

Morgunblaðið


Miðjumaðurinn Júlíus Magnússon skoraði fyrra mark Elfsborgar í 2:2-jafntefli liðsins gegn AIK í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í Stokkhólmi í kvöld.

Kona er látin í kjölfar hlébarðaárásar í hollenskum dýragarði. Konan var dýrahirðir í garðinum.

„Þetta er sannkölluð bjórhátíð í anda Bæjaralands og verið er að skreyta allt hótelið til að ná þessum sérstaka októberfest-anda fyrir helgina,“ segir Elvar Yngvason, markaðsstjóri fjölskyldufyrirtækisins Mývatns Öls og Sels-Hótel Mývatns.

Fleiri mál en það sem hefur verið ákært fyrir vegna 120 milljóna svika hjá Landsbankanum og tengjast kerfisvillu Reiknistofu bankanna eru til rannsóknar hjá embætti héraðssaksóknara.

Afturelding vann fjögurra marka sigur á Þór Akureyri, 38:34, í fyrsta leik 8. umferðar úrvalsdeildar karla í handbolta í Mosfellsbænum í kvöld.

Kona brenndist á hendi í flugi til Suður-Kóreu um helgina.

Raunveruleikastjarnan segir frægð lítils virði ef fjölskylda er vanrækt.

Lazio vann stórsigur á Sassuolo, 6:2, í níundu umferð ítölsku A-deildar karla í fótbolta á útivelli í Sassuolo í kvöld.

Draugarnir eru komnir og þeir vilja láta borða sig.

Granit Xhaka og Breel Embolo mega á ný spila með svissneska landsliðinu í fótbolta í nóvember eftir að hafa sætt refsingu vegna falsaðra bólusetningarvottorða gegn Covid-19-veirunni.

Leit að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar, sem féll niður um jarðfall í Grindavík í janúar 2024, hefur verið hætt og ekki verður ráðist í frekari leitaraðgerðir.

Landskjörstjórn Ísraels hefur hafnað beiðni Likud, flokks forsætisráðherrans Benjamíns Netanjahú, um að halda kjörstöðum opnum lengur en til 22:00 að staðartíma (20:00 að íslenskum tíma), þegar til stendur að kjörfundi ljúki.

Harry Kane gæti verið sæmdur riddaratign eftir að hafa unnið Ballon d’Or-verðlaunin, en forsætisráðherra Bretlands hefur gefið til kynna að afrek enska landsliðsfyrirliðans sé einstakt.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir lögregluna standa frammi fyrir gjörbreyttum veruleika. Á tíu ára tímabili hafi landslag afbrota hér á landi breyst til mikilla muna og nauðsynlegt sé að styrkja og efla lögregluna.

Þór hélt sæti sínu í Bestu deild karla í fótbolta með sigri á FH í lokaumferð deildarinnar, 2:1.

„Án þess að fara neitt sérstaklega í saumana á því hér þá var ég rekin af Samstöðinni þegar ég hugðist snúa aftur úr veikindaleyfi,“ segir María Lilja Þrastardóttir.

Arion banki hefur komist að samkomulagi við fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands.

Sex markverðir komu við sögu í leik Fram og Hauka í úrvalsdeild karla í handbolta í Úlfarsárdalnum á dögunum.

Sveinn R. Eyjólfsson, fyrrverandi blaðaútgefandi, er látinn 88 ára að aldri.

Slysið var tilkynnt til lögreglu sem vinnustaðaslys og var konan flutt með sjúkrabifreið á bráðamóttöku til frekari skoðunar.

Ása segir baráttuna gegn ofbeldi ekki mega einskorðast við tiltekna hópa.

Kai Rooney, sonur Manchester United-goðsagnarinnar Waynes Rooney, skoraði fernu í 6:0-sigri U18 ára liðs United á jafnöldrum Burnley í norðurdeild ensku úrvalsdeildarinnar í dag.

„Á meðan ráðherra segir ákveðin sjónarmið þannig ekki eiga hér pláss hóta samherjar hennar því að þeir verði sóttir til saka sem vilja sporna við útbreiðslu þeirra á Íslandi!“

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út rétt fyrir klukkan 17 í dag vegna gruns um að maður hefði fallið í Ölfusá.

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út rétt fyrir klukkan 17 í dag vegna gruns um að maður hefði fallið í Ölfusá.

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út rétt fyrir klukkan 17 í dag vegna gruns um að maður hefði fallið í Ölfusá.

Serbneski tennisleikarinn Stefan Milićević hefur verið úrskurðaður í 24 ára bann eftir að hafa verið fundinn sekur um að hagræða úrslitum sex leikja og reyna að hagræða úrslitum sex annarra.

„Við höfum áhyggjur af því ef starfsfólk er að veikjast mikið, en við þurfum líka að rýna hvort kerfið sé að einhverju leyti notað með röngum hætti.“

Xavi Espart, varnarmaður Barcelona, verður frá keppni í sjö vikur eftir að hafa meiðst á ökkla í tapinu gegn Real Madrid í El Clásico-leiknum í spænsku 1. deildinni í fótbolta á sunnudag.

Afgreiða á virkjunarleyfi og tengd leyfi sem eitt leyfi á innan við 18 mánuðum frá því að fullnægjandi umsókn berst samkvæmt nýju frumvarpi sem var afgreitt á ríkisstjórnarfundi í morgun.

Kínverskir áhrifavaldar og fjölmiðlafulltrúar munu á ferð sinni um landið kynnast því sem íslensk ferðaþjónusta, náttúra og menning hafa upp á að bjóða.

Glæpasagan Stóri bróðir eftir Skúla Sigurðsson fjallar um mann sem tekur réttlætið í eigin hendur þegar kerfið bregst.

Fuglavernd tekur alvarlega þær áhyggjur kornbænda sem komið hafa fram að undanförnu varðandi tjón af völdum álfta en telur að skoða þurfi aðrar leiðir til að draga úr tjóninu en að skjóta álftir.

Engum úr hópi þeirra sem sagt var upp í dag verður því boðið annað starf innan borgarinnar, líkt og gert var eftir uppsagnirnar í ágúst.

Heimsmeistaramótið í ólympískum lyftingum fer fram í Ningbo í Kína dagana 27. október til 8. nóvember. Ísland sendir sex keppendur til leiks, tvo karla og fjórar konur, sem munu keppa við fremstu lyftingamenn heims.

Nær jafn mörg fyrirtæki eru jákvæð og neikvæð gagnvart markmiðum Íslands um kolefnishlutleysi árið 2040.


Hátt súkkulaðiverð og aukinn framfærslukostnaður setja svip sinn á sælgætiskaup Bandaríkjamanna fyrir hrekkjavökuna. Sala á hrekkjavökusælgæti dróst saman um 6,7% á mánaðartímabilinu sem lauk 17. október, samanborið við sama tímabil í fyrra.

Fréttir eru sóttar úr RSS-straumi Morgunblaðið og hlekkur vísar á upprunann. Sjá alla miðla