
Viðskipti
Fréttir úr viðskiptalífinu, teknar saman af öllum helstu miðlum landsins.
Fleiri fréttir · síða 4

Flugkostnaður tveggja foreldra og barns gæti lækkað um rúmar tuttugu þúsund krónur eða hækkað um tæpar tuttugu þúsund með fyrirhuguðum breytingum á loftbrú. Niðurstaðan ræðst af miðaverði, tímasetningu miðakaupa og hvaðan sé flogið.

Uppgjör Ása, áður Símans, fyrir þriðja ársfjórðung sýnir merki um bata í undirliggjandi rekstri samstæðunnar en einskiptiskostnaður vegna yfirtaka og skipulagsbreytinga setti hins vegar talsvert mark á afkomuna, að sögn hlutabréfagreinenda. Tekjuvöxtur í fjarskiptastarfseminni reyndist meiri en vænst var og kostnaðarað

Rekstrarniðurstaða samstæðu Sveitarfélagsins Árborgar var neikvæð um 129 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Há verðbólga og aukinn fjármagnskostnaður vógu þungt í afkomunni, en fjármagnsgjöld sveitarfélagsins voru tæplega 300 milljónum króna umfram áætlun.

Sveitarfélagið Árborg var rekið með 129 milljóna króna halla á fyrri helmingi árs. Verðbólga setti sitt mark á reksturinn því fjármagnsgjöld voru 300 milljónum krónum meiri en búist var við og verðbætur og gengismunur voru 922 milljónir. Í tilkynningu frá bænum segir að rekstrarniðurstaðan fyrir afskriftir, fjármagnsli
Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur 70 manns fyrir umboðssvik og peningaþvætti með því að hagnýta sér kerfisvillu í Reiknistofu bankanna í október í fyrra og svíkja tæpar 96 milljónir króna út úr Landsbankanum. Ákæran í málinu er 150 blaðsíður og fréttastofa hefur hana undir höndum. Tveir menn á fertugsaldri
„Þetta er sannkölluð bjórhátíð í anda Bæjaralands og verið er að skreyta allt hótelið til að ná þessum sérstaka októberfest-anda fyrir helgina,“ segir Elvar Yngvason, markaðsstjóri fjölskyldufyrirtækisins Mývatns Öls og Sels-Hótel Mývatns.

Framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs telur að skráning Landsvirkjunar á hlutabréfamarkað og sala á minnihluta í fyrirtækinu gæti laðað erlenda fjárfesta til landsins og gert íslenska markaðinn, sem sé núna „í þriðju deild í ensku“, að álitlegri fjárfestingarkost. Hann segir jafnframt að það sé ekki „góður bragur á því“

Arion banki og Seðlabanki Íslands hafa gert með sér sátt vegna brota Arion banka á ákvæðum reglugerðar um markaðssvik. Fjármálaeftirlit Seðlabankans hóf athugun á meintri markaðsmisnotkun viðskiptavinar bankans í apríl 2024 og í ljós kom að sá hinn sami hafði ítrekað greint starfsmönnum Arion banka frá því að tilgangur
Arion banki og Seðlabanki Íslands hafa gert með sér sátt vegna brota Arion banka á ákvæðum reglugerðar um markaðssvik. Fjármálaeftirlit Seðlabankans hóf athugun á meintri markaðsmisnotkun viðskiptavinar bankans í apríl 2024 og í ljós kom að sá hinn sami hafði ítrekað greint starfsmönnum Arion banka frá því að tilgangur
Arion banki hefur komist að samkomulagi við fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands.

Arion banki hefur fallist á að greiða 280 milljóna króna sekt vegna brota á reglum um verðbréfaviðskipti og fjárfestavernd. Bankinn gerði sátt við Fjármálaeftirlit Seðlabankans eftir að í ljós kom að hann hafði ekki tilkynnt um grunsamleg hlutabréfaviðskipti tveggja viðskiptavina á árunum 2022 og 2023, þrátt fyrir skýr

Afgreiða á virkjunarleyfi og tengd leyfi sem eitt leyfi á innan við 18 mánuðum frá því að fullnægjandi umsókn berst samkvæmt nýju frumvarpi sem var afgreitt á ríkisstjórnarfundi í morgun.

Kínverskir áhrifavaldar og fjölmiðlafulltrúar munu á ferð sinni um landið kynnast því sem íslensk ferðaþjónusta, náttúra og menning hafa upp á að bjóða.

Nær jafn mörg fyrirtæki eru jákvæð og neikvæð gagnvart markmiðum Íslands um kolefnishlutleysi árið 2040.

„Niðurstaðan getur orðið að Orkuveitan eigi áfram allt fyrirtækið. Það er auðvitað ekkert útilokuð niðurstaða [...] Við ætlum ekki að selja félagið ódýrt.“ Þetta segir Sævar Freyr Þráinsson forstjóri Orkuveitunnar. Stjórn Orkuveitunnar samþykkti í gær umboð vegna mögulegrar einkavæðingar Ljósleiðarans. Fulltrúi Samfylk
Frystitogarinn Blængur NK kom til Neskaupstaðar í gær eftir 26 daga veiðiferð. Afli skipsins var 620 tonn upp úr sjó. Á vef útgerðarinner er verðmæti aflans sagt vera 507 milljónir króna.

Um sjötíu manns hafa verið ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti í tengslum við umfangsmikið fjársvikamál sem kom upp í nóvember í fyrra. Hundruð milljóna króna voru svikin út úr Landsbankanum með því að nýta galla hjá Reiknistofu bankanna.

Helstu fjölmiðlasamtök og fjölmiðlafyrirtæki Noregs hafa gripið til dómsaðgerða til að koma í veg fyrir að nýir notendaskilmálar Meta taki gildi. Þau segja skilmálana ógna réttindum sínum að eigin fréttaefni.

Þjónustustúlku hafa verið dæmdar rúmar tvær milljónir króna vegna mismununar og áreitni á skosku hóteli. Hún var fimmtán ára þegar yfirmenn öskruðu á hana og svívirtu eftir að hún missti eplaköku í gólfið.

Ragnheiður Hafstað Hauksdóttir hefur verið ráðin forstjóri Keahótela ehf. og tekur við starfinu 1. nóvember næstkomandi.

Leyfi til að selja Ljósleiðarann að hluta eða öllu leyti eða skrá fyrirtækið á markað var veitt á hluthafafundi fyrirtækisins í gær. Það var veitt með fyrirvara um samþykki eigenda Orkuveitunnar, sem er Reykjavíkurborg að stærstum hluta. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri sagði í viðtali við RÚV í maí að til stæði að sel
Guðmundur Halldór Björnsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðsmála Sýnar, gagnrýnir í aðsendri grein á Vísi að enn hafi engar aðgerðir verið kynntar um skattlagningu alþjóðlegra tæknifyrirtækja. Hann segir fjölmiðlafyrirtæki verða að geta treyst boðuðum aðgerðum og kallar eftir því að brugðist sé við. Málið er ekki á þ

Lánveitendur fiskeldisfyrirtækisins Kaldvíkur hafa framlengt tímabundna undanþágu félagsins frá tilteknum lánaskilmálum enn frekar, en til stóð að frestur rynni út í dag.

Lánveitendur sjókvíeldisfyrirtækisins Kaldvíkur framlengdu enn frekar frest tímabundinnar undanþágu félagsins frá lánaskilmálum. Stóð til að frestur rynni út í dag en hefur hann verið framlengdur til miðvikudags.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hyggst stytta hámarkstíma nýrra verðtryggðra húsnæðislána í 25 ár úr 40. Því er ætlað að tryggja að höfuðstóll hækki ekki að nafnvirði á tólf mánaða tímabili miðað við 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans. Áformin voru birt í Samráðsgátt stjórnvalda í byrjun mánaðarins. Lögin eiga að taka
Borgartún 37 hefur verið valið í markaðskönnun Framkvæmdasýslunnar, Ríkiseigna (FSRE) um hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu. Tillaga Reita gerir ráð fyrir um 100 hjúkrunarrýmum í húsinu.

Reitum hefur borist tilkynning frá Framkvæmdasýslunni, Ríkiseignum þess efnis að Borgartún 37 hafi verið valið í markaðskönnun um hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu en mat tilboða byggðist meðal annars á verði, stærð, staðsetningu og öryggi. Húsið hýsti um árabil upplýsingatæknifyrirtækið Nýherja, sem varð síðar að

Sala áfengis í Vínbúðunum dróst saman um 7,5 prósent í lítrum talið fyrstu níu mánuði ársins, að sögn forstjóra ÁTVR. Hún hefur ekki gögn sem skýra hversu mikið samdrátturinn tengist minni áfengisneyslu og hversu mikið því að viðskiptin hafi færst annað.

Lánveitendur fiskeldisfyrirtækisins Kaldvíkur framlengdu tímabundna undanþágu félagsins frá tilteknum lánaskilmálum til og með dagsins í dag.

Anthropic, eitt fremsta gervigreindarfyrirtæki heims, birti í dag gögn vegna fyrirhugaðs hlutafjárútboðs og skráningar á hlutabréfamarkað. Skráningin verður mikilvægur prófsteinn á hvort mikill uppgangur í gervigreindargeiranum geti skilað hagnaði.

Brynja Baldursdóttir, stjórnarformaður Landsvirkjunar segir það ekki rétt að Herði Arnarsyni hafi verið gert að víkja af fundi stjórnar þegar rekstrarleg málefni fyrirtækisins voru rædd.

Sviðum ÁTVR verður fækkað um eitt og staða eins framkvæmdastjóra lögð niður, auk þess sem stöðugildum á skrifstofu og í dreifingarmiðstöð verður fækkað um tæplega sex, í hagræðingaraðgerðum. Með þeim er áætlað að spara um 150 milljónir króna á ári.

ÁTVR hefur fækkað sviðum innan fyrirtækisins og lagt niður stöðu framkvæmdastjóra. Þá hefur stöðugildum á skrifstofu og í dreifingarmiðstöð jafnframt fækkað um tæplega sex. Ekki verður ráðið í allar lausar stöður næstu misserin.

Hörður Arnarson hefur verið forstjóri Landsvirkjunar í 17 ár. Öllum ber saman um að hann hafi staðið sig vel í starfi við að stýra langverðmætasta fyrirtæki landsins.
Verðmat á fiskeldisfyrirtækinu Kaldvík hefur verið lækkað um liðlega þriðjung í kjölfar erfiðleika í rekstri, versnandi sjóðsstöðu og hækkandi fjármagnskostnaðar. Greinendur telja fjárhagsstöðu félagsins þunga eftir mikil áföll síðustu misseri en gera ráð fyrir að reksturinn fari að rétta úr kútnum á næsta ári.

Formaður þýska verkalýðsfélagsins IG Metall gagnrýndi í dag forstjóra bílaframleiðandans Audi harðlega fyrir að koma fram á kosningafundi með Donald Trump Bandaríkjaforseta.

Hóflegar launahækkanir í Svíþjóð á tímum mikillar verðbólgu áttu veigamikinn þátt í því að hægt var að ná verðbólgunni hraðar niður en víða annars staðar og lækka vexti fyrr og meira, að sögn varaseðlabankastjóra Svíþjóðar. Á sama tíma hafa laun á Íslandi hækkað mun meira en þekkist á hinum Norðurlöndunum og ný rannsók

Styrktarsjóður Hringfarans hefur nú úthlutað rúmlega 45 milljónum króna til verkefna í þágu barna og ungmenna.

Meta, fyrirtækið sem rekur Facebook og Instagram auk annarra samfélagsmiðla, tilkynnti á föstudag að fyrirhuguðum breytingum á notendaskilmálum fyrirtækjareikninga verði seinkað til 20. nóvember. Bandaríski sérmiðillinn NiemanLab greinir frá. Með nýjum notendaskilmálum áskilur fyrirtækið sér rétt til þess að safna og v