
Viðskipti
Fréttir úr viðskiptalífinu, teknar saman af öllum helstu miðlum landsins.
Fleiri fréttir · síða 2

Norsk laxeldisfyrirtæki sýna nýrri tækni LiceDefence mikinn áhuga. Þar í landi hefur gengið erfiðlega að finna lúsavarnir sem virka.

Landsbankinn hagnaðist um 33,1 milljarð króna á fyrstu níu mánuðum ársins, samanborið við 29,5 milljarða á sama tímabili í fyrra. Hagnaðurinn jókst því um 12,5 prósent milli ára, samkvæmt árshlutareikningi bankans sem birtur var í dag. Á þriðja ársfjórðungi einum nam hagnaðurinn 11,1 milljarði króna, nær óbreytt frá sa
Franska hagkerfið dróst saman á þriðja ársfjórðungi, samkvæmt tölum sem birtust í dag. Fjármálaráðherrann varaði við því að efnahagurinn gæti „rekist á vegg“ ef stjórnvöldum tækist ekki fljótlega að fá samþykkt fjárlög sem drægju úr hallanum. Verg landsframleiðsla dróst saman um 0,1 prósent frá júlí til september, að s
Hörður Arnarson, fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar, gagnrýnir Samkeppniseftirlitið harðlega og segir stofnunina hafa farið út fyrir valdheimildir sínar við rannsókn á starfsemi fyrirtækisins.

Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs, hefur lagt til að ríkið setji 20% hlut í Landsvirkjun á markað. Meðal raka hans er að fjölga fjárfestingarkostum, efla íslenska hlutabréfamarkaðinn og laða að erlenda fjárfesta.[1]

Fyrir rúmu ári skrifaði ég þrjár greinar í Vísbendingu, vikulegt rit um viðskipti og efnahagsmál, þar sem ég fjallaði um eftirlitsumhverfi hins opinbera og þær áskoranir sem skapast þegar verkefni sem áður voru á ábyrgð stjórnvalda eru falin einkaaðilum til framkvæmdar.

Ingunn Guðmundsdóttir hefur tekið við starfi mannauðsstjóra Advania.

Hagnaður Krónunnar á fyrstu níu mánuðum ársins nam 2,55 milljörðum króna, samanborið við 2,05 milljarða á sama tíma í fyrra. Hagnaðurinn jókst því um tæplega fjórðung, eða 24,6 prósent, samkvæmt árshlutareikningi Festis, móðurfélags Krónunnar, N1, ELKO og Lyfju, sem birtur var í vikunni. Velta Krónunnar jókst einnig ve
Rafmyntakauphöllin Binance greindi frá því í gær að stór hluti eigna þeirra hefði verið frystur vegna þess að þau urðu fyrir því sem lýst hefur verið sem „stærsta tölvuinnbroti sögunnar“. Tvö greiningarfyrirtæki hafa rakið atvikið til norðurkóreskrar tölvuþrjótadeildar sem nefnist TraderTraitor.

Hörður Arnarson, fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar, gagnrýnir Samkeppniseftirlitið harðlega í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag og dregur hlutleysi þess í efa.

Alphabet, móðurfélag Google, tapaði um hálfri billjón bandaríkjadala í markaðsvirði sínu á hlutabréfamarkaði í vikunni. Það er um 61 billjón íslenskra króna, en ein billjón er þúsund milljarðar. Lækkun þessi er rakin til vaxandi áhyggna fjárfesta af áhrifum gervigreindar á rekstur fyrirtækisins og aukins kostnaðar við
Nova Klúbburinn skilaði hæstu tekjum í sögu sinni á þriðja ársfjórðungi, en þetta er fyrsti heili fjórðungurinn eftir að félagið Ofar kom inn í samstæðuna. Tekjur námu 5,8 milljörðum króna og hagnaður jókst um 24 prósent milli ára.

Að mati dómnefndar hefur fyrirtækið sýnt framsýni með því að nýta sérþekkingu til að mæta nýjum þörfum á sviði gervigreindar.

Una Jónsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans, segir skýr merki um kólnun í hagkerfinu og að viðbúið sé að dragi úr verðbólgu þegar líður á veturinn. Verðbólgan mældist 5,9% í október og stendur í stað milli mánaða. „Það er mikil kólnun hérna innanlands. Við sjáum það. Það er kólnun á húsnæðismarkaði, þa
Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir skýr merki um að verulega hafi hægt á umsvifum í byggingariðnaði. Háir vextir og hægari sala íbúða auki fjármagnskostnað og geti gengið hratt á eigið fé byggingarfyrirtækja.

Treble Technologies hlaut Nýsköpunarverðlaun ársins 2026 en félagið hefur þróað og markaðssett hljóðhermunartækni sem endurskapar raunverulegar hljóðaðstæður í sýndarumhverfi.

Ofar hefur ráðið Ásgeir Helga Þrastarson sem verslunarstjóra í verslun fyrirtækisins að Borgartúni 37.Ásgeir Helgi kemur til Ofar frá Epli, þar sem hann hefur starfað við sölu og ráðgjöf frá árinu 2022, eins og segir í tilkynningu.

Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, segir fyrirhugaða hækkun bankaskatts draga enn frekar úr samkeppnishæfni íslenska fjármálakerfisins. Hann hafnar því jafnframt að lækkun skattsins árið 2020 hafi ekki skilað sér til viðskiptavina.

Hagnaður Landsbankans eftir skatta nam 33,1 milljarði króna á fyrstu níu mánuðum ársins, samanborið við 29,5 milljarða á sama tímabili í fyrra. Hagnaður á þriðja ársfjórðungi nam 11,1 milljarði króna.

Hagnaður Íslandsbanka nam 7,3 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi, samanborið við 6,9 milljarða á sama tímabili í fyrra. Arðsemi eigin fjár var 13,6% á ársgrundvelli, samanborið við 12,2% ári áður.

Landsbankinn hagnaðist um 33,1 milljarð króna eftir skatta á fyrstu níu mánuðum þessa árs. Þetta er aukning frá síðasta ári þegar hagnaður nam 29,5 milljörðum á sama tímabili. Hreinar vaxtatekjur voru 58,3 milljarðar króna samanborið við 49,4 milljarða á fyrstu níu mánuðum 2025. Nemur þetta um 18 prósenta aukningu mill

Landsbankinn hagnaðist um 33,1 milljarð króna eftir skatta á fyrstu níu mánuðum þessa árs. Þetta er aukning frá síðasta ári þegar hagnaður nam 29,5 milljörðum á sama tímabili. Hreinar vaxtatekjur voru 58,3 milljarðar króna samanborið við 49,4 milljarða á fyrstu níu mánuðum 2025. Nemur þetta um 18 prósenta aukningu mill

Framkvæmdasýslan sem fer með ríkiseignir leitar að allt að tíu þúsund fermetra skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu fyrir ríkisstofnanir.

Mál Samkeppniseftirlitsins gegn Samskipum mun áfram hvíla á félaginu eftir að spænska skipafélagið Boluda Shipping tekur við eignarhaldi þess.

Haukur Már Hauksson var aðeins fimmtán ára þegar hann hóf störf á Fiskmarkaðnum, nýkominn úr grunnskóla.

Lögreglan í Finnlandi hefur hafið sakamálarannsókn vegna umhverfisáhrifa undirbúningsframkvæmda á einu þeirra svæða þar sem tæknirisinn Google hyggst reisa gagnaver.

Uppsögnum í Hafnarfirði er lokið að sögn bæjarstjóra. Fjárhagsstaða bæjarins sé slæm og þurfi þau að spara rúma tvo milljarða. Til að greina stöðuna naut bærinn þjónustu ráðgjafafyrirtækis.

Engin formleg trygging liggur fyrir um að störf verði ekki flutt frá Íslandi eftir að Samskip verða að fullu í eigu spænska skipafélagsins Boluda Shipping. Spænska félagið líti hins vegar á Samskip og starfsemina á Íslandi sem „krúnudjásn“ Boluda-hópsins.

Fyrirtæki á Dalvík lagði fram kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna mannvirkja og framkvæmda á lóð, þar sem stendur einbýlishús, sem er fyrir aftan lóð fyrirtækisins.

„Við sjáum hækkanir á bæði lambakjöti og alifuglakjöti um 3% milli mánaða, sem er rosalega mikið,“ segir Halla.

Fjórum af 35 aðgerðum í fyrstu aðgerðaáætlun atvinnustefnu Íslands er lokið, 23 eru í vinnslu og átta í undirbúningi. Atvinnustefnuráð fagnar framgangi aðgerða en lýsir jafnframt áhyggjum af töfum á umbótum á regluverki lagareldis og rekstrarumhverfi gagnavera.

Mikill samdráttur í framlegð eldsneytissölu hjá N1 vó þungt í afkomu Festar á þriðja ársfjórðungi, sem var talsvert undir spám greinenda. Krónan skilaði hins vegar kröftugum rekstrarbata og var eini helsti starfsþáttur samstæðunnar sem var í takt við væntingar markaðaðarins.

Christine Lagarde, forseti Seðlabanka Evrópu, mun láta af embætti í febrúar á næsta ári, nokkrum mánuðum áður en skipunartími hennar rennur út í október á næsta ári, að því er stofnunin, sem hefur aðsetur í Frankfurt í Þýskalandi, greindi frá í dag.

Tökur á Áramótaskaupinu fara vel af stað, að sögn Allans Sigurðssonar en hann leikstýrir Skaupinu ásamt Hannesi Þór Arasyni. Framleiðslufyrirtæki þeirra, Atlavík, framleiðir þáttinn.

Tökur á Áramótaskaupinu fara vel af stað, að sögn Allans Sigurðssonar en hann leikstýrir Skaupinu ásamt Hannesi Þór Arasyni. Framleiðslufyrirtæki þeirra, Atlavík, framleiðir þáttinn.

Eini framleiðandi hamsatólgar fær framhaldslíf því fyrirtækið Stóruvellir hefur verið selt. Nýir eigendur ætla að halda framleiðslunni áfram en í september var útlit fyrir að hún gæti stöðvast. Fréttastofa ræddi í lok september við Garðar Jónsson, eiganda Stóruvalla, sem greindi frá því að fyrirtækið hætti væntanlega s
Christine Lagarde, forseti Seðlabanka Evrópu, hefur tilkynnt afsögn sína og lætur af embætti í febrúar. Það er átta mánuðum áður en átta ára kjörtímabili hennar lýkur. Orðrómur um að hún ætli að láta af embætti hefur verið á kreiki um nokkurra mánaða skeið og hafa líkur verið leiddar að því að hún ætli að hefja störf h

„Vissulega stendur tólf mánaða verðbólgan í stað og það eitt og sér er jákvætt að hún sé ekki á uppleið en hún er of há að mínu mati.“

Gífurlegar breytingar hafa á skömmum tíma orðið á athafnasvæði Eldisgarðs Samherja á Reykjanesi. Á fimm mánuðum er búið að reisa 21 risastóran eldistank fyrir landeldi fyrirtækisins.
