

Sunnlenska

Skyldusigur í Vallaskóla
Selfoss vann talsvert öruggan sigur á ÍR í 1. deild kvenna í körfubolta þegar liðin mættust í Vallaskóla í kvöld. Lokatölur urðu 109-37. Selfoss hafði frumkvæðið frá fyrstu mínútu og staðan í hálfleik var 48-18. Munurinn jókst ennþá hraðar í seinni hálfleiknum en þegar síðasti fjórðungurinn hófst leiddi Selfoss 83-28.

Hrasaði um reimarnar fyrir framan hóp af krökkum
Leikfélag Selfoss frumsýnir í kvöld leikritið Grandavegur 7 sem byggt er á samnefndri skáldsögu Vigdísar Grímsdóttur. Leikstjóri sýningarinnar er Rúnar Guðbrandsson. Þetta er fjölskyldusaga þriggja kynslóða þar sem fortíð og nútíð fléttast saman. Sigrún Sighvatsdóttir, gjaldkeri Leikfélags Selfoss, er framkvæmdastjóri

Leikfélag Sólheima hlýtur Menningarverðlaun Suðurlands
Leikfélag Sólheima hlaut í gærkvöldi Menningarverðlaun Suðurlands fyrir árið 2026. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í LAVA centre á Hvolsvelli í tengslum við ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. Leikfélagið fær viðurkenninguna fyrir ómetanlegt framlag til menningarlífs á Suðurlandi, frumkvöðlastarf í i

Hringur, kór eldri borgara í Rangárþingi, fagnar 20 ára afmæli sínu með afmælistónleikum sunnudaginn 1. nóvember kl. 14:30 í Hátíðarsal Grunnskólans á Hellu. Á tónleikunum kemur Hringur fram ásamt Vinum Jenna og Sigurði Matthíasi Sigurðarsyni einsöngvara. Guðjón Halldór Óskarsson leikur á píanó og stjórnandi kórsins er

Það var boðið upp á alvöru leik þegar Selfoss tók á móti Þór Þorlákshöfn í 1. deild karla í körfubolta á Selfossi í kvöld. Þessari fyrstu viðureign sunnlensku félaganna á Íslandsmótinu lauk með sigri Þórs, 100-107. Þórsarar byrjuðu betur, komust í 12-20 og staðan var 17-25 eftir 1. leikhluta. Það var alvöru keyrsla í 2

Selfoss heimsótti ÍR í Breiðholtið í úrvalsdeild kvenna í handbolta í kvöld. Mikið jafnræði var með liðunum og lauk leiknum með 25-25 jafntefli. Leikurinn var hnífjafn allan tímann, liðin skiptust á um að hafa forystuna en munurinn var aldrei meiri en 1-2 mörk. ÍR leiddi í hálfleik, 13-12. Jafnræðið hélt áfram í seinni

Nýliðar í landbúnaði geta fengið stuðning við kaup á búrekstri. Hafi þeir áður leigt sama búrekstur getur sá tími þó orðið til þess að þeir teljist ekki lengur nýliðar þegar kaupin fara fram. Þannig getur reynsla af rekstrinum fyrir kaup skert möguleikann á stuðningi við fjárfestinguna. Þetta kemur fram í svörum Atvinn

Menningarviðurkenning Árborgar 2026 var veitt við fjölmenna og fjöruga athöfn í Grænumörk í dag, 29. október. Menningarviðurkenningar Árborgar 2026 kom í hlut Magnúsar J. Magnússonar. Athöfnin hófst með því að Hörpukórinn söng undir stjórn Stefáns Þorleifssonar. Þar á eftir afhenti Kjartan Björnsson Magnúsi viðurkennin

Um 50 manns sóttu skólaþing um framtíð skólastarfs á Eyrarbakka og Stokkseyri sem haldið var á Stokkseyri á dögunum. Tilgangur fundarins var að skapa vettvang fyrir samtal um framtíð skólastarfs við ströndina. Sérstaklega var óskað eftir þátttöku foreldra og forráðamanna nemenda í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokksey

Fyrir skömmu kom út bókin Skepnufólk eftir Hörpu Rún Kristjánsdóttur frá Hólum við Heklurætur. Þetta er sjöunda bók Hörpu Rúnar en hún sendi meðal annars frá sér ljóðabókina Eddu sem hún hlaut bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2019. „Bókin fjallar um sauðfjárbændur og skepnurnar þeirra. Mig langaði til þess

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir Suðurland og Faxaflóa á fimmtudagsmorgun vegna hvassviðris. Á Suðurlandi gildir viðvörunin frá klukkan 4 í nótt til klukkan 8 í fyrramálið. Gert er ráð fyrir suðaustan 13-20 m/sek og rigningu. Það verður varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind að vera á ferðinni

Sveitarfélagið Árborg hefur birt árshlutauppgjör samstæðunnar fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2026. Uppgjörið sýnir sterkan undirliggjandi rekstur og góða tekjuöflun, þrátt fyrir krefjandi ytri aðstæður. Verðbólgan er þar stærsti óvissuþátturinn og hefur veruleg neikvæð áhrif á rekstrarniðurstöðuna. Rekstrartekj

Selfoss tók á móti fram í úrvalsdeild karla í handbolta í Set-höllinni Iðu í kvöld. Bæði lið hafa verið í basli síðustu vikur en Framarar hristu af sér slenið og unnu öruggan sigur, 29-35. Framarar leiddu allan tímann, þeir skoruðu fyrstu þrjú mörk leiksins en Selfoss tókst að jafna 5-5. Þá tóku Framarar á rás […]

Þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir í Árnessýslu voru kallaðar út á fimmta tímanum í dag eftir að óttast var að maður hefði fallið í Ölfusá, skammt frá Ölfusárbrú á Selfossi. Svo reyndist ekki vera, maðurinn fannst fljótlega á gangi á Selfossi heill á húfi. Þyrlan var þá komin á Selfoss og björgunarsveitir ko

Út er komin bókin Holts saga eftir Óskar Guðmundsson rithöfund og sagnfræðing. Bókin er 400 síður í allstóru broti, ríkulega myndskreytt og spannar sögu Holts undir Eyjafjöllum og nágrennis allt frá landnámi til okkar daga. Hér er rakin saga prestsseturs og þúsund ára saga mannlífs undir Eyjafjöllum; klerka, kvenna og

Í Bókasafni Árborgar á Selfossi hefur verið komið fyrir búningaskiptislá fyrir hrekkjavökuna. Þetta er í þriðja sinn sem bókasafnið stendur fyrir búninga-hringrásarkerfi fyrir hrekkjavökuna. Ekki er skilyrði að koma með búning til að fá einn af slánni. „Við settum slána upp núna síðastliðinn mánudag. Þetta er þriðja ár

Í Bókasafni Árborgar á Selfossi hefur verið komið fyrir búningaskiptislá fyrir hrekkjavökuna. Þetta er í þriðja sinn sem bókasafnið stendur fyrir búninga-hringrásarkerfi fyrir hrekkjavökuna. Ekki er skilyrði að koma með búning til að fá einn af slánni. „Við settum slána upp núna síðastliðinn mánudag. Þetta er þriðja ár

Barnavöruverslunin Emil&Lína stendur fyrir jólagjafasöfnun á Selfossi þessa aðventuna, í samstarfi við Sjóðinn Góða og hefst söfnunin formlega þann 3. nóvember næstkomandi. Markmiðið er að safna 150 gjöfum fyrir börn og fullorðna á Selfossi og nágrenni sem annars fengju lítið og Sjóðurinn góði mun sjá um að úthluta gjö

Pálsson fasteignasala eflir þjónustu sína á Suðurlandi þar sem Andrea Ósk Harradóttir, löggiltur fasteignasali hjá fyrirtækinu, mun sinna viðskiptavinum á Selfossi, í Hveragerði, Þorlákshöfn og nágrenni. Áhersla verður lögð á að veita íbúum svæðisins persónulega þjónustu við kaup og sölu fasteigna og vandaða kynningu e

Landsamband eldri borgara (LEB) hefur á síðustu fimm árum náð mikilvægum árangri í réttinda- og kjarabaráttu eldra fólks. Það er ástæða til að fagna þeim sigrum sem unnist hafa. Þeir eru ekki sjálfsagðir og komu ekki af sjálfu sér. Þeir eru afrakstur þrotlausrar baráttu, samstöðu og skýrrar kröfugerðar gagnvart stjórnv

Undirbúningur fyrir einn stærsta áfanga við byggingu nýrrar Ölfusárbrúar stendur nú yfir. Á næstu dögum verður 330 metra langt og um 2.000 tonna þungt brúargólf dregið frá austurbakka Ölfusár yfir á vestari bakkann. Verkið er vandasamt og gert er ráð fyrir að það taki um tíu daga. Undanfarið hefur verið unnið að því að

Leikfélag Selfoss frumsýnir leikverkið Grandaveg 7 föstudaginn 30. október. Verkið er byggt á samnefndri skáldsögu Vigdísar Grímsdóttur og leikgerð Kjartans Ragnarssonar og Sigríðar Margrétar Guðmundsdóttur. Leikstjóri sýningarinnar er Rúnar Guðbrandsson. Hann hefur áður leikstýrt þremur sýningum hjá Leikfélagi Selfoss

Sveitarfélagið Árborg veitir Menningarviðurkenningu Árborgar næstkomandi fimmtudag, þann 29. október kl. 14:30 í Grænumörk á Selfossi. Viðurkenningin er veitt vegna framúrskarandi starfa í þágu menningarlífs í Árborg en viðburðurinn er hluti af dagskrá Menningarmánaðarins október. Hörpukórinn undir stjórn Stefáns Þorle

Hvergerðingurinn og frumkvöðullinn Steinar Gunnbjörnsson setti nýlega á markað tæknilausnina Stimpil sem gerir fyrirtækjum kleift að færa hefðbundin stimpilkort úr pappírsformi yfir í síma viðskiptavina. „Hugmyndin kom upp í hugarflugi hjá mér, ég hef reynt margt áður en þegar ég fór svo að ræða við eigendur fyrirtækja

Það hefur verið líf og fjör á motocrossbrautinni hjá okkur í sumar sem er staðsett rétt austan við Hellu. Þar hafa börn og ungmenni komið saman til að æfa, læra á hjólin sín og hafa gaman. Það hefur verið einstaklega ánægjulegt að fylgjast með því hvernig starfið hefur þróast og vaxið. Svæðið var opnað sumarið […]

Fyrirtækið Trucks ehf hefur tryggt sér um 7.000 fermetra lóð í Þorlákshöfn þar sem áformað er að byggja upp aðstöðu fyrir sölu, verkstæðisþjónustu og aðra starfsemi tengda atvinnubifreiðum og vinnuvélum. Í tilkynningu frá félaginu segir að fyrirhuguð uppbygging sé liður í langtímastefnu félagsins um að efla þjónustu vi

Það er ákveðin áfangi að klára fyrstu mánuði hvers kjörtímabil. Setur tóninn fyrir það sem koma skal í þjónustu við íbúa og uppbyggingu samfélags. Hér í Árborg hefur meirihluti Sjálfstæðisflokksins (D-listans) ekki setið auðum höndum, enda stoltur hluti af góðri ellefu manna bæjarstjórn sem vill láta verkin tala. Hér a

Við sem búum í Hveragerði þekkjum nálægðina við orkuvinnsluna manna best. Við sjáum gufubólstrana rísa upp frá Hellisheiðarvirkjun, Hverahlíð og Folaldahálsi. Auk þess er jarðvarmavirkjun við Bolaöldu í orkunýtingarflokki rammaáætlunar, sem er enn ein virkjunin í okkar nærumhverfi. Flest höfum við fundið jörðina skjálf

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til viðurkenninga Félags kvenna í atvinnulífinu 2027. Atvinnulífið og almenningur eru hvött til að tilnefna konur sem hafa skarað fram úr, sýnt frumkvæði eða verið öðrum fyrirmynd. Tilnefna má í einum eða fleiri flokkum til og með 22. nóvember 2026. Árlega heiðrar Félag kvenna í atv

Héraðsmót HSK í glímu fór fram í Þingborg í Flóahreppi síðastliðinn miðvikudag. Lúkas Týr Sigurðsson frá Krossi í Landeyjum og keppandi Dímonar hampaði Skarphéðinsskildinum í fyrsta sinn. Í karlaflokki var keppt um Skarphéðinsskjöldinn í 98. skipti. Lúkas Týr er sá 45. í röðinni til að vinna skjöldinn í 116 ára sögu ke

Í dag, sunnudaginn 25. október, hefst hin árlega garðfuglakönnun Fuglaverndar og stendur til 24. apríl. Garðfuglakönnun hófst árið 1994 og hefur staðið óslitið síðan. Hér er slóð á viðburðinn á heimasíðu Fuglaverndar Tilgangur garðfuglakönnunar er að fá upplýsingar um fuglategundir og fjölda fugla sem halda sig í görðu

Verkefnið Allir á bak, sem Elísabet Sveinsdóttir hefur frumkvæði að og umsjón með hjá Hestamannafélaginu Sleipni á Selfossi, hefur hlotið 200.000 króna styrk úr Samfélagsstyrk Krónunnar árið 2026. Samfélagsstyrkur Krónunnar er veittur árlega til verkefna sem hafa jákvæð áhrif á nærsamfélög verslana fyrirtækisins. Meðal

Það skaut verulega skökku við þegar við fréttum nú síðsumars að leggja ætti niður leið landsbyggðarstrætós hér í uppsveitum. Í kjölfar mótmæla fékkst í gegn að halda inni tveimur ferðum á dag, að morgni og síðdegis, en þó aðeins á virkum dögum. Eftir stendur þjónusta sem gegnir fyrst og fremst hlutverki skólabíls. Til

Fjölskyldur hafa streymt í Hornið Creative Studio í miðbæ Selfoss í haustfríinu, þar sem börn og fullorðnir mála drauga, grasker og leðurblökur í hrekkjavökuanda. Það er hrollvekjandi stemning í Horninu við Brúarstræti 12 þessa dagana. Nornahattar svífa yfir vinnuborðunum, risakónguló hangir í glugganum og nornapottur

Sunnlensku liðin áttu öll leik í 1. deild karla í körfubolta í gærkvöldi. Hamar og Selfoss unnu góða sigra en mesta spennan var fyrir leiki kvöldsins var fyrir toppslag Þórs og ÍA í Þorlákshöfn. Þórsarar voru á hælunum í upphafi leiks og eftir rúmar sex mínútur var staðan orðin 9-22, gestunum í vil. Þórsarar réttu […]

Sóknarleikurinn var allsráðandi og fátt um varnir þegar Selfoss 2 og Víkingur 2 mættust í 1. deild karla í handbolta í Set-höllinni á Selfossi í gærkvöld. Leikurinn var jafn framan af fyrri hálfleiknum en á síðustu tíu mínútunum náðu Selfyssingar að koma sér upp þriggja marka forskoti og staðan var 19-16 í hálfleik. Se

Selfoss tyllti sér á toppinn í 1. deild kvenna í körfubolta í kvöld með góðum sigri á KV á útivelli, 60-78. Selfyssingar höfðu töglin og hagldirnar í fyrri hálfleik en staðan var 25-43 í hálfleik. Seinni hálfleikurinn var jafnari en Selfoss hélt KV í öruggri fjarlægð allan tímann. Kennedi Watkins var stigahæst Selfyssi

Um helgina leggur kórinn VOX Rangárþing undir sig Tjarnarbíó í Reykjavík og heldur þar tvenna tónleika, á laugardagskvöld og um miðjan dag á sunnudag. Tónleikarnir, sem slógu algjörlega í gegn á heimavelli í vor, bera yfirskriftina ÁST en eins og nafnið gefur til kynna þá fjalla þeir um ástina í öllum sínum myndum. Gáb

Það er ekki á hverjum degi sem bremsuviðgerð á Ferrari leiðir til Óskarsverðlauna, en þannig hófst samstarfið á bak við eitt frægasta ástarlag níunda áratugarins, Take My Breath Away úr kvikmyndinni Top Gun. Hr. Eydís og Erna Hrönn hafa nú sent frá sér nýja ábreiðu af laginu á YouTube-rás hljómsveitarinnar. Upprunalega

Íbúar Hrunamannahrepps eru í dag 1.014 talsins, en voru 982 í desember 2025. Þeim hefur því fjölgað um 32, eða um 3,2% á árinu sem er að líða samkvæmt Þjóðskrá. „Þetta er ánægjuleg þróun sem gefur tilefni til bjartsýni og skapar tækifæri til að efla samfélagið enn frekar. Verslun og þjónusta mun styrkjast með fleiri […

Lögreglan á Suðurlandi fékk tilkynningu um alvarlegt umferðarslys á Hellisheiði á tíunda tímanum í kvöld. Einn einstaklingur var fluttur alvarlega slasaður á slysadeild eftir árekstur. Viðbragðsaðilar frá Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu komu á vettvang en mikil hálka var á heiðinni. Skömmu síðar barst tilkynning um an

Nýverið opnaði Fish & chips veitingastaður að Smiðjuvegi 7 í Vík í Mýrdal. Veitingastaðurinn, sem fyrir er við Mývatn, hlaut alþjóðleg verðlaun fyrr á þessu ári fyrir besta fisk og franskar réttinn utan Bretlands. Fish & Chips staðurinn er staðsettur í glænýju húsnæði sem Penninn ehf. reisti en húsnæðið opnaði í apríl

Fréttir eru sóttar úr RSS-straumi Sunnlenska og hlekkur vísar á upprunann. Sjá alla miðla