
Allar fréttir
Allar nýjustu fréttir af öllum helstu miðlum landsins á einum stað. 5047 fréttir uppfærðar reglulega.
Nýjast fyrst · síða 14

Stjórnendur helstu fyrirtækja landsins þurfa að hætta að vorkenna sér og fyrirtækjunum sem þeir eru í forsvari fyrir og horfa fram á veginn. Það er einnig orðið hvimleitt hve mikill skætingur í garð ríkisstjórnarinnar heyrist jafnan frá þeim.

Pappírsrör, sem víða hafa komið í stað hefðbundinna plaströra í nafni umhverfisverndar, koma mun verr út en plaströr á ýmsum sviðum í nýrri rannsókn sem stjórnvöld í Suður-Kóreu létu gera.

Hvað gera hjartalæknar sjálfir til að halda hjartanu heilbrigðu og draga úr líkum á alvarlegum hjartasjúkdómum? Fjórir virtir sérfræðingar hafa deilt þeim venjum sem þeir leggja mesta áherslu á í daglegu lífi.

Karlmaður lést nýlega þegar hann datt ofan í gröf föður síns. Maðurinn var viðstaddur útför vinar síns í sama kirkjugarði og faðir hans hvílir í. Hann settist á legsteininn á leiði föður síns til að hvíla sig en jörðin gaf sig undan honum og hann datt ofan í gröf föður síns.

Það var mikil stemming á Selfossi í dag þar sem Íslandsmótið í Boccia fór fram.

Nýja Ölfusárbrúin er komin yfir ána. Færsla brúargólfsins gekk framar vonum því upphaflega var áætlað að það tæki allt að tíu daga að mjaka því yfir ána en það tókst á fimm dögum. Brúargólfið kom yfir ána um hádegi í dag. Enn á eftir að draga brúargólfið um þrjátíu metra til viðbótar til að klára verkið. Það verður ger
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í dag að hann hefði rætt við Sergej Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, á fundi G20-ríkjanna. Þeir hefðu rætt möguleg samskipti leiðtoga ríkjanna tveggja í næsta mánuði. „Við ræddum stuttlega þann möguleika að leiðtogar okkar ættu samskipti á fundi APEC í næsta mánuð
Hópur íbúa sem fluttur var frá borginni Oleskí í Kherson-héraði í Úkraínu kom til Tsjernihív-héraðs í norðurhluta Úkraínu í dag.

Málin eru til rannsóknar hjá lögreglu, að því er kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Allt tiltækt lið Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins var ræst út vegna tilkynningar um eld við íbúðarhús í Breiðholti rétt fyrir klukkan sex. Búið er að slökkva eldinn, sem hafði kviknað út frá grilli. Aldís Rún Lárusdóttir varaslökkviliðsstjóri segir að verið sé að draga úr viðbragði og tryggja vettvang. Hún hafði ekki f
Aukin áhersla er lögð á eftirlit með jarðhræringum í kringum Grindavík vegna fólksfjölda í bænum. Næstum því helmingi meira af kviku hefur safnast saman undir Svartsengi nú en fyrir síðustu eldgos.

Fyrir tuttugu og tveimur árum bjó bandarískt incel til þjónustu til þess að gefa skólasystrum sínum einkunnir eftir því hversu heitar þær væru og um daginn póstaði hrædd, íslensk kona mynd á einn afkima þeirrar síðu af ungum, brúnum manni í strætó að öskra á vagnstjórann, sem virðist vera oddviti Miðflokksmanna í Reykj
Lisandro Martínez, varnarmaður Man Utd, fékk að líta rauða spjaldið í 2-0 tapi gegn Chelsea í dag. Hann fékk sitt annað gula spjald fyrir að keyra í Wesley Fofana inn í teig. Cole Palmer skoraði annað mark Chelsea úr vítinu og tryggði sigurinn.

Landsliðsmaðurinn Styrmir Snær Þrastarson átti stórleik fyrir Rapid Búkarest í dag þegar liðið vann CSM Orade 96:79 í rúmensku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag.

Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari Vals, var kampakátur með lærisveina sína sem lögðu Aftureldingu að velli í Olís-deild karla í handbolta í dag.

Michael Carrick, stjóri Manchester United, reiknar með að vera áfram við stjórnvölinn þegar liðið mætir Roma í Meistaradeild Evrópu á þriðjudaginn. Hann vildi lítið tjá sig um rauða spjaldið sem Lisandro Martínez fékk í 2-0 tapinu gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Hann svo heppinn að lifa fyrstu klukkustundir eldgossins í Vesúvíusi, árið 79 eftir Krist, af. Hann slapp í gegnum fyrstu hörmungarnar þar sem ösku og steinum rigndi yfir bæinn.

Páll Gunnar Pálsson forstjóri Samkeppniseftirlitsins vísar gagnrýni Harðar Arnarsonar, fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar, á bug.

Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, segir engin áform um friðarviðræður við Bandaríkin þrátt fyrir vaxandi áhyggjur af því að átök brjótist út að nýju. Araghchi sagði í viðtali við fréttastofu Al Jazeera í dag að eins og staðan er núna séu allar vangaveltur um viðræður aðeins getgátur fjölmiðla. Við núverandi aðst
Rosenborg vann góðan útisigur á Fredrikstad, 3:0, í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Þetta var þriðji sigur liðsins í röð.

„Þetta er alls ekki yfir gagnrýni hafið,“ segir Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs, um gervigreindarmyndir í barnahorni Herjólfs í samtali við mbl.is. „Við vitum hvaða vægi þetta er að taka í dag, að gervigreindin er að taka yfir verkefni og störf og þess háttar.“

Guðmundur Fylkisson, lögreglumaður sem sérhæfir sig í að leita að týndum börnum, segist hafa fengið morðhótun í tengslum við störf sín. Margir mánuðir hafi liðið án viðbragða. „Á opinberum vef þar sem einstaklingur sagði að það væri réttast bara að hann myndi fara og drepa mig. Ég tilkynnti það og það tók held ég níu e
Hjónin Þórhildur Jónsdóttir og Jónas Sigmarsson ætla að sjá til þess að hamsatólgin þjóðþekkta muni áfram fást í verslunum landsins. Reksturinn mun flytjast til Húsavíkur og segist Þórhildur vera að stökkva í djúpu laugina og að hún muni þurfa að ráða starfsfólk til vinnu við framleiðsluna.

James Maddison hefur verið í vandræðum með meiðsli í dágóðan tíma en hefur komið sterkur inn undanfarið. Hann er hins vegar á bekknum í leik Tottenham og Crystal Palace sem er nýhafinn. Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham, útskýrði ákvörðunina að setja hann á bekkinn.

Norður-Kórea er rammgert virki þar sem engin á að sleppa inn eða út. Þjóðinni er haldið í ógnargreipum af einræðisstjórn Kim Jong-un sem hikar ekki við að láta taka fólk af lífi ef það er einræðisstjórninni ekki þóknanlegt eða reynir að flýja land.

Hrekkjavökustemning var á Bókasafni Vestmannaeyja í dag þegar gestum var boðið að spreyta sig í hræðilegu völundarhúsi og hlýða á skuggalegar sögur í myrkri. Safnið hafði verið klætt í hrekkjavökubúning og ýmislegt var í boði fyrir gesti. Þeir hugrökkustu gátu lagt leið sína í gegnum hrekkjavökuvölundarhús í anddyrinu

Valur vann Aftureldingu 40:37 í úrvalsdeild karla í handbolta í dag. Valur er í 2. sæti deildarinnar með 14 stig en Afturelding situr í 4. sæti með 11.

Eftir svekkjandi tap í bikarleik gegn HamKam hélt Rosenborg, undir stjórn Freys Alexanderssonar, flugi sínu áfram í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta og vann þar þriðja sigurinn í röð í dag.

Það var spenna í leiknum fyrstu mínúturnar en Arnór Snær Óskarsson kom Valsmönnum tveimur mörkum yfir á 6. mínútu, 5-3. Þaðan var mikið jafnræði en Mosfellingar þurftu þó aðeins að elta og Ágúst Ingi Óskarsson kom heimamönnum þremur mörkum yfir á 20. mínútu, 13-10. En Oscar Sven Leithoff Lykke minnkaði muninn í eitt ma
Andri Lucas Guðjohnsen og félagar hans í Blackburn Rovers fengu heldur betur skell í ensku B-deildinni í dag.

Brighton vann frábæran útisigur á toppliði Manchester City 1:0 í dag. Þetta er annað tap City í röð í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Hér fer fram textalýsing frá leik Tottenham og Crystal Palace í níundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Flautað verður til leiks á Tottenham Hotspur Stadium klukkan 17:30. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport.

Bournemouth hafði betur gegn Leeds, 2:0, í níundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag.

Nóg var um að vera um miðjan dag í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Sigur Brentford á Nottingham Forest gerði að verkum að Manchester United er fyrir ofan fallsvæðið.

Átta leikir eru á dagskrá ensku úrvalsdeildar karla í fótbolta í dag. Manchester City tapaði sínum fyrsta leik á tímabilinu um síðustu helgi þegar liðið mætti Aston Villa. Brighton hefur verið á góðu skriði í deildinni og betur í dag þegar liðið heimsótti City. Gestirnir komust yfir á 11. mínútu leiksins með marki frá
Freyr Alexandersson og lærisveinar hans í Rosenborg unnu sinn þriðja deildarleik í röð þegar þeir fögnuðu 3-0 útisigri á Fredrikstad í norsku úrvalsdeildinni í dag.

Hildur segir markmið áætlunarinnar að halda í og laða að framúrskarandi starfsfólk, en hún segir fyrirtækjamenningu Bláa lónsins einstaka.

Valur bar sigur úr býtum, 40-37, þegar liðin áttust við í N1-höllinni að Hlíðarenda í níundu umferð Olís-deildar karla í handbolta í dag.

Valur bar sigur úr býtum, 40-37, gegn Aftureldingu þegar liðin áttust við í N1-höllinni að Hlíðarenda í níundu umferð Olís-deildar karla í handbolta í dag.

40 fréttir birtar