

Austurfrétt

Framúrskarandi fyrirtækjum fjölgar milli ára á Austurlandi
Samkvæmt glænýjum árslista Creditinfo um Framúrskarandi fyrirtæki er fjöldi þeirra fyrirtækja á Austurlandi sem uppfylla öll skilyrði til að geta talist sem slík alls 46 talsins.

Kaldvík náð samkomulagi við lánadrottna um endurfjármögnun
Laxeldisfyrirtækið Kaldvík hefur náð samkomulagi um endurfjármögnun við lánadrottna fyrirtækisins en fyrirtækið undirbýr hlutafjárútboð upp á þrettán milljarða króna til að bæta fjárhagsstöðu sína.

Aldrei fleiri umsóknir í Uppbyggingarsjóð Austurlands
Hvorki fleiri né færri en 109 umsóknir í Uppbyggingarsjóð Austurlands bárust áður en umsóknarfrestur rann út vegna styrkveitinga næsta árs. Umsóknirnar aldrei verið fleiri.

Innan Múlaþings er verið að leggja lokahönd á hönnun fjallahjólabrautar á snjóflóðavarnargörðunum ofan Fjarðagarðs undir Bjólfi á Seyðisfirði og stendur til að ljúka gerð slíkrar brautar strax næsta sumarið. Þar skal jafnframt koma upp upplýsinga- og fræðsluskiltum á sama tíma.

Austfirðingar hafa nú formlega eignast sinn eigin straumvatnsbjörgunarhóp en fimm einstaklingar úr Björgunarsveitinni Brimrúnu á Eskifirði luku nýverið fyrstu tveimur stigum í straumvatnsbjörgun sem gerir þá sveitina útkallshæfa nú þegar. Stefnt er að því að ljúka þriðja og síðasta stiginu á næstunni.

Nýr varaslökkviliðsstjóri Slökkviliðs Fjarðabyggðar tók til starfa í byrjun vikunnar. Sá heitir Sigurður Skarphéðinsson en ráðning hans er enn eitt skrefið til að efla slökkviliðið og styrkja faglegt starf þess.

Tvær skriður hið minnsta féllu á Austurlandi í töluverðum rigningum síðustu sólarhringa sen skriðuvakt Veðurstofu Ísland gaf út gula viðvörun vegna hugsanlegra skriðufalla í gærdag. Önnur þeirra í Njarðvíkurskriðum en hin í Mjóafirði.

Guðröður Hákonarson, gjarnan þekktur sem Gurri, hjá Hildibrand í Neskaupstað, fékk afhent hvatningarverðlaun ferðaþjónustunnar á Austurlandi, Klettinn, á haustfundi samtakanna í síðustu viku. Það viðurkenning fyrir að hafa verið öflugur drifkraftur í uppbyggingu ferðaþjónustu í Neskaupstað.

Stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) krefst þess að stjórnvöld falli frá fyrirhuguðum breytingum á afsláttarkjörum Loftbrúarinnar og tryggi þess í stað nægilegt fjármagn til að efla stuðning við það kerfi.

Fyrstu boranir í tilraunaskyni eftir heitu vatni á Borgarfirði eystra um 50 ára skeið fóru fram af hálfu HEF-veitna fyrir skömmu en líkt og menn áttu frekar von á fyrirfram eru frumniðurstöður ekki að gefa tilefni til mikillar bjartsýni.

Frystitogarinn Blængur NK kom til Neskaupstaðar í gær að aflokinni 26 daga veiðiferð og það mestmegnis í brælu lungann af túrnum. Skipið landaði engu að síður 620 tonnum en aflaverðmæti þess afla reiknast vera um 507 milljónir króna.

Starfsfólk Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) hefur um hríð unnið að því að áætla eignamörk jarða í landinu þar sem hnitsett afmörkun liggur ekki fyrir. Nú hefur stofnunin birt drög að eignamörkum alls 1.160 jarða á Norðaustur- og Austurlandi.

Þær rafhleðslustöðvar sem sveitarfélagið Fjarðabyggð setti upp á sínum tíma og hefur rekið síðan verða aflagðar samkvæmt ákvörðun skipulags- og framkvæmdanefndar. Búnaður þeirra stöðva orðinn úreltur og þær að mestu hættar að virka og skila tekjum.

Boðuð skerðing á Loftbrúnni er óásættanleg aðför að búsetuskilyrðum á landsbyggðinni að mati bæjarráðs Fjarðabyggðar. Skorað er á stjórnvöld að falla frá áformunum þegar í stað og efla þess í stað stuðning við flugfarþega sem neyðast til að sækja nauðsynlega þjónustu í höfuðborgina.

Menningarstofa Fjarðabyggðar og nýstofnuð Þjóðaróperan hafa undirritað viljayfirlýsingu til þriggja ára um áframhaldandi samstarf um óperusýningar, fræðslu og þróun tónlistarstarfs á Austurlandi. Með því megi auka aðgengi íbúa að óperulist og skapa fleiri tækifæri fyrir tónlistarfólk á svæðinu.

Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, hefur gefið til kynna að fyrirhuguð lækkun á niðurgreiðslu flugfargjalda til landsbyggðarfólks niður í sjö þúsund krónur per fluglegg verði endurskoðuð og hækki hugsanlega í níu þúsund krónur. Þung gagnrýni á þessar hugmyndir ráðherrans hafa heyrst víða en hækkun um tvö þúsund krón

Tveir nýir starfsmenn hafa verið ráðnir til starfa í leikskólann Tjarnarskóg á Egilsstöðum en mikil mannekla þar í byrjun skólaársins takmarkaði verulega hve mörg börn komust þar að. Það lítur nú allt til betri vegar þó áfram þurfi að auglýsa eftir starfsfólki.

Bæjar- og hafnarstjóri Fjarðabyggðar, Jóna Árný Þórðardóttir, var á föstudaginn kjörin nýr formaður Hafnarsambands Íslands. Tekur hún við embættinu af Lúðvík Geirssyni og er allra fyrsta konan til að gegna þessu embætti.

Eins og komið hefur fram stendur til að opna nýja SPAR-verslun í húsnæði Kjörbúðarinnar í Neskaupstað um miðjan næsta mánuð. Til að það gangi sem best þarf þó að tæma þann lager sem fyrir er og þess vegna eru nú allar vörur verslunarinnar á 50% afslætti næstu dagana.

Formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA) segir breytingu á niðurgreiðslum Loftbrúar úr prósentu í krónutölu vera skerðingu á lífsgæðum á landsbyggðinni. Hann segir málflutning innviðaráðherra vera úr takti við raunveruleika fólks.

Körfuknattleiksdeild Hattar mun næstu þrjú árin njóta stuðnings fyrirtækisins Vörður tryggingar sem verður aðalbakhjarl körfuknattleiksdeildarinnar þennan tíma. Yfir sama tímabil mun heimavöllur Hattar í Íþróttamiðstöðinni kallast Varðarhöllin.

Hollvinasamtök Gömlu kirkjunnar á Djúpavogi munu næstu fimm árin fá 500 þúsund króna árlegan styrk frá Múlaþingi til reksturs og áframhaldandi uppbyggingar kirkjunnar gömlu.

Arðurinn af veiðihlunnindum skiptir máli og ræður úrslitum um búsetu fólks á mörgum bæjum í sveitum landsins. Bóndi sagði frá því í blaðaviðtali ekki fyrir löngu síðan, að tekjurnar af ánni borgi áburðinn á túnin. Án þeirra tekna yrði hann að hætta búskap.

Breytingar verða á Loftbrú frá næstu áramótum þegar tekinn verður upp fastur afsláttur af flugfargjaldi í krónum í stað prósenta eins og til þessa. Innviðaráðherra segist vilja tryggja fyrirsjáanleika og halda verkefninu innan fjárheimilda.

Óánægja ríkir hjá mörgum vegna þeirrar ákvörðunar skipulags- og framkvæmdanefndar Fjarðabyggðar að úthluta lóð við Kvíabólsfjöru í Neskaupstað til nýs aðila eftir að hópurinn Bærinn okkar hafði töluvert áður fengið vilyrði fyrir þeirri sömu lóð og eytt verulegum tíma til að hanna þar fallega baðstofu og skapa góðar aðs

Fylgi Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi tekur kipp í nýrri skoðanakönnun. Fylgi sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur bætt við sig í sumar gengur til baka. Fjórir flokkar mælast með þingmenn í kjördæminu.

Öll sautján íþrótta- eða tómstundafélögin sem sóttu um styrki til Fjarðabyggðar til starfsemi sinnar hafa nú fengið úthlutun upp á alls 32,5 milljónir króna sem skiptist á milli félaganna. Alls hefur heildarstuðningur sveitarfélagsins til íþrótta- og tómstundastarfs aukist um 8,4% frá síðasta ári og nemur alls tæpum 80

Fréttir eru sóttar úr RSS-straumi Austurfrétt og hlekkur vísar á upprunann. Sjá alla miðla