
Fótbolti.net

Manchester United er mikið til umræðu í Enski boltinn hlaðvarpinu í dag eftir tvö hræðileg töp í röð. Þetta er búið spil hjá Michael Carrick en hvað tekur við næst? Tottenham virðist þá vera vaknað til lífsins en þeir unnu óvæntan sigur á Brúnni. Getur Liverpool barist um Englandsmeistaratitilinn og hvort er Aston Vill

Það gengur hvorki né rekur hjá Man Utd og það er útliit fyrir að það sé aðeins tímaspursmál hvenær Michael Carrick yfirgefur félagið eftir 3-0 tap gegn Bournemouth í gær. Jamie Carragher, sérfræðingur á Sky Sports, telur að félagið þurfi að láta Carrick fara strax í kvöld.

Guðlaugur Victor Pálsson lagði upp mark í 5-1 stórsigri Horsens á SönderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni í dag.

Sigurður Ragnar Eyjólfsson og lærisveinar hans í NSÍ Runavík eru orðnir Færeyjameistarar í annað sinn í sögunni eftir að liðið gerði 1-1 jafntefli við HB í næstsíðustu umferð deildarinnar í dag.

Margir leikmenn Manchester United áttu ömurlegan dag á skrifstofunni þegar liðið tapaði 3-0 fyrir Bournemouth, en nú er komið að einkunnagjöf dagsins.

Gary Neville, sparkspekingur hjá Sky Sports, segist finna til með Michael Carrick, stjóra Manchester United, en telur að allir í kringum hann hafi brugðist honum og að félagið eigi nú varla annan kost en að láta hann fara.

Landsliðsmaðurinn Mikael Egill Ellertsson skoraði stórkostlegt sigurmark fyrir Genoa þegar liðið lagði hans gömlu félaga í Venezia að velli, 1-0, í ítölsku Seríu A í dag.

Michael Carrick, stjóri Manchester United, gæti hafa stýrt sínum síðasta leik hjá félaginu eftir að liðið tapaði 3-0 fyrir Bournemouth á Old Trafford í dag. Liverpool batt á meðan enda á sigurgöngu Brighton með 2-0 sigri á Anfield.

Brynjólfur Andersen Willumsson heldur áfram að raða inn mörkunum í Hollandi, en hann skoraði tvennu er Groningen gerði 2-2 jafntefli gegn NEC Nijmegen í dag.

Sunderland mætir Leeds í síðasta leik 8. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar á leikvangi ljóssins klukkan 16:30 í dag.

Varnarmaðurinn Geir Sigurbjörn Ómarsson hefur gengið til liðs við Selfoss frá KFA.

Þorri Ingólfsson, fæddur 2009, var hetjan þegar Þór bjargaði sér frá falli úr Bestu deildinni með sigri gegn FH í gær. Hann er leikmaður umferðarinnar.

Ásdís Karen Halldórsdóttir var allt í öllu hjá AIK þegar liðið lagði Rosengård að velli, 2-0, í sænsku úrvalsdeildinni í dag.

38 mörk voru skoruð í lokaumferð Bestu deildarinnar! Það segir sitt að fjölmargir sóknarþenkjandi leikmenn gerðu tilkall í að komast í lið umferðarinnar og valið var erfitt! Þórsarar unnu 2-1 sigur gegn FH og héldu sæti sínu í deildinni. Þeir fá flest sæti í úrvalsliðinu Þorri Ingólfsson skoraði tvö mörk og er leikmaðu

Ísak Andri Sigurgeirsson og félagar hans í Norrköping eru orðnir B-deildarmeistarar í Svíþjóð eftir að hafa tryggt sér titilinn með 4-0 sigri á Norrby í dag.

Öllum þeim sem hyggjast heimsækja Vincent Kompany, þjálfara Bayern München í Þýskalandi, hefur verið bannað að ræða við hann um fótbolta.

Bestu deild karla 2026 lauk í gær með sannkölluðu markaflóði. Hér má sjá öll mörk gærdagsins. Þór hélt sæti sínu í mikilli spennu en KA féll. Aron Sigurðarson sló markametið í ótrúlegum leik.

Inter 2:1 Fiorentina 0-1 Alex Jimenez ('65 ) 1-1 Marcus Thuram ('90 ) 2-1 Piotr Zielinski ('90, víti)

Michael Carrick, stjóri Manchester United, hefur útskýrt ákvörðun sína að hafa þá Bruno Fernandes og Lisandro Martínez á bekknum gegn Bournemouth í dag.

Áttunda umferð ensku úrvalsdeildarinnar heldur áfram í dag með fjórum leikjum sem allir hefjast klukkan 14:00.

Real Madrid tilkynnti í morgun að Thibaut Courtois myndi missa af stórleiknum gegn Barcelona í El Clásico í kvöld vegna veikinda, en nú virðist markvörðurinn hafa náð sér.

Enska B-deildarfélagið Burnley hefur mikinn áhuga á að ráða spænska þjálfarann Carlos Corberan, en óvíst er hvort félaginu takist að fá hann til sín.

Ítalska C-deildarfélagið Ravenna hefur staðfest að fyrrum fótboltamaðurinn Ronaldinho ætli að taka fram skóna á ný og spila gegn nágrönnunum í Forli í næsta mánuði.

KA féll niður í Lengjudeildina þrátt fyrir 5-1 stórsigur á ÍBV í lokaumferð Bestu deildar karla í gær. Leikurinn var jafnframt sá síðasti á dómaraferli Péturs Guðmundssonar.

Unai Emery, stjóri Aston Villa, var ekki skemmt þegar hann var spurður út í kærumál ensku úrvalsdeildarinnar gegn Manchester City á fréttamannafundi í gær.

Uli Hoeness, heiðursforseti Bayern München, telur að Florian Wirtz hafi gert mistök með því að velja Liverpool fram yfir þýska stórliðið.

Belgíski markvörðurinn Thibaut Courtois missir af stórleik Real Madrid gegn Barcelona í El Clásico í dag vegna flensu.

Brasilíski framherjinn Neymar lét veiða sig í gildru og fékk að líta rauða spjaldið í leik Santos gegn Bahia í nótt.

Thibaut Courtois, markvörður Real Madrid, tjáði sig á fréttamannafundi fyrir El Clásico slaginn eftirvænta sem fer fram í kvöld.

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, er allt annað en sáttur við dómgæsluna í ensku úrvalsdeildinni og telur að stjórar liðanna sitji ekki allir við sama borð. Hann lét gamminn geisa eftir að hafa fengið gult spjald fyrir að yfirgefa boðvanginn í 2-0 sigri á Everton í gær.

Landsliðskonan Sveindís Jane Jónsdóttir var í byrjunarliði Angel City þegar liðið vann 2-0 sigur á Bay FC í bandarísku NWSL-deildinni í nótt. Með sigrinum tryggði liðið sér sæti í úrslitakeppni deildarinnar.

Sóknartengiliðurinn Cole Palmer verður ekki með í leikmannahópi Chelsea sem heimsækir Liverpool í 16-liða úrslitum deildabikarsins næsta miðvikudagskvöld.

Argentínski framherjinn Julian Alvarez hefur beðist afsökunar á framkomu sinni í sumar og heitið því að leggja allt sitt af mörkum til að hjálpa Atlético að berjast um titla á tímabilinu.

Þá er komið að Powerade-slúðurpakka dagsins þar sem Liverpool kemur töluvert við sögu. Þá er AC Milan sagt hafa mikinn áhuga á varnarmanni Manchester United.

Harry Kane, landsliðsfyrirliði Englands og einn af bestu fótboltamönnum heims, er spenntur fyrir verðlaunaafhendingu Ballon d'Or sem fer fram í London annað kvöld.

Þjálfarastarf Renée Slegers við stjórnvölinn hjá stórveldi Arsenal er í hættu eftir hörmulega byrjun á nýju tímabili, en staða hennar skánaði örlítið með sigri í nágrannaslagnum gegn Tottenham í gær. Arsenal sýndi mikla yfirburði en lenti undir og vann að lokum 1-2 þökk sé sigurmarki úr vítaspyrnu.

Michael Carrick þjálfari Manchester United fór víðan völl á fréttamannafundi fyrir leik helgarinnar gegn Bournemouth, sem fer fram á Old Trafford í dag.

Aron Sigurðarson fyrirliði KR sló markamet efstu deildar karla á síðustu stundu í leiknum gegn KR í 27. og síðustu umferð Bestu deildarinnar í gær. Seinna markið var sögulegt fyrir tvennar sakir, ekki bara vegna þess að metið féll. Hér fyrir neðan má sjá þróun markametsins í efstu deild karla, allt frá árinu 1918 til

David Bruce tók við sem framkvæmdastjóri Sheffield Wednesday í maí þegar hann leiddi hóp bandarískra fjárfesta sem keypti félagið.

Fréttir eru sóttar úr RSS-straumi Fótbolti.net og hlekkur vísar á upprunann. Sjá alla miðla