

Morgunblaðið

Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, segir mikinn ágreining vera við rússnesk stjórnvöld um stríðið í Úkraínu. Hann og Alexander Stubb, forseti Finnlands, ræddu við Vladimír Pútín Rússlandsforseta í 90 mínútna símtali.

Rússneski hnefaleikakappinn Denis Boytsov, sem keppti í þungavigt og var eitt sinn í öðru sæti heimslistans, er látinn, fertugur að aldri.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir boðskap pakistanska trúarleiðtogans Muhammad Taqi Usmani ganga gegn grunngildum íslensks samfélags.

Rúnar Páll Sigmundsson var í dag formlega kynntur sem þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í fótbolta en félagið hélt blaðamannafund í höfuðstöðvum sínum í Garðabænum í dag.

Þrjú tankskip með rússneska dísilolíu eru á leið til Bandaríkjanna og búist er við að það fjórða leggi úr höfn á morgun, að sögn rússneskra stjórnvalda.

Breytingar hafa verið gerðar á áætlunum við framkvæmdir borgarlínu við Nauthólsveg og Háskólann í Reykjavík. Framkvæmdum við Menntasveig hefur verið flýtt og verður götunni lokað tímabundið fyrir umferð. Þrátt fyrir lokunina verður aðkoma að Háskólanum í Reykjavík óbreytt.

Aukin hætta er á skriðum og grjóthruni vegna mikillar úrkomu á Austfjörðum og hefur Vegagerðin tilkynnt um skriðu sem féll inn á veg á Njarðvíkurskriðum.

Umhverfisdagur atvinnulífsins 2026 er haldinn í ellefta sinn í dag undir yfirskriftinni Sérstaða Íslands.

Þórsarar voru með örlögin í sínum höndum fyrir lokaumferðina í Bestu deild karla í fótbolta og ljóst að sigur á FH myndi nægja til að enda fyrir ofan KA-menn og fella nágranna sína.

Heidi Klum hefur gefið fyrstu innsýn í hrekkjavökubúning ársins og myndin er lítið lík hefðbundinni tískumynd. Fyrirsætan birti nærmynd af litríkum gervihlutum á Instagram laugardaginn 24. október og bað fylgjendur að giska á búninginn

Langhundurinn Max vann ársbirgðir af hundafóðri þegar gæludýraleik K100 og Dýrakofans lauk.

Sorpa hyggst ekki gefast upp í baráttu sinni fyrir því að fá hærri greiðslur frá Úrvinnslusjóði vegna flokkunar á drykkjarfernum frá öðrum pappír.

Kári segir Reykjavíkurborg lengi hafa verið einn af fyrirmyndarvinnustöðum á Íslandi, en það sé af sem áður var. Sífellt sé verið að tala um frekari hagræðingaraðgerðir og að fleiri störf séu undir. Mikill ótti sé ríkjandi.

Rannsóknir á magni laxalúsar á svæðum í Kanada þar sem áður var stundað sjókvíaeldi sýna að magn lúsar á villtum laxi er óbreytt fjórum árum eftir lokun stöðvanna.

Golden State Warriors vann sinn fyrsta leik í NBA-deildinni í körfubolta á leiktíðinni er liðið sigraði Denver Nuggets 134:114 á útivelli.

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, sakaði arabíska stjórnmálaflokka um tilraunir til kosningasvika eftir að fregnir bárust af handtökum einstaklinga sem voru með umslög full af peningum.

Helstu fjölmiðlasamtök og fjölmiðlafyrirtæki Noregs hafa gripið til dómsaðgerða til að koma í veg fyrir að nýir notendaskilmálar Meta taki gildi. Þau segja skilmálana ógna réttindum sínum að eigin fréttaefni.

Undirbúningur hefur staðið yfir í allan morgun í tengslum við leitina að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar, sem féll niður um jarðfall við vinnu í Grindavík í janúar 2024.

Ísland, Liechtenstein og Noregur hafa samið við ný stjórnvöld í Ungverjalandi um samstarf á vettvangi Uppbyggingarsjóðs EES eftir áralanga pattstöðu í samskiptum við stjórn Viktors Orbán, fyrrverandi forsætisráðherra landsins.

Haukar mæta Slovenj Gradec frá Slóveníu í 3. umferð Evrópubikars karla í handbolta en dregið var í höfuðstöðvum evrópska handknattleikssambandsins í Vínarborg í Austurríki í dag.

Tveir breskir ríkisborgarar hafa verið ákærðir fyrir brot gegn þjóðaröryggi Bretlands vegna aðildar þeirra að atvikinu á Fairford-herflugvellinum í september.

Þjónustustúlku hafa verið dæmdar rúmar tvær milljónir króna vegna mismununar og áreitni á skosku hóteli. Hún var fimmtán ára þegar yfirmenn öskruðu á hana og svívirtu eftir að hún missti eplaköku í gólfið.

Bæjarráð Fjarðabyggðar mótmælir harðlega fyrirhuguðum breytingum á Loftbrú og skorar á stjórnvöld að falla frá áformunum. Bæjarráðið segir skerðingu niðurgreiðslna á flugfargjöldum óásættanlega aðför að búsetuskilyrðum á landsbyggðinni.

Bestu deildum karla og kvenna í fótbolta er nú lokið. Í Bestu deild karla var leikið eftir núverandi fyrirkomulagi í fimmta skipti en deildinni var fyrst skipt í efri og neðri hluta árið 2022 og ári síðar tók svipað fyrirkomulag gildi í Bestu deild kvenna.

Styrkur gróðurhúsalofttegunda í andrúmsloftinu náði nýjum methæðum árið 2025, að því er Sameinuðu þjóðirnar greindu frá í dag. Afleiðingarnar fyrir loftslag jarðar munu vara um aldir.

Tugum starfsmanna borgarinnar verður sagt upp störfum í dag í frekari hagræðingaraðgerðum sem borgin hyggst ráðast í.

Hætta skapaðist þegar afskipti voru höfð af hraðamyndavélabifreið lögreglunnar á Vesturlandi í síðustu viku.

Réttur til endurgreiðslu sjúkrakostnaðar utan EES hefur verið framlengdur til loka september á næsta ári.

Þór leikur áfram í Bestu deild karla í fótbolta á næsta ári eftir æsilega fallbaráttu við grannana í KA í lokaumferðunum. Útlitið var ekki bjart eftir 3:0-tap fyrir KA 19. september en Þórsarar sneru bökum saman, unnu þrjá síðustu leiki sína og enduðu einu stigi fyrir ofan KA sem féll



Stause sagðist enn ástfangin þegar hún greindi frá sambandsslitunum.

Það hvessir um klukkan 19 í kvöld úr norðvestri á Austfjörðum og geta vindhviður náð allt að 35 m/s í vindstrengjum við fjöll, t.d. í Hamarfirði.

Mikael Egill Ellertsson skoraði glæsilegt sigurmark fyrir Genoa er liðið sigraði Venezia, 1:0, á heimavelli í efstu deild Ítalíu í fótbolta á sunnudag.

Fjárheimildir ríkisins vegna Loftbrúarinnar hafa verið 600 milljónir frá árinu 2021 sem var fyrsta heila starfsár verkefnisins.

Holland mun ekki taka þátt í Eurovision á næsta ári vegna þátttöku Ísraels. Þetta tilkynnti hollenska ríkisútvarpið NPO í dag og vísaði til þeirrar sundrungar sem þátttaka Ísraels hefur valdið í samfélaginu.

Samir Nasri, fyrrverandi landsliðsmaður Frakka, hefur gagnrýnt að Harry Kane hafi hlotið Gullknöttinn (Ballon d'Or) en Kane hlaut verðlaunin í fyrsta skipti í gær.

Lokaður borgarstjórnarfundur hófst klukkan átta í morgun í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Alexander Stubb, forseti Finnlands, greindi frá því í dag að hann og Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, hefðu rætt símleiðis við Vladimír Pútín Rússlandsforseta um viðleitni til að binda enda á stríðið í Úkraínu. Sagði Stubb samtalið hafa verið hreinskilið og efnisríkt.

Fréttir eru sóttar úr RSS-straumi Morgunblaðið og hlekkur vísar á upprunann. Sjá alla miðla