins um 11% á þriðja ársfjórðungi miðað við sama tímabil í fyrra, þrátt fyrir að verð á heimsmarkaði hafi meira en tvöfaldast.

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kallaði í gær út Björgunarfélag Akraness vegna vélarvana skútu sem var þá um tólf sjómílur vestur af Akranesi. Skútan hafði verið á siglingu í ellefu daga.

Fyrsti keppnisdagur af þremur á Íslandsmótinu í crossfit 2027 fór fram í gær, 22. október.

Þorsteinn Már Baldvinsson, fyrrverandi forstjóri Samherja, ætlar að láta reyna á hæfi héraðsdómarans Jóhannesar Rúnars Jóhannssonar, sem sýknaði Seðlabankann í gær af öllum kröfum Þorsteins Más. Hann telur dómarann vanhæfan vegna tengsla við lögmann Seðlabankans en þeir sátu saman í slitastjórn Kaupþings á sínum tíma.

Íbúar á landsbyggðinni hafa getað nýtt sér Loftbrú við kaup á flugi innanlands frá 2020. Hver og einn hefur átt rétt á sex flugleggjum á ári sem voru niðurgreiddir um 40% af ríkinu. Innviðaráðuneytið tilkynnti í dag breytingar á þessu fyrirkomulagi. Frá og með næstu áramótum verður föst krónutala niðurgreidd af hverju
Elín (Ella) Gränz hefur verið ráðin mannauðsstjóri Landsbankans og mun hefja störf í upphafi næsta árs. Hún hefur 25 ára reynslu af mannauðsmálum, rekstri og breytingastjórnun.

Elín Gränz hefur verið ráðin sem mannauðsstjóri Landsbankans. Hún starfar í dag sem mannauðsstjóri rekstrarsviðsins Meat & Prepared Foods hjá JBT Marel, með ábyrgð á mannauðsmálum í Evrópu og Norður-Ameríku en hefur störf hjá Landsbankanum í upphafi næsta árs.

Ónafngreindur starfsmaður sem lenti í hörðum orðaskiptum við yfirmann sinn og hótaði honum ofbeldi á vinnustað missti rétt sinn til launa síðasta mánuð uppsagnarfrests. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms …

Það er kostulegt að lesa nýlegan dóm Hæstaréttar í máli gegn fasteignafélaginu Heimum. Falleinkunn er rétta lýsingin á hrópandi dæmi um vanrækslu sem á ekki að þekkjast hjá félagi sem er metið á 63 milljarða króna á hlutabréfamarkaði.

Breiðablik verður með mikla sigurhátíð í kvöld er liðið tekur á móti Íslandsmeistaraskildinum eftir leik sinn við FH.

Sjálfstæðisflokkurinn tapar mesta fylgi allra flokka á milli mánaða í nýrri könnun Maskínu og er næst stærsti flokkurinn á eftir Samfylkingu. Fylgi annarra flokka breytist lítið sem ekkert. Stjórnmálafræðingur segir fylgistapið óvenjulegt þó varast þurfi að lesa of mikið í skoðanakannanir á miðju kjörtímabili. Áhrif br

Ónafngreindur starfsmaður sem lenti í hörðum orðaskiptum við yfirmann sinn og hótaði honum ofbeldi á vinnustað missti rétt sinn til launa síðasta mánuð uppsagnarfrests. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms …
Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, segir að niðurstöður úr nýrri reiknivél Framsóknarflokksins byggi á „snargölnum forsendum“.

Baunir færast úr aukahlutverki yfir á miðjan diskinn, beiskt bragð verður eftirsótt og japanskur huggunarmatur sækir í sig veðrið. Á sama tíma vilja neytendur vita nákvæmlega hvaðan maturinn kemur og sjá færri hráefni í innihaldslýsingum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í árlegri spá bandarísku matvöruverslanakeðjun

Þór heimsækir FH í lokaumferð Bestu deildarinnar á morgun og þar sem leikurinn er liður í lokaumferð deildarinnar þá má ekki treysta á flugsamgöngur á leikdegi. Þórsarar áttu bókað flug á laugardagsmorgun en urðu í vikunni að breyta ferðatilhugun sinni eftir að hafa verið minntir á reglur KSÍ.

40 fréttir birtar