

Morgunblaðið

Bókabeitan gefur út fjölda bóka fyrir börn og fullorðna fyrir jólin.

Fjórum af 35 aðgerðum í fyrstu aðgerðaáætlun atvinnustefnu Íslands er lokið, 23 eru í vinnslu og átta í undirbúningi. Atvinnustefnuráð fagnar framgangi aðgerða en lýsir jafnframt áhyggjum af töfum á umbótum á regluverki lagareldis og rekstrarumhverfi gagnavera.

Mikel Arteta var pirraður út í Max Dowman eftir að táningnum hjá Arsenal var vikið af velli þegar liðið féll úr enska deildabikarnum í fótbolta gegn Fleetwood Town úr D-deildinni.

John Lee, leiðtogi heimastjórnar Hong Kong, baðst á fimmtudag afsökunar á bruna í íbúðablokkunum Wang Fuk Court í nóvember í fyrra, þar sem 168 manns fórust. Hann tilkynnti jafnframt að Winnie Ho húsnæðismálaráðherra hefði sagt af sér og boðaði umbætur á reglum um viðhald bygginga.

Þórður Þórarinsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, segir það þungbærar ákvarðanir að ráðast í uppsagnir í dag. Samtals verða lögð niður 23 störf hjá sveitarfélaginu sem eru samtals 21,6 stöðugildi. Verður þremur starfsmönnum borðið nýtt starf og fækkar stöðugildum því um 18,6.

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta verður á meðal þátttakenda á Evrópumótinu sem hefst í byrjun nóvember.


Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, vonar að Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri fái algjöra opinberun og lækki stýrivexti á Íslandi.

Hafnarfjarðarbær ætlar að ráðast í víðtækar hagræðingaraðgerðir og mun fækka stöðugildum í stjórnsýslu bæjarins um 18,6. Áætlað er að þetta muni spara bænum 330 milljónir í lækkun rekstrarkostnaðar á ári.

Hollenska handknattleikskonan Larissa Nüsser leikur ekki með landsliði þjóðar sinnar á EM sem hefst í byrjun desember vegna meiðsla.

Hugmyndin að sölu Samskipa kom hvorki frá forsvarsmönnum félagsins né stjórnendum spænska skipafélagsins Boluda Shipping. Hún kviknaði í tengslum við samstarf fyrirtækjanna um siglingaleiðir á Suðurhöfum.

Brotist var inn á heimili Morgans Gibbs-White, leikmanns Nottingham Forest, á meðan hann og unnusta hans, Britney De Villiers, voru að heiman.

„Framlenging endurgjaldslausrar úthlutunar losunarheimilda gæti haft jákvæð áhrif á íslenskan iðnað og veitt fyrirtækjum lengri tíma til að fjárfesta í lausnum sem draga úr losun.“

Þrjár hljóðupptökur af samskiptum stjórnstöðvarinnar í Madríd og tveggja lestarstjóra virðast sýna að ein hraðlest hafi fengið heimild til að halda áfram þótt önnur lest um 25 km framar væri enn stopp.

Fimm hótel á höfuðborgarsvæðinu og vínbarinn Port 9 munu koma fram undir nýju merki móðurfélagsins Flóra collection. Samtals eru rúmlega 300 herbergi eða íbúðir á vegum félagsins, meðal annars í lúxusíbúðum á efstu hæð Höfðatorgs og í sögufrægum húsum í miðbæ Reykjavíkur.

Handknattleikskonan Dagmar Guðrún Pálsdóttir hefur verið lánuð frá Fram og í Gróttu.

Áberandi breytingar verða gerðar á Iceland Airwaves-hátíðinni sem haldin verður í miðborg Reykjavíkur í næstu viku.


Að minnsta kosti 13 manns létust þegar rússneskur dróni hæfði lestarpall á lestarstöðinni í Dnípró í Úkraínu í dag. Að minnsta kosti tíu særðust, að sögn úkraínskra yfirvalda.

„Árið 2019 fékk ég hjartaáfall sem varð til þess að ég endurskoðaði líf mitt aðeins,“ segir Ívar Örn Hansen matreiðslumaður.

Á ráðstefnunni Atlantic Plastics 2026 sem fram fór í Hörpu í síðustu viku komu saman vísindafólk og sérfræðingar víðs vegar að úr heiminum til að fjalla um plastmengun í hafi, útbreiðslu hennar og mögulegar lausnir

Skólinn gagnrýnir skort á skýrum útreikningum og óttast að fjármögnunin þrengi að rekstri, kennslu og rannsóknum.

Á Tálknafirði voru flest skip í höfn í morgun. Þá stóð yfir afferming á fiskeldisfóðri. Á svæðinu var rigningarveður og gekk á með hviðum. Síðan hefur aðeins lægt og einhverjir farnir að hugsa sér til hreyfings.

„Við fundum þvílíkan kraft í honum og hann hafði strax áhuga,“ sagði Halldór Orri Björnsson, formaður knattspyrnudeildar Stjörnunnar, í samtali við mbl.is um ráðningu félagsins á Viktori Bjarka Arnarssyni í stöðu yfirmanns knattspyrnumála.

Christine Lagarde, forseti Seðlabanka Evrópu, mun láta af embætti í febrúar á næsta ári, nokkrum mánuðum áður en skipunartími hennar rennur út í október á næsta ári, að því er stofnunin, sem hefur aðsetur í Frankfurt í Þýskalandi, greindi frá í dag.

Frönsk yfirvöld reyna enn að hafa uppi á nokkrum ríkisborgurum eftir lestarslysið á Spáni í gær þar sem 68 manns létust, að sögn franska utanríkisráðuneytisins í dag.

Tökur á Áramótaskaupinu fara vel af stað, að sögn Allans Sigurðssonar en hann leikstýrir Skaupinu ásamt Hannesi Þór Arasyni. Framleiðslufyrirtæki þeirra, Atlavík, framleiðir þáttinn.

Tökur á Áramótaskaupinu fara vel af stað, að sögn Allans Sigurðssonar en hann leikstýrir Skaupinu ásamt Hannesi Þór Arasyni. Framleiðslufyrirtæki þeirra, Atlavík, framleiðir þáttinn.

Serbneska stjarnan Nikola Jokic varð í nótt annar leikmaðurinn í sögu NBA-deildarinnar til að ná þrefaldri tvennu í 200 leikjum. Russel Westbrook á metið, 209 þrefaldar tvennur.

Wang Yi, utanríkisráðherra Kína, boðaði aukið samstarf við Íslendinga á blaðamannafundi með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra sem hófst í Peking fyrir stundu.

Sanrio, japanska fyrirtækið að baki hinni vinsælu persónu Hello Kitty, baðst í dag afsökunar á samstarfi sínu við japönsku njósnaþáttaröðina Vivant, sem hefur verið gagnrýnd fyrir andúð á Kína. Fyrirtækið hættir jafnframt samstarfi um varning tengdan þáttunum.

„Vissulega stendur tólf mánaða verðbólgan í stað og það eitt og sér er jákvætt að hún sé ekki á uppleið en hún er of há að mínu mati.“

Sigurður Heiðar Höskuldsson er uppalinn Leiknismaður en flutti til Akureyrar til að taka við karlaliði Þórs í fótbolta.

Gífurlegar breytingar hafa á skömmum tíma orðið á athafnasvæði Eldisgarðs Samherja á Reykjanesi. Á fimm mánuðum er búið að reisa 21 risastóran eldistank fyrir landeldi fyrirtækisins.

Sigurður Heiðar Höskuldsson er uppalinn Bliki en flutti til Akureyrar til að taka við karlaliði Þórs í fótbolta.

Dóms er að vænta í máli tæplega þrítugs manns í Stokkhólmi í Svíþjóð sem tók við og geymdi 56 handsprengjur fyrir glæpagengið Foxtrot í kjallara sínum í Fruängen vegna þungrar fíkniefnaskuldar við samtökin.

„Þannig að þetta er gríðarlega há tala, 58% sem hafa orðið fyrir ofbeldi eða hótunum á 12 mánuðum,“ segir Páley.


Mesut Özil, fyrrverandi landsliðsmaður Þýskalands í knattspyrnu, hefur hvatt FIFA til að aflétta banni Rússlands frá alþjóðlegum keppnum.

Fréttir eru sóttar úr RSS-straumi Morgunblaðið og hlekkur vísar á upprunann. Sjá alla miðla