
Austurland
Fréttir sem tengjast Austurlandi, sjálfvirkt flokkaðar úr straumi allra miðla.

Djúp lægð nálgast landið, Búast má við stormi og úrhellisrigningu
Útlit er fyrir hvassviðri og mikla úrkomu víða um land á fimmtudag þegar djúp lægð nálgast landið úr suðri.Samkvæmt nýjustu spám Veðurstofu Íslands má búast við stormi víða um land og úrhellisrigningu á Suðausturlandi og Austfjörðum.

Eimskip kaupir nýjan krana fyrir Mjóeyrarhöfn
Eimskip hefur pantað nýjan gámakrana til notkunar í Mjóeyrarhöfn í Reyðarfirði. Kraninn er að mestu rafknúinn og dregur þannig bæði úr mengun og rekstrarkostnaði.

Blængur fór hringinn í túr sínum
Frystitogarinn Blængur NK landaði 602 tonna afla í Neskaupstað í gær að lokinni 26 daga veiðiferð. Verðmæti aflans er rúmar 394 milljónir króna. Skipið heldur aftur til veiða í kvöld.

Fyrirtækið sem rekur tjaldstæðið á Egilsstöðum hefur malað gull síðustu ár. Á árunum 2023 til 2025 hagnaðist fyrirtækið um rúmlega 116 milljónir og greiddi út 98 milljóna króna arð. Tekjurnar á þessu tímabili námu 264 milljónum króna. Hagnaðarhlutfallið er því meira en 40 prósent sem telst afar gott og hátt í rekstri f
Fyrirtækið sem rekur tjaldstæðið á Egilsstöðum hefur malað gull síðustu ár. Á árunum 2023 til 2025 hagnaðist fyrirtækið um rúmlega 116 milljónir og greiddi út 98 milljóna króna arð. Tekjurnar á þessu tímabili námu 264 milljónum króna. Hagnaðarhlutfallið er því meira en 40 prósent sem telst afar gott og hátt í rekstri f
Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu báðar nær fullfermi í Neskaupstað að loknum veiðum á Glettinganesflaki. Skipstjórarnir segja veðrið hafa verið betra en í undanförnum veiðiferðum og telja að ýsan sé farin að ganga á miðin austur af landinu. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar. Ýsa um 40 prósent aflans hjá Vestm

Berjaya Hótel Hérað verður lokað í tæpa fjóra mánuði í vetur. Markaðsstjóri fyrirtækisins segir útlit fyrir að lokunin verði jafnvel lengri að ári. Hásumarið var gott hjá austfirskum ferðaþjónustuaðilum en síðan hefur dregið saman.

Trébryggjan, sem línubátar notast við í Norðfjarðarhöfn, liggur undir skemmdum. Bæjarfulltrúi Miðflokksins segir ástand bryggjunnar til marks um að sveitarfélagið þurfi að gera áætlanir um viðhald eigna sinna.

Heilbrigðisstofnun Austurlands hefur tekið við umsjón sjúkraflutninga á Vopnafirði. Sveitarfélagið bar áður ábyrgð á þeim sjálft.

Félagar úr björgunarsveitinni Báru á Djúpavogi áttu fullt í fangi með dilkrollu sem hafði lítinn áhuga á að láta bjarga sér í Hamarsdal í gær.

Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt grískan karlmann á fimmtugsaldri, Alexandros Katsanos, í níu ára fangelsi fyrir að hafa í lok mars reynt að flytja inn tæp 43 kíló af kókaíni með Norrænu. Framburður hans var talinn fjarstæðukenndur. Þegar sendingin náðist var þetta mesta magn kókaíns sem haldlagt hefur verið í einni

Það er rólegt að gera hjá lögreglunni á Austurlandi ef marka má Facebookfærslu þar sem má sjá mynd af lögreglumanni sem ypptir öxlum á auðri götu.

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar ákvað nú í vikunni að gera ýmsar breytingar á innheimtu gjalda fyrir lóðir sem úthlutað er, bæði fyrir íbúðabyggingar og atvinnuhúsnæði. Sérstaklega verður lengt í frestum á byggingarréttar- og gatnagerðargjöldum íbúðalóða í þriðja hluta Skógahverfis, ofarlega í bænum

Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt karlmann í níu ára fangelsi fyrir að flytja tæp 43 kíló af kókaíni til landsins með Norrænu.

Jólasíldin er klár í Neskaupstað. Mörgum þykir síldin ómissandi á aðventunni og föturnar frá Síldarvinnslunni afla fjár til tækjakaupa á sjúkrahúsi Austfirðinga. Verkun á jólasíld hófst í lok september og síldin hefur staðið í edikblöndu í um 50 daga. Þá er komið að því að skipta henni í fötur og fylla upp með sykurblö
Grískur karlmaður hefur verið dæmdur í níu ára fangelsi fyrir að flytja tæp 43 kíló af kókaíni til Íslands með Norrænu. Fíkniefnin voru falin í sérsmíðuðu hólfi undir gólfi Renault-sendiferðabifreiðar hans, en tollverðir fundu þau við skoðun í Seyðisfjarðarhöfn í mars síðastliðnum. Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt Al
Síðastliðið mánudagskvöld var veitt við athöfn í Konunglegu bresku óperunni í London viðurkenning fyrir hönnun Baugs Bjólfs, útsýnispalls við Seyðisfjörð. Verkefnið hlaut hin virtu Deezen-verðlaun fyrir árið 2026, sem smáverkefni ársins.
Guðni Th. Jóhannesson, prófessor í sagnfræði og fyrrverandi forseti Íslands, kynnir nýja bók sína um landhelgismálin í Neskaupstað í kvöld. Ný sýning verður opnuð í Skaftfelli á Seyðisfirði með sterka tengingu við staðinn.

Ný hreinsistöð fyrir fráveituvatn við Melshorn á Egilsstöðum var tekin í notkun í gær. Með henni verða eldri hreinsivirki lögð af. Fráveituvatnið er grófhreinsað áður en því er veitt áfram út í Lagarfljót.

Fjöldi alvarlegra áfalla á Austurlandi á undanförnum árum varð til þess að ákveðið var að koma á fót sérstöku stuðningsstarfi fyrir börn sem misst hafa foreldra eða systkini.

Hagnaður af rekstri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað fyrstu níu mánuði ársins var rúmir tíu milljarðar króna. Þriðji ársfjórðungur var samt lakari í ár en í fyrra vegna verri makrílvertíðar. Útlit er þó fyrir að árið í ár verði eitt það besta í sögu félagsins. Nýr togari sem félagið hefur keypt mun fá nafnið Bjartur.

Lokaðir fjallvegir og óveður settu strik í reikninginn en um 600 gestir mættu á Matarmót Austurlands. Nýbakað brauð og kruðerí slógu í gegn og sumir framleiðendur seldu upp allar vörur sínar.
/frimg/1/69/36/1693667.jpg)
Tveir menn hafa verið dæmdir í Héraðsdómi Austurlands fyrir líkamsárás í miðbæ Vopnafjarðar sumarið 2024. Annar þeirra hlaut sex mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás eftir að hafa sparkað í höfuð manns sem lá í jörðinni. Austurfrétt sagði fyrst frá málinu. Öryggismyndavél náði árás
Línur eru teknar að skýrast um hvaða eftirliti með hollustuháttum sveitarfélögin þurfa áfram að sinna eftir að drög að reglugerð um neysluvatn voru lögð fram í gær. Starfsfólk heilbrigðiseftirlitanna býr þó enn við óvissu og útlit er fyrir að hluti þess þurfi að taka á sig skert kjör þiggi það störf hjá þeim stofnunum

Lagt er til að hreindýrakvótinn verði minnkaður um tíu dýr á milli ára samkvæmt tillögu Náttúrustofa Austurlands. Vel hefur gengið að kortleggja stofninn síðustu tvö ár.

Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt tvo menn til refsingar fyrir líkamsárás í miðbæ Vopnafjarðar sumarið 2024. Annar maðurinn fékk sex mánaða skilorðsbundinn dóm fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás þar sem hann sparkaði í höfuð fórnarlambsins.

Vestmannaey VE og Bergey VE landa samtals um 123 tonnum í Neskaupstað í dag. Birtingur NK landar einnig í heimahöfn og er afli togaranna þriggja samtals um 168 tonn. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar. Öll skipin hófu veiðar á austurmiðum en þurftu að færa sig suður fyrir land vegna brælu. Þau sneru aftur austur

Fylgi Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi dregst verulega saman í nýrri skoðanakönnun. Sjálfstæðisflokkurinn tekur kipp upp á við og Vinstrihreyfingin, grænt framboð mælist með þingmann í kjördæminu á ný.

Allir þrír skipstjórar ísfisktogaranna sem landa í Neskaupstað í dag kvarta undan veðurfarinu að undanförnu. Bróðurpartur síðasta túrs hafi farið í siglingu undan veðri.

Læknar, sjúkraflutningamenn og hjúkrunarfræðingar hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands hafa í vikunni verið á námskeiðum þar sem æfð eru viðbrögð við bráðum atvikum sem verða utan sjúkrahúsa (BLUS). Læknir hjá stofnuninni segir námskeiðið þarft því heilbrigðisstarfsfólk á landsbyggðinni þurfi oft að sjá um sjúklinga fyrs

Pjetur Sævar Hallgrímsson, kaupmaður kenndur við Tónspil í Neskaupstað, er jarðsunginn frá Norðfjarðarkirkju í dag.

Fyrirtækið Halló hóf í morgun að svara í símann fyrir bæjarskrifstofur Fjarðabyggðar. Nýtt móttökukerfi verður tekið í notkun á næstu dögum og aukin gervigreind innleidd á heimasíðu. Markmið sveitarfélagsins er að nýta starfsmenn betur til að bregðast við ábendingum sem berast eftir ýmsum leiðum. Engar uppsagnir fylgja

Byggðaráð Múlaþings og heimastjórn Seyðisfjarðar krefjast þess að gerðar verði úrbætur á veginum um Fjarðarheiði en segja ástand vegarins sýna fram á nauðsyn þess að grafin verði göng í stað vegarins.

Leifar af mannabústað, trúlega frá landnámstíma, komu í ljós við framkvæmdir á bænum Aðalbóli í Hrafnkelsdal í haust. Fornleifafræðingur segir minjar á svæðinu þekktar og að snemma hafi verið blómleg byggð á svæðinu.

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi starfsleyfi fyrir viðbótarsvæði undir tjaldsvæðið á Egilsstöðum. Nefndin segir starfsleyfið ekki samræmast skipulagi.

Fjarðabyggð hefur farið fram á að fyrirtækið Móglí ehf. verði tekið til gjaldþrotaskipta. Beiðnin kemur í kjölfar þess að Móglí borgaði ekki fyrir hreinsun olíumengunar af lóð þess á Eskifirði.

Akraneskaupstaður áformar að verja tæplega 1,1 milljarði kr. til fjárfestinga og framkvæmda á næsta ári, skv. fjárhagsáætlun sem nú er til umræðu.

Sveitarfélagið Fjarðabyggð urðaði lífrænt flokkaðan úrgang frá heimilum í september, þar sem engin stöð í nágrenninu gat tekið við honum. Slíkt brýtur gegn lögum. Austfirsk sveitarfélög eru komin í vanda, þar sem Molta í Eyjafirði hefur gefið til kynna að fyrirtækið ætli að hætta að taka við lífrænum úrgangi um áramót.

Verktakar á vegum Vegagerðarinnar hafa síðan í september unnið að endurnýjun brúarinnar yfir Helgustaðaá utan við þéttbýlið í Eskifirði. Verkinu á að ljúka eftir um mánuð.

Ingvar Þóroddsson, þingmaður Norðausturkjördæmis, hefur ákveðið að skipta úr Viðreisn í Sjálfstæðisflokkinn. Í yfirlýsingu sinni biður hann Austfirðinga afsökunar á að hafa greitt atkvæði með samgönguáætlun og gagnrýnir stefnu ríkisstjórnarinnar í mikilvægum málefnum fyrir Norðausturkjördæmi.

Beitir NK kom til Neskaupstaðar á fimmtudagsmorgun með síðasta farm síldarvertíðarinnar hjá Síldarvinnslunni (SVN). Loðnuvertíð er næst á dagskrá uppsjávarveiðiskipanna.

Nýr þjónustusamningur um dýralæknaþjónustu hefur tekið gildi á svæði 8, sem nær frá Djúpavogi suður um Sveitarfélagið Hornafjörð. Svæðið var í rúma tvo mánuði án dýralæknis. Atvinnuvegaráðherra hefur skipað starfshóp um endurskoðun á lögum um dýralækna með það að markmiði að treysta mönnun dýralækna til framtíðar.
