
Fótbolti.net

Andri Lucas Guðjohnsen hefur verið í miklu stuði með Blackburn Rovers í ensku Championship deildinni.

Englandsmeistarar Arsenal heimsækja League Two lið Fleetwood Town í enska deildabikarnum í kvöld.

Harry Kane var í gærkvöldi krýndur besti leikmaður heims á Ballon d'Or verðlaunahátíðinni. Hann var valinn bestur framyfir Kylian Mbappé og Lamine Yamal sem hafa farið mikinn í fjölmiðlum undanfarnar vikur.

Það er krísa innan herbúða Manchester United eftir hörmulega byrjun á nýju tímabili undir stjórn Michael Carrick.

Óvæntustu félagaskipti sumarsins voru líklega koma spænska reynsluboltans Kevin Vazquez til Þórs. Vazquez er 33 ára bakvörður í grunninn en spilaði mest fyrir Þór sem djúpur miðjumaður. Fyrir rúmum tveimur árum var hann að spila í spænsku úrvalsdeildinni með Celta Vigo. Alls hefur hann spilað 68 leiki í La Liga á ferli

Danski framherjinn Nikolaj Hansen fagnaði á laugardag sínum fimmta Íslandsmeistaratitli. Nikolaj var ekki í stóru hlutverki í Bestu deildinni á tímabilinu en spilaði mikilvæga leiki í Evrópu. Hann byrjaði einungis fimm deildarleiki á tímabilinu og kom tíu sinnum inn á. Hlutverkið hefði mögulega verið stærra ef hann hef

Samningur Emils Atlasonar við Stjörnuna rennur út um miðjan nóvember og er óvíst hvort að framherjinn verði áfram hjá Garðabæjarfélaginu. Emil, sem er 33 ára, hefur leikið með Stjörnunni frá árinu 2020 og var markahæsti leikmaður liðsins á nýafstöðnu tímabili. Fótbolti.net ræddi við Rúnar Pál Sigmundsson, nýráðinn þjál

Viktor Bjarki Arnarsson var í hádeginu kynntur til leiks sem nýr yfirmaður fótboltamála hjá Stjörnunni. Viktor kemur til Garðabæjarfélagsins frá Víkingi, þar sem hann hefur gegnt starfi aðstoðarþjálfara, og tekur nú við þessu nýja hlutverki hjá Stjörnunni. Af þessu tilefni boðaði Stjarnan til blaðamannafundar á Samsung

Þeir stjórar í ensku úrvalsdeildinni sem eru taldir í heitustu sætunum fá meiri tíma til að reyna að snúa genginu við. Fyrr í dag var greint frá því að Michael Carrick muni stýra Manchester United í leiknum gegn Chelsea á laugardag. Nú segir Guardian að Pierre Sage hefur fengið meiri tíma til að snúa gengi Crystal Pala

Á laugardag vann Þór sigur á FH og hélt með því sæti sínu í deildinni. Þór vann þrjá síðustu leiki sína og fimm af síðustu sjö. Eftir sex stig úr fyrstu þremur leikjunum tók við ansi erfiður kafli þar sem Þórsarar fengu einungis tvö stig úr ellefu leikjum. Í kjölfarið opnaði félagaskiptaglugginn og sjö stig fengust úr

Þrír leikir eru í ítölsku A-deildinni í kvöld. Roma fær Cagliari í heimsókn. Roma er í 3. sæti með 18 stig, fjórum stigum á eftir toppliðunum. Paulo Dybala verður ekki með Roma í kvöld vegna meiðsla en hann þarf að ná fleiri æfingum áður en hann snýr aftur í hópinn.

Liverpool fær Chelsea í heimsókn í 16-liða úrslitum enska deildabikarsins á morgun. Brasilíski sóknarmaðurinn Joao Pedro verður ekki með Chelsea í leiknum. „Hann er meiddur í læri og verður frá í nokkrar vikur. Við skulum sjá hversu margar. Hann er ekki tilbúinn fyrir næstu leiki," segir Xabi Alonso, stjóri Chelsea.

Davíð Smári Lamude tilkynnti fyrr í dag um uppsögn sína hjá Njarðvík. Hann stýrði liðinu í eitt ár og endaði Njarðvík í 5. sæti Lengjudeildarinnar í sumar. Liðið féll út í undanúrslitum umspilsins eftir spennandi einvígi gegn Þrótti sem fór í kjölfarið upp í Bestu deildina. Davíð hafði áður stýrt Vestra og Kórdrengjum

„Work hard in silence. Let success be your noise.“ Á góðri íslensku má þýða þetta sem: „Leggðu vinnuna á þig í kyrrþey. Láttu árangurinn tala sínu máli." Harry Kane birti þessi orð á samfélagsmiðlum í gær eftir að hafa unnið Ballon d'Or-verðlaunin, stærstu einstaklingsverðlaunin í fótboltanum. Þessi orð eru kannski bes

„Þetta byrjar fáránlega vel, mér líður vel í Garðabænum og er tilbúinn að taka þetta skref með þessu frábæra félagi,“ segir Rúnar Páll Sigmundsson í samtali við Fótbolta.net um endurkomu sína í Garðabæinn. Rúnar var tilkynntur sem nýr þjálfari Stjörnunnar fyrr í mánuðinum en hann gerði Stjörnuna að Íslandsmeistara 2014

Davíð Smári Lamude hefur sagt upp störfum sem þjálfari Njarðvíkur eftir eitt ár í starfi. Davíð Smári staðfestir tíðindin í samtali við Fótbolta.net og segir að hann hafi tekið tíma í ákvörðunina og hún hafi verið erfið. Að lokum hafi hann komist að þeirri niðurstöðu að þetta væri besta niðurstaðan fyrir sig. Hann þakk

Erling Haaland er einn af fimm leikmönnum sem munu missa af leik Manchester City gegn Brighton í 16-liða úrslit Carabao-deildabikarsins á morgun þar sem þeir fá hvíld. Haaland var með í tapinu gegn Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn en er einn af nokkrum sem hafa fengið nokkurra daga frí áður en hann sn

Ólafur Ingi Skúlason hefur verið rekinn sem þjálfari Breiðabliks, félagið tilkynnti í morgun að hann hefði látið af störfum. Margir eru orðaðir við þjálfarastöðuna en þau nöfn sem heyrast hæst eru nöfn þeirra Jökuls Elísabetarsonar og Arnars Grétarssonar. Báðir eru þeir með sterkar tengingar við félagið, Jökull varð Ís

Í morgun tilkynnti Breiðablik um það að Ólafur Ingi Skúlason myndi ekki halda áfram sem þjálfari liðsins á næsta tímabili. Ólafur tók við liðinu undir lok síðasta tímabils og stýrði hann Blikum til sigurs í Mjólkurbikarnum á nýloknu tímabili. Stigasöfnun liðsins í deildinni var þó heldur dræm og endaði liðið í 5. sæti

Þjálfari ársins í Bestu deild kvenna árið 2026 er Ian Jeffs, þjálfari Íslandsmeistara Breiðabliks. Það voru margir sem komu til greina; Anton Ingi í Fram, Gylfi Tryggvason í Grindavík/Njarðvík og Jón Óli í ÍBV. En að lokum var það Jeffsy sem varð fyrir valinu í Uppbótartímanum, hlaðvarpi um íslenskan kvennabolta.

Það var hörð keppni í valinu á efnilegasta leikmanni tímabilsins í Bestu deild kvenna. Valið stóð á milli Hrafnhildar Ásu Halldórsdóttur úr Breiðabliki, Líf Joostdóttir van Bemmel úr Breiðabliki og Ingibjargar Magnúsdóttur úr FH. Uppbótartíminn, hlaðvarp um kvennaboltann á Íslandi, valdi Líf sem efnilegasta leikmann tí

Í Uppbótartímanum var opinberað val á þeim bestu í Bestu deild kvenna 2026. Agla María Albertsdóttir, fyrirliði Breiðabliks, er leikmaður ársins. Fyrirliði Blikaliðsins átti stórkostlegt tímabil og endaði sem stoðsendingahæsti leikmaður deildarinnar. Hún gerði gríðarlega mikið fyrir Blikaliðið sem kannski fólk tók ekki

Michael Carrick mun stýra Manchester United í heimsókn þeirra til Chelsea um helgina. Heimildir breska ríkisútvarpsins BBC herma að hann fái tækifæri til að snúa stöðunni við á Old Trafford eftir slæma byrjun tímabilsins. Carrick hafði umsjón með æfingu í morgun. Ekki er víst hvort önnur slæm úrslit gegn Chelsea geti h

Við höldum áfram á hverjum degi að gefa út nýjan feril fyrir lesendur að giska á. Reyndu á þraut dagsins, og skoðaðu til baka í tímann ef þú hefur misst af einhverjum dögum.Þetta er einn fimm leikjum sem hafa komið út. Í þessum leik færðu einn leikmann á dag til að giska á út frá ferli leikmannsins.

Nú stendur yfir fréttamannafundur í Garðabænum þar sem Rúnar Páll Sigmundsson, nýr þjálfari Stjörnunnar, er formlega kynntur. Nýr formaður fótboltadeildar Stjörnunnar, Halldór Orri Björnsson, stýrir fundinum og hefur einnig staðfest yfirmann fótboltamála hjá félaginu. Viktor Bjarki Arnarsson, sem var aðstoðarþjálfari V

Í Uppbótartímanum var opinberað val á úrvalsliði ársins í Bestu deild kvenna 2026. Í Uppbótartímanum var sérstakt uppgjör og tilkynnt hver er leikmaður ársins, þjálfari ársins og efnilegasti leikmaðurinn. Einnig voru valin vonbrigði ársins.

Harry Kane fagnaði Ballon d'Or gullboltanum á lokuðum næturklúbbi í London og skemmti sér fram á rauða nótt. Eiginkona hans, Katie Goodland, og foreldrar hans, Patrick og Kim, voru meðal þeirra sem dönsuðu á Cirque le Soir klúbbnum í Soho hverfinu. Einnig voru Eric Dier, Ben Davies og Matt Doherty meðal vina hans sem v

Bestu deild kvenna er lokið og í Uppbótartímanum er farið yfir liðið tímabil. Öll lið fá einkunn út frá væntingum og niðurstöðu, lið ársins er valið, leikmaður ársins er útnefndur sem og þjálfari ársins og efnilegasti leikmaður tímabilsins. Guðmundur Aðalsteinn, Snæbjört Pálsdóttir og Arnar Páll Garðarsson komu sér vel

Spurning er hvaða breytingar verða á leikmannahópnum hjá KA eftir fallið úr Bestu deildinni en auðvelt er að fullyrða að þetta sé dýrasta lið sem hefur fallið á Íslandi. Miðvörðurinn Hans Viktor Guðmundsson er sá leikmaður sem hvað flest félög horfa löngunaraugum til. Hans er 30 ára gamall og algjör lykilmaður hjá KA.

Með sigri á FH í lokaumferð Bestu deildarinnar tryggðu Þórsarar sér áframhaldandi sæti í deildinni á næstu leiktíð. Útlitið var ekki bjart framan af móti fyrir Þórsara en þeir náðu að snúa lélegu gengi við um mitt mót. Liðið endaði með 30 stig en 22 þeirra stiga komu í síðustu 13 umferðunum. Sigurður Heiðar Höskuldsson

Það er gjarnan talað um mikilvægi þess að leikmenn finni sína bestu stöðu á fótboltavellinum og hafa margir þjálfarar lagt mikla áherslu á að nýta styrkleika sinna leikmanna sem best. Oft eru leikmenn aldir upp í ákveðinni stöðu og spila þar stærstan hluta ferilsins, en stundum getur ein ákvörðun þjálfara um að færa le

Breiðablik sendi frá sér fréttatilkynningu í morgun þar sem fram kom að leiðir félagsins og þjálfarans Ólafs Inga Skúlasonar hefðu skilið. Ólafur og Flosi Eiríksson, formaður Breiðabliks, hafa engu viljað bæta við yfirlýsinguna að svo stöddu.

Ólafur Ingi Skúlason hefur verið látinn fara frá Breiðabliki. Hann var þjálfari liðsins í rétt rúmlega eitt ár og gerði liðið að bikarmeisturum á nýliðnu tímabili. Liðið endaði í 5. sæti Bestu deildarinnar á nýliðnu tímabili sem var vel undir væntingum. Aðstoðarþjálfarinn Jón Guðni Fjóluson lætur einnig af störfum.

Í Útvarpsþættinum Fótbolti.net á laugardag var sagt frá því að Þróttur Reykjavík hefði lagt fram tilboð í Hinrik Harðarson. Hinrik er uppalinn hjá Þrótti og lék með liðinu á árunum 2021-23 í Lengjudeildinni. Hinrik er leikmaður Egersund í næstefstu deild Noregs. Þróttarar komust upp í Bestu deildina í ár og ætla sér að

Ólafur Ingi Skúlason hefur látið af störfum sem þjálfari meistaraflokks karla hjá Breiðabliki. Hann var þjálfari liðsins í rétt rúmlega eitt ár og gerði liðið að bikarmeisturum á nýliðnu tímabili. Ólafur tók við liðinu eftir að hafa stýrt U21 landsliðinu og undir hans stjórn náði Breiðablik í sín fyrstu stig í Sambands

Stjarnan hefur boðað til blaðamannafundar í hádeginu, fundurinn verður haldinn í Stjörnuheimilinu. Nýr þjálfari meistaraflokks karla, Rúnar Páll Sigmundsson, verður á fundinum, en tilkynnt var á ráðningu hans fyrir tveimur vikum síðan. Sömuleiðis verður nýr formaður fótboltadeildar, Halldór Orri Björnsson, á fundinum.

Góðan og gleðilegan daginn, það er kominn slúðurtími. Portúgalskur sóknarmaður er á radarnum hjá Arsenal, Crystal Palace vill halda Sarr og Luka Vuskovic á marga aðdáendur.

Oftar en ekki eru mikil læti í leiikjum Istanbúl liðanna Galatasaray og Fenerbahce. Það ljóst í hvað stefndi þegar Romelu Lukaku, leikmaður Fenerbahce var ósáttur við Abdulkerim Bardakci, leikmann Galatasaray, strax í upphafi leiks og þeir rifust áður en fleiri leikmenn skárust í leikinn.

Senny Mayulu og Mika Godts komu inn af bekknum og skoruðu mörkin í lokin þegar Paris Saint-Germain komst upp í toppsæti frönsku deildarinnar með 2-0 sigri á Lyon í gær. Lyon náði að halda Evrópumeisturnum í skefjum en sjö mínútum eftir að hinn tvítugi Mayulu kom inn af bekknum náði hann að brjóta ísinn á 72. mínútu. Go

Fréttir eru sóttar úr RSS-straumi Fótbolti.net og hlekkur vísar á upprunann. Sjá alla miðla