

Morgunblaðið

Elías Rafn Ólafsson, landsliðsmarkvörður í fótbolta, fékk á verka á nýra er hann varði mark Midtjylland gegn OB í síðasta mánuði.

Tilkynnt var um árekstur í umdæmi lögreglustöðvar 2, sem annast Hafnarfjörð, Garðabæ og Álftanes, í dag þar sem ökumaður annarrar bifreiðarinnar flúði vettvang með því að aka á brott. Annað skráningarmerkið af ökutæki hans varð eftir á vettvangi.

Javier Tebas, forseti La Liga, hefur neitað að biðjast afsökunar eða segja af sér eftir að hafa líkt samskiptastefnu Real Madrid við áróður Josephs Goebbels, áróðursmálaráðherra nasista.

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið óskar eftir dæmum um hindranir sem notendur Apple-tækja mæta vegna þess að íslenska er ekki í boði. Dæmin eiga að styrkja samtal ráðuneytisins við Apple um innleiðingu íslensku í stýrikerfi fyrirtækisins og sýna hvaða ávinningur fylgi íslenskum tungumálastuðningi.

Matthías Guðmundsson hefur látið af störfum sem þjálfari kvennaliðs Vals í fótbolta.

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra harðlega á Alþingi í dag fyrir að torvelda aðgang nýsköpunarfyrirtækja að heilbrigðiskerfinu. Alma sagðist eiga erfitt með að átta sig á gagnrýninni.

Jarðskjálfti af stærðinni 7,0 reið yfir Tíbet í dag að sögn bandarískra jarðskjálftafræðinga.

Körfuknattleiksmaðurinn Veigar Páll Alexandersson hefur ekkert leikið með Njarðvík á leiktíðinni í úrvalsdeildinni í körfubolta.

Engar tölur eru til um það hve margir nota ólögleg peptíð hér á landi, að sögn Ölmu Möller heilbrigðisráðherra.

„Safnarar víða í heiminum hafa haft samband við mig og þakkað fyrir framtakið,“ segir tónlistargagnrýnandi Morgunblaðsins.

Lögreglan í Cheshire á Englandi rannsakar innbrot á heimili Bruno Fernandes, fyrirliða Manchester United, sem framið var á meðan hann lék í 4:1-tapi liðsins gegn Como á Ítalíu í Meistaradeildinni í fótbolta í gær.

Lögreglan í Cheshire á Englandi rannsakar innbrot á heimili Bruno Fernandes, fyrirliða Manchester United, sem framið var á meðan hann lék í 4:1-tapi liðsins gegn Como á Ítalíu í Meistaradeildinni í fótbolta í gær.

Félag atvinnurekenda (FA) gagnrýnir að frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um svokallaða leigubremsu nái einnig til atvinnuhúsnæðis. Félagið telur skorta rök fyrir skerðingu á samningsfrelsi fyrirtækja og varar við neikvæðum áhrifum á fjárfestingar og atvinnurekstur.

Aðeins rétt rúmlega 40.000 stuðningsmenn mættu á leik Manchester City og AEK frá Aþenu í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í vikunni.

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, telur að óánægja innan Viðreisnar muni ágerast í kjölfar brotthvarfs Jóns Gnarr. Gagnrýni hans endurspegli vonbrigði fleiri stuðningsmanna með stefnu flokksins og framgöngu ráðherra hans.


Landsréttur hefur staðfest úrskurði um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum sem eru undir sterkum grun um að hafa ásamt öðrum staðið að innflutningi á rúmum tíu og hálfu kílói af amfetamíni og tæpum tveimur kílóum af kókaíni. Efnin fundust falin í húsbíl sem kom til landsins í maí.

Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að maður, sem ákærður er fyrir nauðgun, skuli sæta gæsluvarðhaldi til 16. nóvember vegna hættu á að hann flýi land.

Mál karlmanns, sem grunaður er um að hafa orðið föður sínum að bana í sumar, er komið til héraðssaksóknara.

Enski knattspyrnumaðurinn Fikayo Tomori er á óskalista enska úrvalsdeildarfélagsins Newcastle.

Bjarni Benediktsson, fyrrverandi forsætisráðherra og núverandi framkvæmdastjóri SA, er formaður nýs spretthóps sem á að greina tækifæri og áskoranir í utanríkisviðskiptum og kortleggja ný viðskiptatækifæri fyrir Ísland. Gert er ráð fyrir að hópurinn skili aðgerðaáætlun með markmiðum snemma árs 2027.

Ákvörðun KFC um að kveðja Pepsi eftir nær fjögurra áratuga samstarf var ekki tekin á einu bretti. Á bak við hana var tveggja daga lokað uppgjör þar sem Coca-Cola og PepsiCo fengu hvort um sig tækifæri til að sannfæra stjórnendur og sérleyfishafa KFC.

Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, þætti það „eðlilegasti hlutur í heimi“ að umsókn Íslands að Evrópusambandinu yrði dregin til baka.

Það verður að teljast ólíklegt að ítalski knattspyrnustjórinn Antonio Conte taki við stjórnartaumunum hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Manchester United.

Franskir dómstólar hafa dæmt 217 manns til fangelsisvistar í flýtimeðferð mála sem tengjast óeirðum síðustu helgar.

Loftslagssjóður Sameinuðu þjóðanna, sem snýr að tapi og tjóni, hefur ákveðið að veita 20 milljónir dala, eða um 2,5 milljarða króna, í neyðaraðstoð til Nepals, sem hafði sótt um styrkinn.

Virgil van Dijk átti ekki sinn besta leik fyrir Liverpool þegar liðið tók á móti Villarreal í 3. umferð Meistaradeildarinnar í fótbolta á Anfield á þriðjudaginn.

Beitir NK kom með 800 tonn af síld til Neskaupstaðar í gærkvöldi. Gert er ráð fyrir að vinnslu aflans ljúki í kvöld.

Hótel á landsbyggðinni hafa í sumum tilvikum ákveðið að draga úr þjónustu í vetur og jafnvel loka tímabundið. Sem dæmi hefur hótelið í Kerlingarfjöllum ákveðið að loka dyrum sínum fyrir almennum bókunum frá nóvember fram í mars en það tekur við hópapöntunum á sama tíma.

Seðlabanka Íslands bar að varðveita gagnasafn sem hafði að geyma persónuupplýsingar Þorsteins Más Baldvinssonar og var óheimilt að eyða gögnunum án heimildar Þjóðskjalasafns Íslands.

Danir hafa fest kaup á langdrægum eldflaugum frá bandarískum og norskum framleiðendum, ári eftir að dönsk stjórnvöld sögðust myndu afla sér slíkra vopna til að fæla Rússa frá.

Cesc Fabregas, knattspyrnustjóri Como, sagði leikmönnum sínum að slaka á og spara orkuna þegar síga fór á seinni hlutann í leik liðsins gegn Manchester United í 3. umferð Meistaradeildarinnar í gær.

Land heldur áfram að rísa við Svartsengi en vísindamenn leggja ólíkt mat á hvað það boðar. Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur telur virkni við Sundhnúka vera að líða undir lok, ef henni sé ekki þegar lokið. Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur telur hins vegar að umbrotin séu enn í fullum gangi.

Sharon Osbourne segir eiginmann sinn hafa stigið á svið í síðasta sinn þrátt fyrir viðvaranir lækna. Jafnvel börn þeirra vissu ekki hversu veikur hann var.

Fasteignamarkaðurinn var með daufasta móti í lok sumars og þarf að leita aftur til ársins 2014 til að finna jafnfáa þinglýsta kaupsamninga í ágústmánuði. Nokkur viðspyrna varð þó í september, þótt umsvif á markaðnum séu enn lítil miðað við undanfarin ár.

Margrét Halla Hansdóttir Löf, sem afplánar nú 16 ára fangelsisdóm fyrir að verða föður sínum að bana á heimili þeirra í Garðabæ, hefur óskað eftir að fá að flytjast af fangelsinu á Hólmsheiði að Sogni. Erindi hennar hefur ekki verið svarað, að sögn Sigurðar G. Guðjónssonar lögmanns, verjanda hennar.

Belgíski knattspyrnumaðurinn Thibaut Courtois vonast til þess að ljúka ferlinum hjá spænska stórveldinu Real Madrid.

Framkvæmdir hefjast á næstu dögum vegna endurgerðar norðursvæðis Hlemms og gatnamóta og göturýmis, vinnu við nýtt torgsvæði og uppbyggingu borgarlínu á Hlemmtorgi. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum þessa áfanga ljúki í lok árs 2027.

Skýrslan er sú fyrsta sinnar tegundar og flokkar hún 96% kóralrifja jarðar í bráðri hættu, sem er hæsti áhættuflokkur stofnunarinnar.

Fréttir eru sóttar úr RSS-straumi Morgunblaðið og hlekkur vísar á upprunann. Sjá alla miðla