

Morgunblaðið

Lögregla mun fá heimild til að haldleggja tímabundið ökutæki fólks sem hefur keyrt utan vega til að koma í veg fyrir áframhaldandi brot eða frekari spjöll á náttúrunni. Þá verða viðurlög vegna slíkra brota hert og Náttúruverndarstofnun verður heimilt að krefja þá sem valda spjöllum um kostnað við úrbætur.

Lögregla mun fá heimild til að leggja tímabundið hald á ökutæki fólks sem hefur keyrt utan vega til að koma í veg fyrir áframhaldandi brot eða frekari spjöll á náttúrunni.

Enn eru dæmi þess á Landspítalanum að starfsfólk kynni sig fyrir sjúklingum sem sjúkraliða, án þess að hafa til þess réttindi. Þetta segir Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, í samtali við Morgunblaðið.

Leirlistakonan Margrét Jónsdóttir sýnir og selur handgerð leirverk í verslun Anitu Hirlekar á Hafnartorgi dagana 23. til 25. október. Margrét verður sjálf á staðnum og gefst gestum tækifæri til að kynnast henni og heyra meira um verkin og sköpunarferlið. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Margréti.

Pekka Salminen, landsliðsþjálfari kvenna í körfubolta, hefur valið 15 leikmenn sem koma saman til æfinga í nóvember fyrir leiki í undankeppni EuroBasket.

Hagnaður Sjóvár nam 1.905 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins, samanborið við 666 milljónir á sama tímabili í fyrra.

Dæmi eru um að börn á vegum Barnaverndar Reykjavíkur séu vistuð mánuðum saman í bráðavistun umfram þann tíma sem reglur heimila og að börn hafi verið vistuð hjá aðilum án gilds fósturleyfis.


Úkraínska lögreglan greindi frá því í dag að hún hefði handtekið 17 ára stúlku sem grunuð er um að hafa aðstoðað rússneskar öryggissveitir við að eitra fyrir úkraínskum hermönnum og að tveir þeirra hefðu látist.


LeBron James og félagar í Philadelphia 76ers fara vel af stað á tímabilinu í NBA-deildinni í körfubolta.

Hafnarfjarðarbær þarf að grípa til verulegs aðhalds í rekstri, endurskoða þarf forgangsröð og óhjákvæmilegt er að fresta einhverjum fyrirhuguðum aðgerðum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir 2027.

Það eru fáir sem geta haldið í við sóknarmanninn Gils Gíslason þegar hann tekur á sprett í búningi FH í Bestu deild karla í fótbolta.

Gigi Hadid var heldur betur ekki sátt við netverja þegar þeir voru að gagnrýna Elsu Hosk sem er samstarfskona hennar.

Kostnaður Icelandair við verkfall flugvirkja í september var um 4 milljónir dala, eða um hálfur milljarður króna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í uppgjörskynningu félagsins, en í gær birti félagið uppgjör fyrir þriðja ársfjórðungs.

Tessa Wullaert, fyrirliði belgíska kvennalandsliðsins í fótbolta og ein fremsta knattspyrnukona Evrópu, tjáði sig um brotthvarf Elísabetar Gunnarsdóttur í gær.

Vetrarþjónusta Reykjavíkurborgar er komin af stað og var farið í söltunaraðgerðir í borginni í gærkvöldi. Aftur var farið út í nótt og helstu stofnleiðir saltaðar.

Alvarlegt umferðarslys varð á Hellisheiði, nálægt Hveradalabrekkunni, í gærkvöld þar sem einn var fluttur alvarlega slasaður á Landspítalann eftir árekstur.

„Við stefnum á að hefja hvalaskoðunarferðir frá Akureyri 1. maí á næsta ári,“ segir Páll Steingrímsson fyrrverandi skipstjóri um fyrirtækið Sturlunga ehf. sem hann hefur stofnað með eiginkonu sinni, Yngveldi Myrru Sturludóttur

Íslenska húðvörumerkið Lovaiceland heldur áfram að þróast og kynnir nú þrjár spennandi nýjungar. Á sama tíma minna reynslusögur viðskiptavina á hversu mikil áhrif góð húðumhirða getur haft á daglega líðan.

Barcelona hefur kært París SG til UEFA vegna borða með skilaboðum sem félagið segir hvetja til ofbeldis og haturs í íþróttum. Borðarnir fóru á loft í stúkunni fyrir leik liðanna í Meistaradeildinni í fótbolta á Prinsavöllum á þriðjudag.

Guðmundur Felix Grétarsson, sem gekkst undir tvöfalda handleggjaágræðsluaðgerð árið 2021, glímir nú við höfnunareinkenni í græddu handleggjunum. Hann telur að krabbameinsmeðferð sem hann hefur gengist undir á undanförnum mánuðum kunni að hafa komið höfnuninni af stað.

Knattspyrnukonan Alma Mathiesen hefur gert tveggja ára samning við 1.deildarlið Hauka en hún kemur frá nágrönnunum í FH.

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrales, segir að ísraelskir hermenn hafi komið í veg fyrir stórfellda árás eftir að hermenn felldu tvo vopnaða palestínska árásarmenn í skotbardaga þar sem fimm særðust nálægt borginni Hebron á Vesturbakkanum.

Sögufræga lúxushótelið Plaza í New York lokar í að minnsta kosti fjögur ár og setur áform brúðhjóna sem höfðu bókað þar brúðkaup í uppnám.

Japanski rithöfundurinn Ryu Murakami er látinn, 74 ára að aldri. Þetta tilkynnti útgefandi hans á föstudag. Verk Murakamis voru ögrandi og fjölluðu að miklu leyti um kynlíf og ofbeldi. Þau voru þýdd víða um heim.

Starfsmönnum í nýja öryggisfangelsinu að Stóra-Hrauni mun fjölga um tugi frá núverandi fjölda starfsmanna á Litla-Hrauni en þar starfa núna í kringum 80 manns.

Það er víða hálka á vegum landsins og til að mynda leynist hún á höfuðborgarsvæðinu eftir að frysti í nótt.

Endanleg krufningarskýrsla liggur nú fyrir í máli fimm vikna gamals ungbarns sem fannst látið á heimili sínu í Bergen í Noregi í sumar og er föðurnum stórlega létt yfir niðurstöðunni. Báðir foreldrar barnsins eru ákærðir og krefjast verjendur þeirra þess að saksóknari felli málið niður í ljósi krufningarskýrslunnar.

Sænski bílaframleiðandinn Volvo Cars greindi frá því í dag að fyrirtækið hygðist fækka störfum um 2.500 á heimsvísu, en bandarískir tollar og hörð samkeppni frá innlendum vörumerkjum í Kína ollu tapi á þriðja ársfjórðungi.


Óvenjulangar biðraðir eru á Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn, að því er danska sjónvarpsstöðin TV2 greinir frá.

Bianca Censori fær hrós fyrir stílinn eftir að hafa birt djarfa myndaröð á Instagram.

Bleiki liturinn hefur verið áberandi í október þegar landsmenn hafa sýnt Bleiku slaufunni stuðning. En bleiki liturinn getur líka átt heima á matarborðinu og þar er ýmislegt fleira í boði en kökur og sætindi.

Lögreglan fékk tilkynningu um að ökumaður leigubifreiðar sem átti að hafa kýlt annan. Lögreglan kom á staðinn og ræddi við báða aðila. Myndefni á vettvangi gaf góða mynd af því sem átti sér stað og er málið í rannsókn.

Í dag verður fremur hæg suðlæg eða breytileg átt á landinu með stökum skúrum eða slydduéljum en úrkomulítið verður norðantil. Hitinn verður á bilinu 1 til 7 stig að deginum, mildast á Austfjörðum og Suðausturlandi, en víða eru líkur á næturfrosti.

Sigurlaug Guðmundsdóttir Rósinkranz sópransöngkona lést í Bandaríkjunum 18. október, 91 árs að aldri.

Björgvin Víkingsson framkvæmdastjóri Bónuss tekur undir orð Svans Valgeirssonar, framkvæmdastjóra Spar, Krambúðanna og 10/11-verslananna, í Morgunblaðinu í gær, um áhrif mikilla hækkana kílómetragjalds og eldsneytis á reksturinn.


Fréttir eru sóttar úr RSS-straumi Morgunblaðið og hlekkur vísar á upprunann. Sjá alla miðla